Fréttablaðið - 21.11.2005, Qupperneq 2
2 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
BYGGÐAMÁL Stjórn Byggðastofn-
unar tók ákvörðun um það í lok
október að stöðva allar lánveiting-
ar í bili. Að sögn Aðalsteins Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra
Byggðastofnunar, var stofnunin
komin undir þau mörk sem fjár-
málaeftirlitið setur varðandi eig-
infjárhlutfall fjármálastofnana.
„Okkur þótti því skynsamleg
afstaða að staldra aðeins við.
Hvað þetta ástand varir lengi þori
ég ekki að segja til um eins og er,
en það er nefnd á vegum iðnaðar-
ráðherra að fara yfir stöðu stofn-
unarinnar í ljósi þess að rekstrar-
umhverfið hefur breyst.“
Aðalsteinn kveðst ekki gera
aðrar kröfur til stjórnvalda nema
að þau taki afstöðu til hlutverks
Byggðastofnunar og með hvaða
hætti hún eigi að starfa. Sjálf-
ur telur hann þörf fyrir lána-
starfsemi af þessu tagi, því þótt
þjónusta banka og fjármálafyrir-
tækja hafi aukist undanfarin ár
og aðgengi að fjármagni aukist,
séu enn mörg brýn verkefni sem
bankarnir vilja ekki fjármagna.
„Ég á bágt með að tjá mig um
einstök dæmi, þar sem það hvílir
bankaleynd á þessum viðskiptum,
en nýlega var sagt frá því í frétt-
um að Landsbankinn vildi ekki
veita lán til byggingar kalkþör-
ungaverksmiðju á Bíldudal. Ég
myndi segja að þetta væri skýrt
dæmi um að það er enn þörf fyrir
stofnun á borð við Byggðastofn-
un.“
Aðalsteinn segist sjá Byggða-
stofnun áfram sem fjármálastofn-
un, en nýrri stefnumótun, sem
stendur yfir núna, verði að vera
lokið fyrir áramót. „Við erum
komnir í klemmu hvað varðar
lagaskilyrði gagnvart fjármála-
eftirlitinu og það eitt og sér veldur
því að stofnunin gæti misst starfs-
leyfið verði ekki brugðist við.“
Þá bendir hann á að bág fjár-
hagsstaða Byggðastofnunar hafi
blasað við lengi og sú endurskoð-
un sem á sér stað núna hefði átt að
fara fyrr af stað og ganga hraðar
fyrir sig. „En það er kominn full-
ur kraftur í það starf núna og ég á
von á að því ljúki fyrir áramót.“
Ekki náðist í Valgerði Sverr-
isdóttur iðnaðarráðherra vegna
málsins. bergsteinn@frettabladid.is
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Össur, ertu fimm prósenta
virði?
„Elskan mín, ég er að minnsta kosti af
rauðvínsstyrkleika!“
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins
hefur fylgi Samfylkingarinnar dalað um
tæp fimm prósent eftir að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir tók við formennsku af Össuri
Skarphéðinssyni.
AÐALSTEINN ÞORSTEINSSON Byggðastofn-
un var komin undir mörk sem yfirvöld setja
um eiginfjárhlutfall fjármálastofnana.
FRÉTTABLAÐIÐ/ HILMAR GUÐMUNDSSON
FRAMKVÆMDIR Á BÍLDUDAL Bygging kalkþörungaverksmiðju komst í uppnám eftir að Landsbankinn vildi ekki lána fé til framkvæmdanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ JSE
Byggðastofnun hætt að lána
Byggðastofnun hefur stöðvað allar lánveitingar vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Framkvæmdastjóri segir að
þrátt fyrir bætta þjónustu séu mörg brýn verkefni sem bankarnir vilja ekki fjármagna á landsbyggðinni.
BYGGÐAMÁL Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, boðaði í apríl síðastliðnum
úttekt á starfsemi Byggðastofnun-
ar. Í september lagði Anna Kristín
Gunnarsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, fram fyrirspurn
þar sem hún spurði hvað úttektinni
liði, hvort niðurstöður lægju fyrir,
hvernig ætti að nýta þær og hvort
sú vinna hefði hafist.
Í síðustu viku svaraði Valgerður
Önnu Kristínu og sagði að úttekt-
in hefði verið gerð og lægi fyrir í
iðnaðarráðuneytinu þar sem hún
væri aðgengileg fyrir þingmenn.
„Síðan hafa starfsmenn þings-
ins reynt að nálgast þessa úttekt
fyrir mína hönd í tvo daga en
árangurslaust,“ segir Anna Krist-
ín. „Mér var lofað að hún yrði send
strax, en ekkert gerðist. Ég talaði
við ritara ráðherra á föstudag og
var lofað að úttektin yrði send rak-
leiðis. Heima beið mín sending frá
ráðuneytinu en það var allt önnur
skýrsla en ég hafði beðið um. Mér
finnst þetta mál afar undarlegt.“
Anna Kristín segir að á þess-
ari skýrslu hafi átt að byggja nýja
stefnumótun Byggðastofnunar og
þótt sú vinna sé hafin er úttektin
forsenda nýrrar stefnumótunar.
Ekki náðist í Valgerði Sverris-
dóttur vegna málsins. - bs
Alþingismaður leitar svara um Byggðastofnun:
Fær úttektina ekki afhenta
ANNA KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR Kveðst hafa ítrekað beðið um úttektina en án árangurs.
FRÉTTABLAÐIÐ/ HARI
FELLIBYLUR Minnst níu létust og
tugir slösuðust þegar fellibylur-
inn Gamma gekk yfir Hondúras
í fyrrinótt. Honum fylgdi mikið
úrhelli og bárust víða að tilkynn-
ingar um flóð og skriður og talið
líklegt að mun fleiri hafi látist.
Stjórnvöld höfðu áður flutt tíu
þúsund manns á brott frá þeim
stöðum sem fellibylurinn gekk
yfir en eyðileggingin var mikil.
Þúsundir eru heimilislausir og
vegir og ræktunarsvæði illa
farin.
Fellibylurinn Gamma er
númer 24 í röð þeirra storma
og fellibylja sem komið hafa að
landi einhvers staðar í Mexíkó-
flóa eða í Karíbahafinu á þessu
ári og hafa þeir aldrei áður verið
fleiri.
Enn er mikill styrkur í
Gamma og gera veðurfræðingar
ráð fyrir að hann komi næst að
landi við vesturströnd Kúbu og
fari þaðan áleiðis til Jamaíku.
Stormviðvaranir hafa verið
gefnar út á báðum stöðum. ■
Fellibylurinn Gamma reið yfir Hondúras í fyrrinótt:
Níu manns látnir og tugir slasaðir
UPPBYGGING FRAMUNDAN
24. fellibylur ársins olli miklu búsifj-
um í Hondúras og í Belís og mikið
starf framundan fyrir íbúa.
AFP.NORDICPHOTOS/AFP
Beltin björguðu Bíll valt við Þor-
geirsstaði í Lóni aðfaranótt sunnu-
dags. Þrennt var í bílnum en enginn
slasaðist. Bæði ökumaður og farþegar
voru í bílbeltum og mun það hafa gert
gæfumuninn. Bíllinn skemmdist mikið
og er jafnvel ónýtur. Þá hafði lögreglan
í Höfn afskipti af fjórum ökumönnum
LÖGREGLUMÁL
Árekstur á Kársnesbraut Tveir bílar
rákust harkalega saman á Kársnesbraut
í gær. Annar ökumaðurinn var fluttur á
slysadeild en meiðsl hans reyndust ekki
alvarleg. Bæði ökutækin voru óökufær
og dregin í burt. Á laugardagsnótt hafði
lögreglan afskipti af tveimur ökumönn-
um sem grunaðir voru um ölvunarakst-
ur. Snemma á sunnudagsmorgun var
þriðji ökumaðurinn stöðvaður grunaður
um ölvun.
BANDARÍKIN
Saklaus tekinn af lífi? Efasemdir
hafa vaknað um að maður sem var
tekinn af lífi í Texas fylki árið 1993 fyrir
hrottalegt morð hafi verið sekur. Árið
1985 var hinn 17 ára gamli Ruben Cantu
dæmdur til dauða fyrir morð árið áður.
Eina vitnið hefur nú breytt framburði
sínum og segist hafa bent á Cantu
vegna þrýstings frá lögreglu.