Tíminn - 04.06.1976, Síða 15

Tíminn - 04.06.1976, Síða 15
Föstudagur 4. júnl 1976. TtMINN 15 Verkstæöi, skrifstofur, verzlun og sýningarsvæöi Sveins Egiissonar h.f. Skeifunni 17. (Jtisýningar- svæöiö er viö enda skrifstofu- byggingarinnar, en undir bygg- ingunni er sýningarsalurinn. Timamyndir Gunnar. 80% þeirra kaupenda, sem fá sér nýja bila hjá Sveini Egilssyni h.f. láta eldri árgerðir upp i kaup- veröið, og af þvi leiðir að fyrir- tækið rekur umfangsmikla verzl- un með notaða bila. í nýbyggöu húsi, sem gnæfir yfir aörar bygg- ingar I Iðngörðum og I eru skrif- stofur og verzlun fyrirtækisins, er mjög rúmgóður kjallari sem þjónar þeim tilgangi að vera sýningarsalur fyrir notaða bila, sem að sjálfsögðu eru til sölu. Við húsið hefur einnig verið steypt mikið plan, þar sem bilar, sem eru til sölu, eru sýndir. A þessum stöðum samanlögðum er unnt að hafa 50 til 60 bila til sýnis samtim- is. Þeir Jónas Asgeirsson og Þor- steinn Kristjánsson veita bilasöl- unni forstöðu. Þeir sögðu Tlman- um, aö um þessar mundir væri mikil eftirspurn eftir notuðum bflum, aðallega nýlegum, og væri ekki hægt að anna eftirspurninni eftir árgerðum 1973 og 1974, aðal- lega evrópskum bilum af minni gerð, en nú vilja menn fá spar- neytna bfla og ódýra I rekstri. Verð á notuðum bilum er nokkuð mismunandi en verð sæmilegra bila af fyrrnefndum árgöngum er yfirleitt á bilinu 500-800 þúsund krónur. Sem kunnugt er var 1974 algjört metár I bflainnflutningi. Þaö ár flutti Sveinn Egilsson h.f. inn 1400 bfla, en I fyrra 550 bila, og i ár er gert ráö fyrir um 600 bila inn- flutningi. Miðaö viö að 80% kaup- enda láti eldri bil upp I nýjan, eru ekki svo fáir bilar, sem fara gegnum bilasöluna. En þar aö auki tekur fyrirtækið eldri bfla, I góöu lagi og vel útlitandi, I um- boðssölu. Allir bilar, sem teknir eru upp I nýja, eru yfirfarnir á bflaverk- stæðinu, og er hver bfll skoðaður og metinn samkvæmt ástandi sinu, og telja verður öruggt að hann sé i þvi ástandi, sem starfs- menn fyrirtækisins segja hann vera, er væntanlegan kaupanda ber að garöi. Gerö er skoðunar- skýrsla um hvern bil og getur kaupandi fengið hana með I kaup- unum. Iöulega hringir fólk utan af ---------->- Jónas Asgeirsson og Þorsteinn Kristjánsson I hinum rúmgóða sýningarsal. 80% kaupenda nýrra bíla láta gamla bíla upp f kaupverðið ______________ _____________ — nýr sýningarsalur og sölutorg hjá Sveini Egilssyni h.f. landi til að spyrjast fyrir um bila á söluskrá, og getur það fengiö nákvæmar upplýsingar um þá bfla, sem til sölu eru hverju sinni, og þarf þvi ekki að eyða miklum tima I borginni I að leita uppi bila við sitt hæfi, og eru jafnvel dæmi um að fyrirtækið hafi sent bila út á land og gengiö frá öllum kaup- um, án þess að viðkomandi hafi séð bilinn fyrr en hann fékk hann I hendur, — heimsendan. BÓK TIL ÞESS AÐ BLAÐA í AÐ VORLAGI BLÓMIN OKKAR heitir rit eftir Ingólf Daviðsson magister, myndskreytt af Halldóri Pét- urssyni og gefið út af Rikisút- gáfu námsbóka. Nafnið gefur að miklu leyti til kynna, um hvað bókin fjallar, en þó ekki að öllu leyti, þvi að Ihennieru til dæmis kaflar um fjöruna, hraunin og fæöukeðjuna. A þessari bók er vakin athygli nú sökum þess, aö um þetta leyti árs er vel til fallið fyrir börn og unglinga, sem hafa yndi af fyrirbærum náttúrunnar, gróðurfari og þroskaferli jurta, að verða sér úti um þessa bók, eða taka hana fram, ef hún er til á heimilinu, og lesa hana sam- timis og vexti jurtanna er gefinn gaumur. Bókin er að verulegu leyti I samtalsformi, likt þvi að for- eldrar eða kennarar séu að tala við þroskuð böm. Talað er um margar jurtir, sem flestir þekkja, garðagróður og algengt gróðurlendi og lifverur I þvi' og það, sem þar gerist eftir þvi, sem á árstiðum stendur. Athygli er vakin á samfélagi jurta og dýra, dregið fram hvernig hvað er öðru háö og ein lifveran á tilveru sina undir annarri og tekin dæmi þessu til skýringar. Vakin er athygli á nauðsyn á náttúruvernd og hvatt til góðrar umgengni á viðavangi. Þótt tsland megi kallast tiltölulega hreint land, er samt sums staðar farið að gæta mengunar, og gróður- eyðing á sér enn staö af völdum uppblásturs og búsetu, og er sú eyðing mikil á sumum svæðum. Gróður er viðkvæmur i okkar norðlæga landi og jarövegur er viöa laus og fokgjarn og illa varinn fyrir mikiili beit og á- hrifum vatns og vinda. Þótt bókin sé fyrst og fremst ætluð börnum og unglingum, er hún einnig hentug foreldrum og kennurum til lestrar, ef þessir aðilar vilja glæða þekkingu ungu kynslóðarinnar á jurtum og blómum og öðrum fyrir- bærum náttúrunnar. Þeir geta fundið þar margt sér til stuðn- ings I sliku fræðslustarfi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.