Fréttablaðið - 21.11.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
21. nóvember 2005 — 315. tölublað — 5. árgangur
RAGGI BJARNA
Fríkirkjuvegur 11
í uppáhaldi
fasteignir • hús
Í MIÐJU BLAÐSINS
SKOÐANAKÖNNUN „Þetta eru stór-
kostlegar tölur en við höfum ekki
haft neina beina vitneskju um hver
afstaða Íslendinga væri í þessu
máli,“ sagði Hrafnhildur Gunnars-
dóttir, formaður Samtakanna ‘78,
þegar hún var innt eftir viðbrögð-
um við niðurstöðum nýrrar skoð-
anakönnunar Fréttablaðsins, sem
sýna að rúm 82 prósent eru því
fylgjandi að lesbíur í sambúð fái að
eignast börn með gjafasæði.
„Þetta eru mun betri tölur en ég
hafði giskað á,“ segir Hrafnhildur
og taldi þessar niðurstöður bera
vitni um þá skynsemi sem Íslend-
ingar hafa sýnt í þessu máli. „Við
höfum haft grun um að þjóðin
væri komin fram úr löggjafanum
í þessu máli og þessar tölur sýna
það,“ segir hún og telur viðhorf
þjóðarinnar vera allt annað en
fyrir tíu árum. „Þetta kemur því
ánægjulega á óvart.“
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra gladdist mjög yfir þessum
niðurstöðum og sagði þær sýna
hversu umburðarlynd þjóð Íslend-
ingar væru. „Þetta mál er þess eðlis
að þetta kemur mér ekki á óvart. Ég
er mjög ánægður að sjá að stjórn-
völd skuli í þessu máli vera á leið
sem fellur þjóðinni í geð.“
Árni taldi ennfremur mjög
mikilvægt að þjóð og þing væru
samstiga í þessum efnum og það
væri það sem nú ætti sér stað.
Frumvarp Halldórs Ásgrímssonar
forsætisráðherra mun taka á þessu
máli og Árni taldi því að nú væri
horft fram á bjartari, frjálslyndari
og umburðarlyndari tíma.
Sjálfur segist félagsmálaráð-
herra vera mjög eindreginn í
afstöðu sinni til þessa máls sem
hann telur sjálfsögð réttindi
- fgg / sjá síðu 4
Á AÐ HEIMILA LESBÍU Í
SAMBÚÐ AÐ GANGAST UNDIR
TÆKNIFRJÓVGUN MEÐ
GJAFASÆÐI?
NEI
17,7%
JÁ, 82,3%
Íslendingar vilja að lesbíur fái að eignast börn með gjafasæði:
Sýnir umburðarlyndi fólks
BJART MEÐ KÖFLUM norðan
og austan til en yfirleitt skýjað annars
staðar og hætt við litilsháttar skúrum
eða éljum hér og hvar á vesturhluta
landsins. Rigning suðaustan til í kvöld.
Hiti 0-6 stig. VEÐUR 4
Björk er fertug í dag
Björk Guðmundsdótt-
ir er sá Íslendingur
sem lengst hefur
náð á listasviðinu
og hefur Ísland not-
ið góðrar kynningar
í gegnum vinsældir
hennar.
TÍMAMÓT 22
ARI ALEXANDER ERGIS
Snæddi hádegisverð með
Andy Garcia í Los Angeles
Staldrar stutt við heima og heldur til Hollands
FÓLK 42
Þekking eyðir ótta
Sá sem þjáist af geðklofa er oft ekki
fær um að bera
hönd fyrir höfuð
sér og berjast
fyrir sjálfsögðum
mannréttindum
og virðingu í
samfélaginu, segir
Vala Lárusdóttir.
UMRÆÐAN 20
GÍSLI ÖRN GARÐARSSON:
Leikur aðalhlutverk hjá
Kneehigh leikhópnum
Hlakkar til að vera bara leikari í London
FÓLK 42
KAUPMÁTTUR Kaupmáttur ráðstöf-
unartekna meirihluta aldraðra
hefur ekki hækkað neitt í líkingu
við það sem stjórnvöld vilja meina
samkvæmt nýjum útreikningum
Landssambands eldri borgara.
Sýna þeir útreikningar að kaup-
máttur ráðstöfunartekna venju-
legs ellilífeyrisþega frá árinu 1995
hefur aðeins hækkað um tæp tíu
prósent og í raun lækkað sé farið
aftur til ársins 1988.
Dæmi er tekið af ellilífeyris-
þega sem er í sambúð. Meðaltekj-
ur hans úr lífeyrissjóði eru 47.600
krónur sem þýðir að kaupmáttur
ráðstöfunartekna hans hefur auk-
ist um 9,6 prósent frá 1995. Sé farið
lengra aftur, til ársins 1988, hefur
kaupmáttur þessa sama manns
beinlínis rýrnað um 1,6 prósent.
Sé litið á þróun kaupmáttar
ráðstöfunartekna ellilífeyrisþega
með enn hærri tekjur úr lífeyris-
sjóði er staðan enn verri. Þannig
hefur kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna einstaklings með 144 þús-
und króna ellilífeyri aðeins aukist
um 2,1 prósent síðustu tíu ár.
Þessar tölur eru í ósamræmi
við yfirlýsingar Halldórs Ásgríms-
sonar að almennur kaupmáttur
ráðstöfunartekna hafi aukist hér-
lendis um allt að 60 prósent á síð-
ustu tíu árum.
Gögn þessi hafa þegar verið
lögð fram fyrir sérstaka samráðs-
nefnd um öldrunarmál, en þar
sitja þeir Pétur Guðmundsson og
Einar Árnason frá Landssambandi
eldri borgara auk þeirra Hall-
gríms Guðmundssonar og Eyþórs
Benediktssonar frá fjármálaráðu-
neytinu og Hrannar Ottósdóttur
og Jóns Sæmundar Sigurjónsson-
ar frá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti.
Pétur segir engar athugasemd-
ir hafa verið gerðar við útreikn-
ingana enda gefi þeir rétta mynd
af raunverulegri stöðu mála
meðal aldraðra og ekkert hægt að
véfengja þar. „Það er staðreynd að
ellilífeyrisþegar hafa setið eftir
og allt tal um annað er bara þessi
venjulegi leikur að tölum sem
embættismenn eru svo hrifnir af í
því skyni að slá ryki í augu fólks.“
Pétur hefur um alllangt skeið
staðið í eldlínunni fyrir eldri
borgara en segist ekki sérstak-
lega bjartsýnn hvað varðar störf
þeirrar nefndar sem hann situr
nú í. „Nei það get ekki sagt. Það er
ekkert nýtt að okkur er oft ýtt til
hliðar en ég hefði kannski haldið
að þar sem líða fer að kosningum
að þessir háu herrar hefðu vit á
að taka betur á móti okkur gamla
fólkinu enda stór hópur sem hefur
kosningarétt.“
- aöe / sjá síðu 6
Kjör aldraðra batna minnst
Tölur forsætisráðherra um að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna hafi aukist um 60 prósent á síð-
ustu tíu árum eiga ekki við um meirihluta aldraðra. Kaupmáttur þeirra hefur aðeins aukist um tæp tíu
prósent á sama tíma. Sé horft aftur til ársins 1988 hefur kaupmáttur ellilífeyristekna í raun lækkað.
Aftur á sigurbraut
Fram komst aftur á beinu brautina
í gær þegar liðið
heimsótti bikarmeist-
ara ÍR í Breiðholtið.
Heimavöllurinn
hélt aftur á móti í
Digranesi þegar
FH heimsótti
HK.
ÍÞRÓTTIR 38
BANASLYS Maður á sextugsaldri
lést eftir að bíll hans fór útaf
veginum í Norðurárdal í Borgar-
firði í gærdag skammt ofan við
bæinn Sveinatungu og endaði
úti í Norðurá. Að sögn sjónar-
votta missti maðurinn stjórn á
bíl sínum en töluverð hálka var
á þessum slóðum. Var maðurinn
úrskurðaður látinn á slysstað.
Lögreglunni í Borgarnesi
barst tilkynning um slysið rétt
fyrir klukkan hálf þrjú. Aðstæð-
ur á slysstað voru mjög erfiðar
en bíllinn var á kafi í ánni og
gekk á með éljum. Í fyrstu var
óttast að fleiri hefðu verið í bíln-
um en síðar kom í ljós að maður-
inn var einn á ferð.
Alls komu um 25 manns að
björgunaraðgerðum, lögregla,
slökkvilið, sjúkraflutninga-
menn og björgunarsveitarmenn
en björgunarstarfi lauk um sjö
leytið í gærkvöldi.
Ekki er unnt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
- fgg
Banaslys í Borgarfirði:
Bíll lenti úti í
Norðurá
AMIR PERETZ FÆR HLÝJAR MÓTTÖKUR HJÁ STUÐNINGSMÖNNUM SÍNUM Í GÆR Ísraelski verkamannaflokkurinn hefur heldur betur hrist
upp í ísraelskum stjórnmálum undanfarið, fyrst með því að kjósa sér herskáan verkalýðsleiðtoga í formannsembættið, og svo í gær með
því að samþykkja tillögur nýja leiðtogans um að slíta stjórnarsamstarfi við Ariel Sharon og Likud-flokkinn. Í gærkvöld skýrði útvarp ísra-
elska hersins einnig frá því að Ariel Sharon hefði sagt skilið við Likud-flokkinn. MYND/AP