Tíminn - 04.06.1976, Page 4
A
TÍMINN
Föstudagur 4. júnl 1976.
Frægð hans stóðst bæði á stríðs- og friðartímum
Max Schmeling, einn af þeim
frægustu i box-fþrdttinni varö 70
ára sl. september. Þ. 12. júni
1930 vann hann heimsmeistara-
titilinn i boxi, þegar Jack
Sharkey var dæmdur úr leik. Þ.
19. júní 1936 (á myndinni t.v.)
sigraöi hann Bandarikjamann-
inn Joe Louis. Þeir uröu seinna
miklir vinir. Enn í dag er Max
Schmeling vinsælli en nokkru
sinni. Þess vegna ákvaö hann og
kona hans, Anny Ondra, (fyrr-
um leikkona) aö bjarga sér und-
an öllu afmælistilstandinu og
föru til óþekkts staöar.
Max Schmeling hefur haft
heppnina meö sér á viöskipta-
sviöinu, á m.a. þrjár stórar vin-
verksmiöjur. Hann býr nú á
100.000 fermetra landareign
sinni, Hollenstedt, 1 noröurhluta
Vestur-Þýzkalands. Hann geröi
þaö lýöum ljóst aö hann vildi
engar afmælisgjafir, en mæltist
til þess aö þeir sem heföu ætlaö
sér aö senda honum skeyti,
blóm eða gjafir sendu andviröiö
til hjálparsjóös þýzkra iþrótta-
manna, sem styrkir og undirbýr
beztu iþróttamenn landsins fyr-
ir Olymplsku leikana.
Schmeling hefur i mörg ár verið
styrktarfélagi þessa opinbera
hjálparsjóðs fyrir þýzka i-
þróttamenn. jp----------------->.
1 grennd viö þorpiö Sjarjpovo i
héraöinu milli fljótanna Ob og
Jenisei i Siberiu, er hafin bygg-
ing kolakynts raforkuvers, sem
veröur hiö stærsta sinnar
tegundar 1 heiminum. Þaö á aö
nota brúnkol frá Kansk-Atjinsk-
námusvæöinu þar i grenndinni,
en auövelt er aö vinna kolalögin
þar i opinni námu. Ofninn, sem
er 135 metra hár, er tengdur
kötlum, sem knýja 800 mega-
watta aflvélar. Orkuveriö mun
ekki valda vatnsmengun, þar
sem vatnskerfi þess er lokaö.
400 metra hár reykháfur mun
halda reyk- og rykmagni i
algeru lágmarki. Auk raforku
mun orkuveriö sjá fyrir heitu
vatni til húsaupphitunar i bæn-
um.
★
Stærsta
kolakynta
raforkuver
heims í Síberíu
Til hamingju með
afmælið Elvis! ^
Elvis Presley eldist eins og
aörir. Nú er hann orðinn 41 árs.
A afmælisdaginn sinn var hann
staddur I Sun Valley, vetrar-
iþróttastaönum fræga i Banda-
rikjunum. Þegar hann blés á
kertin á afmælistertunni sinni,
þá var gömul vinkona hans,
Lynda Thompson, við hliö hans
og hjálpaöi honum aö blása á
kertin. Aður fyrr haföi Elvis
aldrei sýnt áhuga á vetrar-
iþróttum, en nú langaði hann aö
reyna aö fara á skiöum. Hánn
vildi ekki láta fólk þekkja sig I
ski'öabrekkunum, og fékk sér
þvi sklðahúfu úr ull, nokkurs
konar lambhúshettu, og sá þá
rétt I augun á honum. En Elvis
★ '
var svo óheppin aö fá upphlaup
og afnæmi af ullinni og stokk-
bólgnaöi allur iframan. Þaö var
sóttur til hans læknir þarna úr
héraöinu, og varhann fljótur aö
ráöa bót á meinum söngvarans,
svo hann varö aftur sléttur og
finn I framan. Elvis var læknin-
um svo feginn hjálpinni, aö
hann gaf honum splúnkunýjan,
finan bil meö kæru þakklæti
fyrir lækninguna!
DENNI
DÆMALAUSI
„Mömmu langar til aö vita hvaö
þú heldur aö þú sért aö gera
hérna niöri.”