Fréttablaðið - 21.11.2005, Síða 6
6 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
Sæ
ti
M E
T S
Ö L
U L
I S T
I
Pen
nan
s/E
ym
und
sso
nar
9.
-1
5.
nó
vember
Handbækur, fræðib
æk
ur
og
æ
vi
sö
gu
r
Sæ
ti
Me
tsö
lul
ist
i M
bl.3
1.
10
.-1
4. 11.
Ævisö
gu
r
HE I L LANDI
ÆVISAGA
Uppgjör
brautryðjanda
„Edda Andrésdóttir heldur fimlega
um penna ... svo úr verður bæði lífleg
og fróðleg frásögn ... bók sem ætti
að bæta margan manninn.“
—Sigríður Albertsdóttir, DV
„Skyldulesning.“
—Hemmi Gunn, Íslandi í bítið.
Bók sem setur
kardímommur í dagana!
B Ó K A F O R L A G
B R Æ Ð R A B O R G A R S T Í G 9 , S Í M I 4 1 4 1 4 5 0
w w w . v e r o l d . i s • v e r o l d @ v e r o l d . i s
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
V
ER
3
03
01
1
1/
20
05
Auður Eir og Edda Andrésdóttir
KJÖRKASSINN
Er eftirsjá af Alfreð Þorsteinssyni
úr borgarpólitíkinni?
Já 31%
Nei 69%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Mun Björn Ingi Hrafnsson leiða
Framsóknarflokkinn í næstu
borgarstjórnarkosningum?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
DANMÖRK Fjöldi innflytjenda í
dönskum sveitarstjórnum jókst
töluvert eftir sveitarstjórnakosn-
ingarnar á þriðjudag. Verða þeir
nú 67 talsins en voru á síðasta
kjörtímabili 50.
Samkvæmt frétt Politiken í
gær eru 8 af 55 borgarfulltrúum í
Kaupmannahöfn af erlendu bergi
brotnir en þar sem hlutfallið er
hæst eru þeir fjórðungur bæjar-
fulltrúa.
Flestir eru í Jafnaðarmann-
aflokknum eða 38 talsins en 11
koma frá hinum stóra flokknum,
Venstre.
Fylgi þessara tveggja flokka
var álíka í kosningunum. - ks
Sveitarstjórnir í Danmörku:
Innflytjendum
fjölgar
HÚSNÆÐISMÁL „Kostnaður allur við
lántöku íbúðarlána hér á landi er
meiri en gerist og gengur erlend-
is, en hve mikill hann er kemur
mér á óvart,“ segir Sigurður
Helgi Guðjónsson, formaður Hús-
eigendafélagsins.
Neytendasamtökin kynntu í vik-
unni úttekt sína á lántökukostnaði
vegna íbúðarkaupa hérlendis og í
níu öðrum löndum Evrópu. Kom
þar fram skýr munur á kostnaði
íslenskum neytendum í óhag.
Sigurður Helgi segir svo margt
óskiljanlegt við þá gjaldtöku sem
hér fari fram. „Lántökugjaldið til
að mynda er eitthvað sem ég skil
ekki. Þar er viðskiptavinurinn að
greiða sérstakt gjald fyrir að eiga
viðskipti við lánastofnunina þegar
það í raun ætti að vera öfugt.
Þetta gjald er óréttlátt og fleinn
í okkar holdi.“ Sigurður segir að
lengi hafi verið lýst yfir vilja til að
fella burt stimpilgjöld en þau séu
enn á sínum stað í dag og ekkert
gerst. Einnig sé Ísland eina land-
ið sem noti verðtryggingu og það
séu leifar gamalla tíma og eigi að
fella út.
Sigurður segir að Húseigenda-
félagið muni á næstunni leita
samstarfs við Neytendasamtökin
og jafnvel umboðsmann neytenda
um að knýja fram breytingar á
stöðu mála sem augljóslega komi
niður á íslenskum íbúðarkaup-
endum og kannski verst niður á
unga fólkinu sem er að kaupa sína
fyrstu eign. - aöe
Formaður Húseigendafélagsins um há lántökugjöld vegna húsnæðiskaupa:
Munurinn kemur á óvart
SKÝRSLAN KYNNT Lántökukostnaður er hár og vextir mun hærri hér á landi en í flestum
öðrum löndum Evrópu samkvæmt könnun Neytendasamtakanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BEIJING, AP Forsetar Bandaríkj-
anna og Kína hittust í Alþýðu-
höllinni í Peking í gær, rétt hjá
Torgi hins himneska friðar.
George W. Bush skrapp í
heimsókn til Kína og lagði hann
mikla áherslu á að kínversk
stjórnvöld veittu íbúum landsins
meira frelsi. Hann fékk einnig
endurnýjuð loforð frá Hu Jintao
um að opna hinn gríðarstóra kín-
verska markað fyrir bandarísk-
um vörum, án þess þó að þeim
loforðum hafi enn fylgt neinar
áþreifanlegar efndir.
Heimsóknin virtist skila
litlum árangri í öðrum málum
sem Bandaríkjamenn hafa lagt
áherslu á, svo sem kröfur þeirra
um umbætur Kínverja í gjald-
eyrismálum.
Þetta er í þriðja sinn sem
Bush kemur til Kína í forseta-
tíð sinni. Frá Kína hugðist hann
halda áfram í dag til Mongólíu,
en þangað hefur enginn Banda-
ríkjaforseti lagt leið sína enn
sem komið er.
Íbúar Mongólíu virðast gera
sér vonir um að Bush muni heita
þeim meiri aðstoð í efnahags-
málum. ■
George W. Bush í þriðju Kínaheimsókn sinni:
Ætlar til Mongólíu í dag
BUSH Í KÍNA
Bandaríkjaforseti gretti sig í gamni fyrir
ljósmyndara í Kína í gær.
ELLILÍFEYRISÞEGAR „Þetta hefur
verið stefna þessarar ríkisstjórn-
ar alla tíð frá 1996 að gefa elli-
lífeyrisþegum enga hlutdeild í
þeirri uppsveiflu sem ríkt hefur
hér undanfarin ár og þetta er
staðfesting á því.“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar.
Hún vitnar þar í gögn þau er
komið hafa fram á fundum sam-
ráðsnefndar um öldrunarmál en
samkvæmt þeim gögnum hefur
þróun kaupmáttar ráðstöfunar-
tekna venjulegs ellilífeyrisþega í
sambúð verið úr öllum takti við þá
60 prósenta aukningu sem forsæt-
isráðherrann, Halldór Ásgríms-
son, segir hafa átt sér stað hjá
heimilunum í landinu síðustu tíu
ár. Tölur Landssambands eldri
borgara benda til að kaupmáttur
sömu ráðstöfunartekna aldraðra
hafi á sama tíma aðeins vaxið um
tæp tíu prósent.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, við-
urkennir að tölurnar séu réttar.
„Þetta er ekki alveg jafn einfalt
og þetta hljómar. Kaupmáttur
þeirra allra lægstu hefur hækk-
að meira en þessar tölur gefa til
kynna. Öllu máli skiptir að kaup-
mátturinn hefur hækkað. Auðvit-
að munar töluvert í prósentum en
á það ber að líta að mikið launa-
skrið hefur orðið í þjóðfélaginu á
þessum tíma og það hefur mikil
áhrif auk annarra þátta. En þetta
er ekkert nýtt heldur mál sem er
stöðugt í umræðunni og við vitum
af þessu.“
Ingibjörg Sólrún segir þetta
hafa verið skipulagt allar götur
frá því þessi stjórn tók við völd-
um. „Það fyrsta sem þessi stjórn
gerði á sínum tíma var að aftengja
lífeyri og laun og það hefur haft í
för með sér að margir ellilífeyr-
isþegar eru á vonarvöl og það er
hægt að segja að stjórnin hafi
með þessum aðgerðum sínum
tekið góðærið af ellilífeyrisþeg-
unum. Þeir hafa alls ekki notið
þess og það er ekkert sem hefur
gerst óvart. Þetta hefur verið
hrein og bein stefna síðan þessi
ríkisstjórn tók við. Sinnuleysið er
algjört.“
albert@frettablaðið.is
Algjört sinnuleysi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir það hafa verið stefnu þessrar ríkisstjórnar frá
upphafi að leyfa öldruðum ekki að taka þátt í því góðæri sem hér hefur verið.
Það sanni útreikningar Landssambands eldri borgara.
GÓÐÆRIÐ TEKIÐ AF ELLILÍFEYRISÞEGUM Ellilífeyrisþegar hafa misst af góðærinu og kaupmáttur þeirra að jafnaði aðeins aukist um tíu
prósent á tíu árum.
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
JÓN KRISTJÁNSSON