Tíminn - 04.06.1976, Page 7

Tíminn - 04.06.1976, Page 7
Föstudagur 4. júni 1976. TÍMINN 7 Þetta er hið nýja merki, sem kemur i stað BP-merkisins. Þröstur Magnússon teiknari, hannaði þetta nýja merki. Auglýsið ¥ i Tímanum Tónabær í nýjum búningi Gsal-Reykjavik. — Það er ráð- gert að malbika svæðið hérna fyrir utan og einnig að mála húsið að utanverðu. að verður vonandi ekki lengur „ljótasta húsið I Reykjavik,” eins og einhverjir sögðu opinberlega, sagði ómar Einarsson, framkvæmdastjóri Tónabæjar I samtali við blm. Tlmans. Búið er að gera gagngerar breytingar á innréttingu Tóna- bæjar og sagði Ómar, að varið hefði verið einni milljón króna til þeirra breytinga, en kostnaður af endurbótunum væri nokkru minni en sú upphæð. Sett hafa verið ný áklæði á alla bekki og eru áklæðin frá Gefjun á Akureyri. Tónabær er nú að fara af stað með sumardagskrána, og er búið að ákveða dansleiki I júni og júli- mánuði. Á fimmtudögum er opið frá 20-23 fyrir unglinga fædda árið 1962 og 1963. Aðgangur er þá 300 kr. og ýmist verður diskótek, skemmtiatriði eða hljómsveitir. A föstudögum er opið frá kl. 20.30- 00.30 fyrir unglinga fædda 1961 og áður. Aðgangseyrir er 600 kr. og ýmist verður á boðstólum disko- tek, skemmtiatriði eða hljóm- sveitir. A laugardögum er opið á sama tima og á föstudögum og fyrir sama aldurshóp. A sunnu- dagskvöldum verða svo skemmtikvöld þegar tilefni gefst OLIS í stað Gsal-Reykjavik — A næstu vikum mun Oliuverzlun íslands hf. taka nýtt merki I notkun, OLÍS, I stað BP-merkisins, sem skreytt hefur birgða- og benzinstöðvar, bifreið- ar félagsins og skilti um langt árabil. Oliuverzlun islands hefur yfirtekið allar eignir BP á islandi og mun nýja nafnið OLÍS þvi framvegis verða einkennismerki félagsins. Að sögn Onundar Asgeirssonar, forstjóra Oliuverzlunar islands, átti The British Petroleum Company Limited, London, 51% eignarhluta i hlutafélaginu BP á íslandi hf. á móti 49% eignarhluta íslendinga, þar til árið 1974 að ís- lendingar keyptu hlut brezka fyr- irtækisins I félaginu. önundur sagði, að félagið BP á islandi hf. yrði tekið af firmaskrá og Oliufé- lagið yfirtæki eignir þess. Sem fyrr mun Oliuverzlun Is- lands starfa sem umboðsaðili fyr- ir BP og Mobil oliuvörur, sem seldar verða udir vörumerkjum þessara framleiðenda. til, en þau hafa ekki verið ákveóin enn. Sú breyting hefur orðið á, að dansleikir eru nú til kl. hálf eitt, en voru áður til kl. eitt, en það er gert, að sögn Ómars, til þess að unglingarnir nái örugglega I siðasta strætisvagn heim til sin, hvar sem þau búa á höfuðborgar- svæðinu. Þá varð sú breyting 1. júni, að aldurstakmarkið færðist niður um eitt ár Tóbak hefur fram til þessa verið selt i Tónabæ, en nú hefur verið ákveðið að hætta sölu tó- baks. Jafnframthefur verið kom- ið upp veggspjöldum, þar sem til- tekin eru noídcur atriði, um skað- semi reykinga. Þá verður að sögn ómars reynt eftir mætti af starfs- mönnum hússins að koma að mestu i veg fyrir reykingar, en þó verður ekki sett á algjört reyk- ingarbann. Ómar Einarsson, framkvæmdar stjóri Tónabæjar. Bandaríkin 200 ára Ætlar þú í veisluna? ( ár verður mikið um dýrðir í Bandaríkjunum, er þjóðin minnist þess að 200 ár eru liðin síðan frelsisstriðinu gegn bretum lauk og landið varð sjálfstætt riki. Margt verður gert tH að minnast þessa átburðar. Öll rikin 50 munu leggja sitt af mörkum. Eins og vænta má verður þar allt stórt í sniðum. f San Franciscoverður bökuð afmælisterta, sextonn að þyngd, sextíu metrar í þvermál og á hæð við tvílyft hús. í Utah verða gróðursettar milljón trjáplöntur. Stærstu seglskip heims munu sigla í fylkingu inn New York höfn. Mest verður um dýrðir í fjórum sögufrægum borgum, Boston, New York, Phila- delphia og Washington. Bandaríkjamenn hafa búið sig undir að taka á móti 25 milljón gestum á afmælinu. íslensku flug- félögin greiða götu þeirra, sem fara á þjóöhátíðina, tit þess að skoða ævintýraheima Disneys, hlusta á jazz í New York eða New Orleans, fara upp í Frelsisstyttuna eða sækja heim vestur-íslendinga, svo eitthvað sé nefnt. FLVCFÉIAC LOFTLEIDIR ÍSLANDS Félög með daglegar ferðir vestur um haf

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.