Tíminn - 10.08.1976, Page 8
s
TÍMINN
ÞriOjudagur 10. ágúst 1976
KÝR í
LISTUM
t Queens safninu í New York
er um þessar mundir sýning á
þvi hvernig kýr hafa verið
túlkaðar á listrænan hátt i
gegnum aldirnar. Þar gefur að
lita hverskyns afbrigði, kýr i
kúblskum stil, kýr málaðar af
impressionistum, kýr popplista-
manna, raunsæismanna, kýr úr
tini, tré, postulini og leir,
blúndukýr, smiðajárnskýr —
jafnvel kýr, sem er að stökkva
yfir tungiið á kökuskál.
En hvers vegna kýr? Mario
Amaya forstöðumaður safnsins
og upphafsmaður sýningar-
innar viðurkennir að þær séu
ekki sérlega fallegar. En þær
hafa verið mjög vinsælt við-
fangsefni listamanna.
Eitt fyrsta verkið sem ber
fyrir augu á sýningunni er
marmaraskál, sem i eru skorin
út sex naut. Yfir 100 samtima-
„Kýr” eftir Tom Althouse. Út úr þessu trélistaverki er hægt að lesa orðið „cow", en júgrið er ,,w
Oliumálverk frá 19. öld, „Stiflan” eftir Emii Van Marke.
Emaleruð tinkýr frá 18. öld
eftir Pelft.
listamenn eiga verk i safninu,
m.a. Pisarro, Lichtenstein,
Sargent, Bellows, Homer og
Warhol. Sá siðastnefndi hannaði
eitt sinn grænt veggföður alsett
bleikum kúm.
önnur ástæða fyrir sýning-
unni er e.t.v. sú að listunnendur
hafa nú meiri áhuga á náttúr-
unni en áður.
Metropolitansafnið, Museum
of Modern Art (Nútimalista-
safnið), Brooklynsafnið og
mörg önnur söfn jafnt i einka-
sem almenningseign hafa lánað
listaverk á sýninguna. Listráð
New Yorkrikis fjármagnar
sýninguna ásamt fyrirtækinu
Heublein’s Malcolm Hereford’s
Cos Ltd.
Sýningin er i Queens safninu i
New York City Building i
Flushing Meadow þar sem kýr
voru á beit fyrir einni öld.
„Gertrude” kýr úr
polyester og viði eftir
Anne Arnold.