Fréttablaðið - 21.11.2005, Síða 13
MÁNUDAGUR 21. nóvember 2005 13
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Hvers vegna
var Höddi ekki
settur í markið?
Innbúskaskó TM
Dæmi um hvað Innbúskaskó TM bætir:
// Tjón á verðmætum sem teljast hluti af almennu innbúi
fólks, s.s. fartölvu, myndavél, gleraugum og öðrum
dýrum munum, færðu bætt.
Hámarksupphæð tjóns er 250.000 kr.
// Tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atburða
er bætt, s.s. ef hlutur á heimilinu fellur í gólf eða það
hellist yfir hann.
Dæmi um hvað Innbúskaskó TM bætir ekki:
// Ef þú týnir, gleymir eða skilur verðmæti eftir á
almannafæri færðu þau ekki bætt.
// Ef tjónið er af völdum eðlilegs slits, ófullnægjandi
viðhalds eða framleiðslugalla fæst það ekki bætt.
// Tjón sem verður af völdum þjófnaðar úr ólæstum
híbýlum, bílum, tjöldum eða fellihýsum fæst ekki bætt.
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera.
En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Ef gleraugun þín brotna í hita leiksins er gott að vera vel tryggður. Innbúskaskó TM bætir
tjón á hlutum sem ekki fást bættir með Fjölskyldutryggingu. Vertu við öllu búinn og
bættu Innbúskaskóinu við Fjölskyldutryggingu TM.
Það tekur enga stund að ganga frá því.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
28
60
5
1
1/
20
05
JAPAN, AP Japanski storkurinn
Taisa, sem missti framan af
goggnum í fyrra eftir að hann
flæktist í vír, fékk í gær sérsmíð-
aðan gervigogg sem gæslumenn
hans festu á hann.
Storkurinn hafði horast frá því
goggurinn brotnaði þar sem hann
átti erfiðara með að éta og leiðir
skildu með honum og lífsförunaut
hans, að því er Kyodo-fréttastofan
hafði eftir starfsmönnum Omor-
iyama-dýragarðsins í Akita.
Storkar af þessari tegund eru
í útrýmingarhættu og því mikið
reynt til að tryggja viðgang
stofnsins sem eftir er. ■
Fuglavernd í Japan:
Storkur fær
gervigogg
STORKURINN TAISA. Plastgoggurinn var
festur á með tannlími. MYND/AP/KYODO
AKUREYRI Ásprent Stíll ehf. á
Akureyri hefur gengið frá kaup-
um á nýrri prentvél sem er mun
fullkomnari og hraðvirkari en
eldri vélar prentsmiðjunnar. G.
Ómar Pétursson, framkvæmda-
stjóri Ásprents Stíls, segir að nýja
vélin stórauki samkeppnishæfni
prentsmiðjunnar á landsvísu en
kostnaður við kaup og uppsetn-
ingu vélarinnar er áætlaður um 80
milljónir króna.
„Með tilkomu vélarinnar getur
prentsmiðjan tekið að sér stærri
verkefni en áður og jafnfram opn-
ast okkur nýir markaðir á sviði
umbúða- og tímaritaprentunar
þar sem krafist er hámarksgæða
og mikils afgreiðsluhraða,“ segir
Ómar.
Nýja prentvélin, sem er af gerð-
inni Roland 305L, getur prentað
fimm liti og lakk í einni prentum-
ferð, en hún leysir af hólmi tvær
eldri vélar prentsmiðjunnar.
Áformað er að taka vélina í
notkun um miðjan janúar en fyrst
þarf að ráðast í breytingar á hús-
næði prentsmiðjunnar þar sem
vélin er það mikil að umfangi
að hún kemst ekki inn í prentsal
fyrirtækisins. - kk
Ásprent Stíll á Akureyri kaupir nýja prentvél:
Sótt á nýja markaði
KAUPSAMNINGUR UNDIRRITAÐUR Markús Jóhannsson, umboðsmaður Roland á Íslandi, og
G. Ómar Pétursson, framkvæmdastjóri Ásprents Stíls. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
SPÁNN Yfirvöldum á Spáni hefur
mistekist að stöðva þann stríða
straum ólöglegra innflytjenda
frá Afríku og Suður-Ameríku
sem kemur til landsins. Tölfræðin
sýnir að komist innflytjendur inn
á annað borð er nánast ómögulegt
að hafa uppi á þeim aftur.
Nýjar rannsóknir sýna að yfir
120 þúsund ólöglegir innflytjendur
sem yfirvöld vita af og hafa þegar
vísað úr landi eru enn í landinu
og sýna ekkert fararsnið á sér. Er
þar eingöngu um þá að ræða sem
lögregla veit um en gera má fast-
lega ráð fyrir að annar eins fjöldi
hið minnsta búi og starfi í landinu
ólöglega án vitneskju yfirvalda.
Er því að miklu að keppa
fyrir þær þúsundir sem reyna ár
hvert að komast til landsins. Næg
atvinna er fyrir ólöglega innflytj-
endur enda flestir reiðubúnir að
þiggja lág laun fyrir vinnu sína
og margir minni atvinnurekendur
nýta sér það óspart. - aöe
Spænsk stjórnvöld og ólöglegir innflytjendur:
Hafa enga stjórn
á ástandinu
SENDIR HEIM Gríðarlegur kostnaður fylgir því að senda ólöglega innflytjendur til síns
heima á ný og er það að hluta til ástæða þess að margir þeir sem inn í landið komast á
annað borð eru að mestu látnir í friði. NORDICPHOTOS/AFP