Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 8
8 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
SPÁNN Spánverjar minntust
þess í gær að þá voru liðin 30 ár
síðan einræðisherrann Francisco
Franco lést og grunnur var lagð-
ur að því lýðræðislega ríki sem
Spánn er í dag.
Var þéttsetinn bekkurinn í
dómkirkjunni í Dal hinna föllnu
skammt frá höfuðborginni Madríd
þar sem Franco er grafinn en þar
var haldin messa. Spánverjar
eru margir hverjir enn klofnir í
afstöðu sinni til einræðisherrans
og fóru bæði fram göngur til minn-
ingar um hann en einnig göngur
til að minnast fórnarlamba hans
víða í borgum á Spáni.
Enn þann dag í dag finnast
fjöldagrafir í landinu þar sem
fórnarlömb dauðasveita hans
liggja, en þrátt fyrir það er 40 ára
ógnarstjórn hans að mestu ókunn
ungu fólki. Nýleg könnun sýnir að
einn af hverjum þremur Spánverj-
um vissi ekki að Franco hrifsaði
völdin af lýðræðislega kjörinni
stjórn á sínum tíma. -aöe
Verð einungis
1.750 kr. í hádeginu
2.200 kr. föstudagskvöld (nýtt)
Í tilefni Þakkagjörðardagsins 24. nóvember
2005 bjóðum við upp á hina árlegu
kalkúnaveislu að hætti Bandaríkjamanna.
Einungis þrjú skipti.
Í hádeginu fimmtudaginn 24. nóvember
og föstudaginn 25. nóvember.
Nýjung í ár:
Kalkúnaveisla föstudagskvöldið 25. nóvember.
Borðapantanir í síma
511 6030
Ath! Í fyrra komust færri að en vildu.
Pantið tímanlega.
Eftirréttur og kaffi
að loknu
kalkúnahlaðborði
BANGKOK, AP Thaksin Shinawatra,
forsætisráðherra Taílands, sagðist
í gær ekki ætla að svara neinum
spurningum fréttamanna fyrr en
á næsta ári vegna þess hve stjörn-
urnar eru honum óhagsstæðar um
þessar mundir.
Forsætisráðherrann segir að
sér stafi mikil hætta af reiki-
stjörnunni Merkúr, eins og staðan
er í stjörnukortunum núna.
„Merkúr er ekki góður, og úr
því hann er ekki góður, þá ætla ég
að fara fram á það að segja ekkert.
Ég verð bara að bíða fram á næsta
ár eftir því að tala,“ sagði Thaksin
við fréttamenn þegar hann var að
koma aftur heim til Taílands eftir
ferðalag til Suður-Kóreu og Kína.
Hann bætti því við að Merkúr
hreyfðist hægt og yrði ekki hættur
að ógna sér fyrr en á næsta ári.
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heitir frambjóðandinn sem mun leiða lista sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði?
2 Í hvaða borg á Englandi var lög-reglukona myrt á föstudaginn?
3 Hver er miðborgarprestur?
JERÚSALEM, AP Verkamannaflokk-
urinn í Ísrael samþykkti í gær á
flokksþingi að slíta stjórnarsam-
starfi við Ariel Sharon og Likud-
flokkinn. Félagar í Verkamanna-
flokknum fóru þar að vilja nýs
leiðtoga flokksins, Amirs Peretz,
sem segir stjórnina hafa aukið
fátækt í landinu.
Kosningar áttu að fara næst
fram í nóvember á næsta ári, en
nú verður þeim líklega flýtt þang-
að til í mars.
Sjálfur er Sharon sagður velta
því mjög fyrir sér að yfirgefa
Likud-flokkinn, sem hann átti
þátt í að stofna árið 1973. Hann
hefur ekki gefið frá sér neina
yfirlýsingu um þetta, en ýmsir
stjórnmálamenn og fjölmiðlar í
Ísrael telja töluverðar líkur á því
að hann muni stofna nýjan flokk
eftir klofning í Likud út af brott-
flutningi hersins frá Gazasvæð-
inu.
Láti hann verða af því mun
pólitískt landslag verða gjör-
breytt þegar til kosninga kemur.
Þar að auki eru Palestínumenn
núna að farnir búa sig undir kosn-
ingar, sem verða haldnar 25. jan-
úar. Hamas-hreyfingin, sem ber
ábyrgð á ýmsum ofbeldisverk-
um, býður í fyrsta sinn fram til
kosninga og gæti árangur hennar
í grafið undan stjórn Mahmoud
Abbas, leiðtoga Fatah-hreyfing-
arinnar sem til þessa hefur farið
með völdin í Palestínu.
Peretz, sem hefur um langa hríð
verið harðskeyttur verkalýðsleið-
togi, kennir bæði Ariel Sharon og
Benjamin Netanjahú, fyrrverandi
fjármálaráðherra stjórnarinnar,
um að fátækt hafi aukist og hinir
fátæku hafi verið „auðmýktir“.
Varðandi deilur Ísraelsmanna
og Palestínumanna sagðist Peretz
fylgja því að sameinuð Jerúsalem
verði höfuðborg Ísraels, auk þess
sem hann segist andvígur því að
leyfa palestínskum flóttamönnum
að snúa aftur til fyrri heimkynna
sinna í Ísrael. Hann sagðist einnig
líta svo á að sjálfstætt ríki Pal-
estínumanna verði bæði Ísraels-
mönnum og Palestínumönnum í
hag.
gudsteinn@frettabladid.is
Ísraelsstjórn fellur
Ísraelski Verkamannaflokkurinn yfirgaf í gær stjórn Ariels Sharons. Kosning-
um verður flýtt. Sharon talinn ætla að stofna nýjan flokk.
AMIR PERETZ Hinum nýja leiðtoga Verkamannaflokksins varð að ósk sinni þegar flokksmenn samþykktu að slíta stjórnarsamstarfi við Ariel
Sharon.MYND/AP
FASISTAKVEÐJA NÆRRI MADRÍD
Hægrisinnaðir fasistar vottuðu Franco
virðingu sína með fastistakveðju.
Þrjátíu ár síðan einræðisherrann Francisco Franco lést:
Margir Spánverjar þekkja ekki söguna
SVEITARSTJÓRNARMÁL Alls hafa sex
manns gefið kost á sér til for-
valskosninga hjá vinstri grænum
í Kópavogi en kosið verður um
fyrstu fjögur sæti listans þann 26.
nóvember næstkomandi.
Um er að ræða Ólaf Þór Gunn-
arsson, öldrunarlækni, Þorleif
Friðriksson, sagnfræðing, Emil
Hjörvar Petersen, háskólanema,
Guðbjörgu Sveinsdóttur, geð-
hjúkrunarfræðing, Láru Jónu
Þorsteinsdóttur, sérkennara og
Sindra Kristinsson, nema. -fgg
Vinstri grænir í Kópavogi:
Sex í framboði
Forsætisráðherra Taílands:
Trúir á stjörnur
FLÓTTAFÓLK Reykjavíkurborg og
félagsmálaráðuneytið hafa undir-
ritað samning þess efnis að borg-
in sinni móttöku og þjónustu við
flóttafólk sem hingað er komið frá
Kólumbíu og Bosníu.
Alls hafa 31 flúið hingað undan
stríðsátökum í heimalöndum
sínum, þar af átján börn. Fólk-
ið hefur þegar komið sér fyrir í
Reykjavík og stunda hinir full-
orðnu íslenskunám af krafti en
börnin hafa þegar hafið nám í
skólum. Þykir fólkið hafa aðlagast
vel á stuttum tíma.
Um samvinnuverkefni er að
ræða milli borgarinnar, félags-
málaráðuneytisins og Rauða kross
Íslands. Hefur fólkið öflugan hóp
stuðningsfjölskyldna hér á landi
sem eru sjálfboðaliðar á vegum
Reykjavíkurdeildar Rauða kross-
ins. Gert er ráð fyrir að stærst-
ur hluti hinna fullorðnu fari út á
vinnumarkaðinn að loknum sex
mánaða aðlögunartíma. - aöe
Reykjavíkurborg og félagsmálaráðuneytið undirrita samning:
Borgin tekur á móti flóttafólki
FLÓTTAMENN Árið 2003 kom hópur flóttamanna af Balkanskaganum til Akureyrar.
AFMÆLI Spaugstofan hélt upp á tut-
tugu ára starfsafmæli sitt í gær en
hún hefur skemmt landsmönnum
síðan 1985. Bauð hún af því til-
efni velunnurum sínum til veislu
í Þjóðleikhúskjallaranum.
Mátti þar sjá marga af hel-
stu ráðamönnum þjóðarinnar
sem oftar en ekki hafa fengið á
sig spaugilega mynd í greiningu
þeirra Spaugstofumanna á mál-
efnum líðandi stundar. Vel fór
á með grínurum og stjórnmála-
mönnum enda telja margir að
það sé hinum síðarnefndu frekar
til framdráttar en hitt að lenda í
klónum á grínurunum. -fgg
Spaugstofan:
Tuttugu ára
afmæli fagnað
HALLDÓR OG PÁLMI Pálmi Gestsson um
árabil hermt eftir Halldóri Ásgrímssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ / ÓMAR
LÖGREGLA Fjöldaslagsmál urðu
meðal hóps unglinga sem voru allir
undir áhrifum alsælu á skemmti-
stað í Fredericia um helgina.
Þegar lögregla kom á staðinn
skipti engum togum að ungling-
arnir réðust að lögreglumönnun-
um og þurfti að fá aðstoð lögreglu-
manna frá Vejle og Middelfart til
að yfirbuga unglingana sem voru
30 til 40 talsins. ■
Átök í Danmörku:
Unglingar réð-
ust að lögreglu
SAO PAOLO, AP Luiz inacio Lula da
Silva, forseti Brasilíu, hefur skip-
að leyniþjónustu landsins að veita
frjálsan aðgang að skjölum
sínum frá tímum einræð-
isstjórnarinnar, sem ríkti í
landinu árin 1964 til 1985.
Skjölin verða opinber frá
og með næstu áramótum, en
þó að undanskildum skjöl-
um sem merkt eru „ofur-
leyndarmál“, sem mun
þýða að einhver komist í
lífshættu verði þau skjöl
gerð opinber.
Raddir um að skjölin
verði opinberuð hafa gerst
æ háværari undanfarið.