Tíminn - 31.08.1976, Side 10

Tíminn - 31.08.1976, Side 10
10 TÍMINN Þriðjudagur 31. ágúst 1976. Þriöjudagur 31. ágúst 1976. TÍMINN 11 Hér sjást hús sem standa I „fjörunni”. Mörg þeirra eru mjög merkilegog viröist fuli ástæöa til þess að varðveita þau. TILLAGA UM Séð niður Lækjargil. Við Lækjar- götu eru mörg gömul og merkileg liús. Timamyndir Karl. Elzta hús á Akureyri, Laxdals- hús, sem er númer 11 við Hafnar- stræti. FRIÐUN GAM- ALLA HÚSA Á AKUREYRI KS-Akureyri — Nýlega var borin fram merkileg tiliaga i bæjar- stjórn Akureyrar um friðun gan.alla húsa i bænum. Flutn- ingsmaður, GIsli Jónsson segir m.a. i tillögu þar að lútandi: — Ekki leikur á tveim tungun, að á Akureyri eru mörg hús þess virði að þau séu varðveitt i sem upprunalegastri mynd. Nú þegar hefur of margt glatazt af eldi og vangeymslu. Bæjarhlutar, eins og gamla Akureyriog fjaran,eru gott dæmi um heil hverfi sem ættu aö geym- ast án þess að heildarsvipur þeirra raskist. Með þessu er þó ekki áttvið, að ekki megi rifa eitt- hvað af þessum gömlu húsum né byggja þar á ný, ef þess er gætt, að þau hús sem varðveizlugildi hafa, fái að standa og nýbygging- ar spilli ekki heildarsvip hverfis- ins. Siðar segir i tillögunni: Varð- veizla gamalla húsa getur verið æði kostnaðarsöm, og er ekki von til þess að t.d. einstaklingar, sem slik húseiga, geti lagt fram mikið fé til varðveizlu þeirra, ekki sizt ef húsineru h'tteða ekki nothæf tii ibúðar. Flutningsmaður hvetur siðan igreinargerðopinbera aðila til að styrkja félög og aðra þá, er áhuga hafa á varðveizlu slikra gamalla húseigna. I viðtali við Timann um þetta mál, sagöi Gisli, að málinu hefði verið visað til bæjarráðs, sem siðan sendi erindið áfram tii þjóð- minjavarðar, sem lögum sam- kvæmt er formaður húsfriðunar- nefndar rikisins. Jafnframt var tillaga þessi send stjórn Minjasafnsins á Akureyri til umsagnar. Um fjár- mögnun húsfriðunarsjóðsins er gert ráð fyrir að tekjúr hans, verði annars vegar framlag frá rikinu, en hins vegar framlag frá Akureyrarbæ. Um gömul og merkileg hús sagði Gish að nefna mætti i þvi sambandi Laxdalshús, sem byggt var árið 1795 og elzta spitalann á Akureyri, sem byggður var á ár- unum 1830-1840. Einnig eru við Aðalstræti mörg hús sem merki- leg eru, og má i þvi tilfelli nefna Nonnahús. Gamla kirkjan á Svalbarði var flutt til Akureyrar árið 1970. Kirkjunni var valinn staður, þar sem fyrsta kirkjan, sem reist var á Akureyri, haföi staðið. Sval- barðskirkja var byggð árið 1846 af Þorsteini á Skipalóni. Aðalstræti 50 er byggt á árunum milli 1840-1850. Þar bjó séra Matthias fyrstu 17 árin sem hann bjó á Akurcyri, og þar munu væntanlega hafa orðiðtil mörg af hans kunnustu verkum. wmm Elzti spitalmn á Akureyri var byggður á árunum milli 1830 og 1840 við Aöalstræti 14. * Gamalt hús við Aöalstræti 66A. Nonnahús er eitt þeirra húsa sem i „fjörunni” standa. Það mun sennUega vera þekktast þeirra, og árlega kemur margt manna til þess að skoða húsið, sem er mjög vel við haldið.' p-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.