Tíminn - 03.09.1976, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Föstudagur 3. september 1976
Agústa Björnsdöttir I garöi sinum viö Hliöarveg, eins og sjá má þá vantar ekki blómaskrúöiö.
Borgarholtsbraut 32.
TO Digranesvegur 62.
SSJ Birkihvammur 1.
Umbun
fyrir að
rækta
garðinn
sinn
ASK-Rvik. Um nokkurt skeiö
hefúr sá siður viðgengizt viða
um land að bæjaryfirvöld veiti
ibúum viðurkenningar fyrir
fagra garða og snyrtilega um-
gengni. Hefur þetta að mati
margra stuölað aö þvi að mörg
bæjarfélög geta nú státað af
mun meiri snyrtimennsku en
áöur. Gera menn sér gjarnan
ferð til að sjá garða þá ög'htis
sem viðurkenningar hafa hlotið
og læra gjarnan af — fá nýjar
hugmyndir eða likja einfaldlega
eftir.
Einslik afhending viðurkenn-
inga og verðlauna fór fram i
Kópavogi fyrir skömmu. Fjórir
aðilar hlutu bæði viðurkenning-
ar og verðlaun fyrir garða sina
og ennfremur hlutu jafnmargir
aðilar viðurkenningu. Þá voru
veittar viðurkenningar fyrir
litaval á ibúðarhúsum, en af
eðlilegum ástæðum, verða ekki
birtar myndir af þeim húsum
hér i blaðinu. í fyrsta sinn var
veitt viðurkenning fyrir snyrti-
legan frágang iðnaðarhúss og
lóðar, en það er nokkuö sem
fleiri bæjarfélög mættu gjarnan
taka upp.
Eins og á undanförnum árum
lögðu Rotary- og Lionsklúbbar
Kópavogs til tvenn verðlaun og
Fegrunarnefndin önnur tvenn.
Viðurkenningu og verölaun
hlaut garður þeirra hjónanna
Hildar Kristinsdóttur og Gunn-
ars Þorleifssonar, en þau búa að
Fögrubrekku 47. Óhætt mun að
fullyröa, að þau voru vel að
þeim komin, þvi þvi að garöur-
inn er heill ævintýraheimur.
Þarna má lita gamla bobbinga á
lóðarmörkum og eins mjólkur-
brúsa sem gegnir hlutverki
blómsturspotts. Þá hafa þau
hjónin gert lltinn læk I garöinum
og er á lækjarbakkanum stór
steinn sem á hangir ausa. En
það er fleira sem gripur athygli
áhorfandans. Þarna eru neta-
kúlur sem hengdar eru á fallega
lagaöan trjádrumb, en á honum
eru einnig partar af gömlum
tannhjólum og neðst gefur á að
lita keðjubút.
t garðinum er lika nokkurs
konar eftirlikingaf burstabæ, en
fyrir dyrum stendur barnabarn
þeirra hjóna. Drenginn má
einnig siá viö gosbrunninn, en
hann er gerður úr steinskel sem
fannst á Suöurnesjum. Þvi mið-
ur gefst ekki rúm fyrir fleiri
myndir úr garðinum, en þar er
m.a. steinskúlptúr úr fjöru-
steinum og gamlar hjólbörur
sem notaðar eru undir blóm.
Hugmyndaflugið hefur verið ó-
spart notað við skipulagningu
garðsins og ætti það að vera
mörgum lærdómsrikt aö fara og
sjá hann.
Aðrir sem hlutu verölaun og
viðurkenningar I ár voru Gyð-
riöur Pálsdóttir og Páll Mart-
einsson, en þau búa aö Borgar-
holtsbraut 32. Þá fékk Þórdls
Lúðviksdóttir og Björgvin
Ólafsson, Birkihvammi 1, viö-
urkenningu og verölaun fyrir
mjög snyrtilegan og vel um-
genginn . garð. Og Agústa
Björnsdóttir, REIN við Hliöar-
veg, en hún rekur þar gróður-
stöð. Viðurkenninguna hlaut
hún fyrir gróðrastöðina REIN
og þátt hennar I aukinni ræktun-
armenningu bæjarbúa.
Ennfremur hlutu eftirtaldir
garðar viöurkenningu: Borgar-
holtsbraut 30, eig. Elin Jakobs-
dóttir og Oddur Brynjólfsson.
Holtagerði 41, eig. Inga
Thorlacius og Ingvar Þorgils-
son. Hlégerði 23, eig. Ragnhild-
ur G. Egilsdóttir og Kristján
Jónsson. Digranesvegur 62, eig.
Helga Tómasdóttir og Árni Kr.
Hansson.
Fyrir litaval á ibúðarhúsum
voru veittar viðurkenningar til
ibúa að Nýbýlavegi 45a og
Digranesvegi 14. Að lokum
fengu forráðamenn Skeifunnar,
Smiöjuvegi 6, viðurkenningu
fyrir snyrtilegan frágang húss
þeirra.
Tímamynair Gunnar