Tíminn - 03.09.1976, Page 2

Tíminn - 03.09.1976, Page 2
2 TÍMINN Föstudagur 3: september 1976 Ákveðið að ríkisútvarpið hafi fastan starfsmann í Kaupmannahöfn FB-Reykjavík. Forrábamenn Rikisútvarpsins hafa nú ákveöib að hrinda i framkvæmd þeirri ráðagerð að senda einn af starfsmönnum sinum tii Kaup- mannahafnar til þess að stuðla að bættu samstarfi við sjón- varpsstöðvarnar á Noröurlönd- um og til þess að afla þar frétta- efnis. í ráði er, að Sonja Diego, fréttamaöur hjá Sjónvarpinu, haldi til Kaupmannahafnar áður en mjög langt um liður. Ef dvöl Sonju i Kaupmannahöfn reynist eins gagnleg og menn telja, aö hún verði, er ætlunin, að fréttamenn sjónvarpsins skiptist á um að dveljast i Kaup- mannahöfn i framtiðinni. Sjónvarpsfréttamaðurinn á að afla frétta af Norðurlöndum, vinna úr frétta- og dagskrár- efni, sem þar er fyrirliggjandi, og bjóða fram islenzkt efni. Binda sjónvarps- og útvarps- menn miklar vonir við för Sonju til Kaupmannahafnar og dvöl hennar þar, ef af verður. Fjölskylduskemmtun Flókadalsá — Veiöin gengur heldur stirðlega, og veiðimennirnir segja mér að laxinn gefi þeim bara langt nef, sagði Ingvar Ingvarsson, Múlastöðum, I sam- tali við VEIÐI-hornið i gær. — Ég ræddi við einn veiöimann fyrir skömmu, og var hann aöeins búinn að fá einn lax, en þeir, sem með honum voru, ekki neinn. Hins vegar stökk laxinn allt i kringum þá. Ingvar sagði, undanfarna daga hefði veriö gott veður og bjart. Litið vatn er i ánni, og er hún mjög tær, svo laxinn styggist fljótt. — Þrátt fyrir allt þá geri ég mér vonir um að veiðin I ár verði svipuð og I hittifyrra, en þá fengust 414 laxar úr Flókadalsá. Veiöitima likur ekki fyrr en 18. september, og nú eru komnir á land rétt um 400 laxar, sagði Ingvar. í fyrra veiddust 613 laxar I ánni og var meöalþyngd þeirra 5,2 pund. Taldi Ingvar, að meðal- þyngdin yrði svipuö I ár, en undanfarið hafa einkum veiðzt 4 til 8 punda laxar I ánni. Þyngsti laxinn enn sem komiö er vó 14 pund, en nokkrir 10 til 13 punda laxar hafa llka komið úr Flóka- dalsá. Grimsá: stærsti laxinn kom i lok ágúst Veiðin I Grimsá hefur veriö frekar dræm að undanförnu, sagði Stefán, matreiðslumaður I veiðihúsinu. — Menn hafa þó verið að fá þetta sjö laxa á stöng yfir daginn. Meöalveiði hópanna, sem dvelja hér þrjá daga i senn, hefur farið niður 120 laxa. Stærsti fiskurinn, sem veiözt hefur I sumar, kom á land þann 27. ágúst og var það veiðivörðurinn sem náði honum. A sama tlma I fyrra var komið tæplega helmingi meira af löxum á land, enda hefur áin I sumar verið meö eindæmum erfið vegna vatnavaxta. Hins vegar hefur sjatnað I ánni nú undanfarna daga, og sagði Stefán að hún væri aö komast I eðlilegt rennsli. Aðal- veiðin er ofarlega I ánni, en enn mun lax vera að ganga I hana. Það er I sjálfu sér ekki einkenni- legt, þvl að lax gekk mjög seint I Grimsá i ár, eins og fjölmargar aðrar ár. Laxá i Aðaldal. Veiðitímanum I Laxá I Aðaldal lauk á hádegi þann 31. ágúst. Að sögn Helgu Halldórsdóttur, veiði- húsinu Laxamýri, þá varð veiðin heldur minni en I fyrra, en þá veiddust 2326laxar i ánni. Meðal- þyngdin mun vera svipuð og á siöast liönu ári, eða á milli 9 og 10 pund. — Siðasta laxinn i Laxá veiddi 12 ára gamall strákur, sagði Helga. —-Hann er frá Akureyri og heitir Erling Ingvarsson. Hann fékk laxinn á Suöureyri og vó hann 6 pund. Það var ekki nóg með aö þetta væri siöasti laxinn á veiðitimabilinu, heldur var þetta einnig sá eini sem fékkst þennan dag. — Annars virðist mér veiði- mennirnir vera ánægðir með sumarið, sagði Helga. — Laxinn, sem veiðzt hefur, er góöur, og því má ekki gleyma, að veðrið hefur leikið við okkur I allt sumar. Að lokum vildi ég svo senda kveöju til allra veiðimannanna, sem hingað hafa komið i sumar og þakka þeim fyrir ánægjuleg kynni, sagði Helga ráðskona. Ártúnsá á Kjalarnesi Eins og VEIÐIHORNIÐ skýrði frá fyrir skömmu, þá var um miðjan ágúst opnuð ný veiöiá — Artúnsá á Kjalarnesi. Að sögn Jóns Gunnarssonar starfsmanns hjá Tlmanum, þá hefur veiöi verið nokkuð góð I ánni, en á land munu vera komnir á milli 60 og 70 fiskar. Þyngsta laxinn fékk Jón fyrir skömmu, og var hann 8 pund. Var þetta hrygna og veiddi Jón hana á Wooden Devon. ASK Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra heldur árlega kaffisölu sina að Sigtúni við Suðurlandsbraut sunnudaginn 5. september. Þar verða úrvals kaffiveitingar og gott meölæti. Einnig verða skemmtiatriði. Þau eru Einar og Pónik, ómar Ragnarsson, Magnús Ingimarsson og tizku- sýning frá Unni Arngrimsdóttur. Bingó verður einnig og spilaðar sex umferðir um Kanarieyjaferð, málverk, veiðileyfi, myndavél og fleira. Bingóið hefst klukkan hálf- fimm. Þetta verður sannkölluð fjölskylduskemmtun. Félagið hefur unnið að fjáröflun handa æfingastöðinni við Háaleitisbraut og starfseminni I Reykjavik, og mun (ágóðinn af skemmtuninni renna þangaö. Félagskonur treysta á velunnara félagsins að fjölmenna og leggja með þvi lið sitt nú sem endranær. Til þess aö forðast þrengsli er fólk hvatt til þess að koma timanlega. HEIMILI SKOLI SKEMMTISTAÐUR SKRIFSTOFA Gefiunar gluggatjöld þarsem umhverfíð skíptir máli ÞM Val gluggatjalda ræður alls staðar miklu um umhverfið innan dyra . . . lit þess og ljós og vellíðan þeirra, sem í því dveljast við leiki og störf. Gefjunar gluggatjöld fást í ótrúlegu úrvali bjartra lita, sem upplitast ekki og hæfa hinu margvíslegasta umhverfi. Þau eru úr dralon - úrvals trefjaefni frá Bayer, auðveld í þvotti og þarf ekki að strauja. GEFJUN AKUREYRI <^> dralon . BAYER Úrvals trefjaefni

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.