Tíminn - 02.10.1976, Blaðsíða 8
TÍMINN
Laugardagur 2. október 1976
Samkomuhúsið á Akureyri, var eitt glæsilegasta hús bæjarins á slnum tftna. Nú er þao oröiö aldio aí) árum og fullnægir ekki kröfum nútimans nema aö takmörku.bu leyti.
1 Samkomuhúsinu hefur Leikfélag Akureyrar alla sina starfsemi, jafnt við æfingar sem sýningar.
Leikfélag Akureyrar stefnir að
blómlegri vetrarstarfsemi
KS-Akureyri- Starfsár Leikfélags
Akureyrar hófst 1. september. Þá
var byrjaö á undirbúningi vetrar-
starfsins, og nú standa yfir æf-
ingar á leikritinu Karlinum i
kassanum. Er fyrirhugaö, að
sýningar á leikritinu hefjist um
niiöjan október.
Aö sögn Eyvindar Erlends-
sonar, framkvæmdastjóra leikfé-
lagsins, er áætlaö að taka fyrir á
pessu leikári a.m.k. fimm verk-
Sigurveig Jónsdóttir, skrifar nokkurs konar stundaskrá fyrir
leikfélagiö, og er þaö ætið verkefni.
efni, og eins og fyrr sagði, verður
það fyrsta Karlinn i kassanum,
sem er skopleikur i þrem þáttum
eftir Arnold og Bach, og þýtt af
Emil Thoroddsen. Leikarar I þvi
verki verða 13. Af öðrum leikrit-
um, sem fyrirhugaö er að setja á
svið á leikarinu, má fyrst telja
Sabinu,eftir Hafliða frá Bildudal.
Mun það verk vera hans fyrsta
stórverk, sem sett er á svið, og
munþaðm.a.hafa komiðmjög til
álita hjá leikhúsíólki á " h'ofuð-
borgarsvæðinu.
Siðan verður Oskubuska, eftir
Ewgeni Swartch tekið fyrir en
Eyvindur Erlendsson er nú að
skrifa verkið i leikhúsform fyrir
L.A. og munu sýningar þess leik-
rits hefjast upp úr áramótum. Þá
er gamanleikurinn Skýin eftir
Aristofanes, og mun það leikrit
aldrei hafa verið leikið hérlendis
áður, en Karl Guðmundsson
leikari hefur nýlega þýtt verk
þetta á Islenzku.
Að lokum er einnig á dagskrá,
ef viðunandi fyrirgreiösla fæst, að
finnskileikstjórinn Kristfn Olsone
komi til Akureyrar og setji upp
eitt verk hjá L.A. Væntanlega
yrði það slðari hluta vetrar og þá
um leið siöasta verkefnið, sem
leikfélagið tæki fyrir á starfs-
árinu.
Þessi framántöldu verk eru á
margan hátt mjög óskyld, en eiga
það samt sameiginlegt að vera öll
á vissan hátt mjög óskyld, en eiga
ákveðnum timum leiklistarsög-
unnar, sagöi Eyvindur.
Það fyrsta, Karlinn I kass-
anum, er einkennandi fyrir tlma-
bilið 1920-1930, þegar revlurnar
voru upp á sitt bezta. „Samtima-
satira'' eftir Hafliða, en hún hefur
alltaf verið til. Ævintýraleikurinn
Oskubuska hið klassiska ævin-
týri. Hin klassiska grlska
komedia, meö kór og þvl sem til-
heyrir sllku verki og að slðustu er
miðað að komediu-del-arte, skop-
leik með músik, trúðleikurum og
fl.
Nú eru fastráðnir starfsmenn
hjá Leikfélagi Akureyrar 9 tals-
ins, þar af 5 leikarar. Siðasta leik-
ár var metár, hvað aðsókn
snertir, I sögu félagsins, en engu
að slður höfum við þurft að beita
öllum tiltækum ráðum til þess að
ná saman endum og til þess að
halda félaginu á réttum kili, sagði
Eyvindur Erlendsson aö lokum.
Mikil átök þarf til að flytja planóið til á sviðinu. Hér eru þau
Eyvindur, Aðalsteinn, Sigurveig og Gestur að færa það til og
virðast til þess hvergi spara kraftana.
Hér fser Aðaisteinn Bergdal hjálp frá Eyvindi viö að koma á sig
hárkollunni.
Gestur Einar Jónasson, málar leiksviðið af mikium móði.