Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 16
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR16
fréttir og fróðleikur
Síðustu áratugi hefur kjarn-
orkan átt sér formælend-
ur fáa, að minnsta kosti í
þróuðustu iðnríkjunum. Ört
vaxandi orkuþörf, ekki síst
vegna efnahagsþróunar í
Kína, hátt olíuverð og mikil
losun koltvísýrings út í and-
rúmsloftið ýtir undir endur-
skoðun þessa viðhorfs.
Rödd þeirra sem halda hinni
„hreinu“ orku frá kjarnorkuver-
um á lofti sem lausninni á orku-
vanda heimsins hefur mjög sótt
í sig veðrið upp á síðkastið. Að
sögn formælenda kjarnorkunn-
ar er aukin nýting hennar, með
nútímatækni sem gerir hana mun
öruggari en áður, eina færa leiðin
til að svara orkuþörf næstu ára-
tuga. Hættan á kjarnorkuslysum
er að þeirra mati hverfandi lítil
í nýjustu gerðum kjarnaofna.
Mengunin frá slíkum orkuverum
sé sama og engin, að því undan-
skildu hvað endanlega verður um
kjarnorkuúrganginn, leifarnar af
notuðu eldsneyti orkuveranna.
Kjarnorkuver framleiða engar
gróðurhúsalofttegundir og með
bættri tækni og eftirliti er sögð
sáralítil hætta á geislamengun
frá þeim.
Í þróuðustu ríkjunum, þar sem
kjarnorka er nýtt til raforkufram-
leiðslu er unnið af metnaði að
aukinni nýtingu endurnýjanlegra
orkugjafa (sólarljóss, vinds, vatns-
og sjávarfalla), en því fer fjarri að
það dugi til að svara orkuþörfinni,
hvorki í lengd né bráð. Þetta gildir
einnig fyrir Svíþjóð og Þýzkaland,
þar sem stjórnvöld hafa tekið
ákvörðun um að loka kjarnorku-
verunum þegar þau hafa þjónað
sínu hlutverki.
Þörf sögð á 800 nýjum kjarnaofnum
Í fréttatímaritinu Time er haft
eftir Jean-Jacques Gautrot, yfir-
manni alþjóðadeildar franska
kjarnorkufyrirtækisins Areva,
að þörf sé á að byggja 800 nýja
kjarnaofna í heiminum á næstu
25-35 árum til að unnt verði að
taka úr umferð úrelta kjarnaofna
og anna orkuþörfinni. Eins og er
mun heildarfjöldi þeirra kjarna-
ofna sem í notkun eru til almennr-
ar raforkuframleiðslu vera um
440 í heiminum öllum. Gautrot
segir reyndar að til þess að unnt
verði að framleiða 30 prósent
af allri raforku í heiminum með
kjarnorku þyrfti á bilinu 1.200 og
1.500 kjarnaofna.
Formælendur kjarnorkunýt-
ingar minna einnig gjarnan á
hætturnar sem fylgja hefðbund-
inni raforkuframleiðslu, sem enn
fer að miklu leyti fram í kolaorku-
verum. Bara á síðasta ári týndu
um 6.000 kínverskir kolanámu-
verkamenn lífi við að grafa upp
eldsneytið fyrir raforkufram-
leiðslu Kína. Loftmengunin af
kolabrennslunni er geigvænleg.
Óttinn við kjarnorkuslys hefur
valdið því að ekkert nýtt kjarn-
orkuver hefur verið byggt í Evr-
ópu síðustu fjórtán ár. En í Finn-
landi er nú verið að byggja fimmta
kjarnaofninn þar í landi. Norska
blaðið Aftenposten hefur eftir
Mikko Elo, þingmanni jafnaðar-
manna, að Finnum væri algerlega
ókleift að standa við skuldbinding-
ar sínar vegna Kyoto-loftslagssátt-
málans nema með því að treysta á
aukna nýtingu kjarnorkunnar.
Í ellefu löndum, sem flest eru
í Asíu, er nú unnið að smíði alls
um 30 kjarnorkuvera. Að sögn
Aftenposten má búast við því að
ýmis lönd, ekki síst í Evrópu, fylgi
í kjölfarið þar sem þeir u.þ.b. 150
kjarnaofnar sem í notkun eru í
álfunni nálgast úreldingaraldur.
Reyndar er hægt að framlengja
líftíma kjarnorkuvera með því
að fjárfesta í uppfærslu þeirra.
Frönsk stjórnvöld hafa eyrna-
merkt andvirði 1.500 milljarða
króna til tæknilegrar uppfærslu
kjarnorkuveranna í landinu á
næstu 30 árum og til framhalds-
rannsókna á kjarnasamruna, sem
vonir eru bundnar við að verði
orkugjafi framtíðarinnar. Um
80 prósent raforkuframleiðslu í
Frakklandi fer nú fram í kjarn-
orkuverum.
Hvatt til aukins alþjóðasamstarfs
Brezki forsætisráðherrann Tony
Blair hefur hvatt til opinnar umræðu
um kjarnorkumálin og orðrómur er
um að hann telji æskilegt að byggð-
ir verði tugir nýrra kjarnaofna í
landinu. Á alþjóðlegri sérfræði-
ráðstefnu um kjarnorkumál í Bret-
landi í fyrri viku var kynnt skýrsla
sem unnin var á vegum Orkurann-
sóknarmiðstöðvar Bretlands (UK
Energy Research Centre).
Í henni er komizt að þeirri
niðurstöðu að nær óhjákvæmi-
legt sé að byggð verði ný kjarn-
orkuver í Bretlandi ef landinu
á að takast að standa við Kyoto-
skuldbindingar sínar. Kallað er
eftir auknu alþjóðasamstarfi um
staðla og hönnun kjarnorkuvera,
sem myndi auðvelda hagnýtingu
þeirrar reynslu sem safnazt hefur
í heiminum af rekstri slíkra orku-
vera.
Heimild: Hagstofa Íslands
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Kjarnorkan aftur í sókn
TREYSTA Á KJARNORKUNA Kjarnorkuverið í Dampierre-en-Burly í Frakklandi. Kjarnorka sér Frökkum fyrir um 80% raforkuþarfar þeirra.
Nýjustu gerðir kjarnorkuvera þarfnast ekki svo stórra kæliturna sem sumir segja bjóða hryðjuverkaárásum heim. NORDICPHOTOS/AFP
2.
79
4
20032001
2.
49
3
2.
65
9
2002
2.
90
1
2004
2.
38
7
2.
15
9
2.
32
0
2.
42
0
Höfuðborgarsvæðið
Utan höfuðborgarsvæðis
SVONA ERUM VIÐ
> Meðalatvinnutekjur í aðalstarfi (í þúsundum króna)
Bandaríska dómsmálaráðuneytið íhugar að hefja rannsókn á hvort ásak-
anir um að fyrirtækið Halliburton hafi fengið samninga um uppbyggingu
olíuiðnaðar í Írak með vafasömum hætti, eigi við rök að styðjast.
Hvað er Halliburton? Halliburton Energy Services er 86 ára alþjóðleg fyr-
irtækjasamsteypa og hefur aðsetur í Houston
í Texasfylki. Það hefur um 95 þúsund starfs-
menn innan sinna vébanda og í fyrra voru tekj-
ur þess rúmir 20 milljarðar dala. Halliburton
skiptist í tvo meginhluta. Orkuþjónustu sem
sér olíu- og gasiðnaði fyrir tækni og þjónustu.
Hinn armurinn kallast Kellogg, Brown and
Root og er verktakafyrirtæki sem sér um að
reisa olíuhreinsunarstöðvar, olíulagnir og efna-
verksmiðjur.
Hver er saga þess? Árið 1919 stofnuðu bræð-
urnir George og Herman Brown fyrirtækið
Brown and Root í Texas árið 1919. Stofnféð
fengu þeir frá mági sínum, Dan Root. Fyrstu árin smíðaði fyrirtækið her-
skip fyrir bandaríska flotann. Þeir færðu smám saman út kvíarnar og árið
1947 byggðu þeir fyrsta olíuborpall heims út á rúmsjó.
Þegar Herman Brown lést árið 1962 eignaðist Halliburton Brown og Root.
Fyrirtækið sá bandaríska hernum fyrir þorra hergagna í Víetnamstríðinu
og andstæðingar stríðsins uppnefndu það Burn and
Loot.
Hver eru pólitísk tengsl þess? George og Herman
Brown áttu í miklum samskiptum við Lyndon B.
Johnson Bandaríkjaforseta á sínum tíma og gerðu
heilmarga samninga við ríkið fyrir hans tilstilli og stu-
ddu hann ötullega fyrir vikið.
Árin 1995 til 2000 var Dick Cheney, núverandi vara-
forseti Bandaríkjanna, forstjóri Halliburton. Andstæð-
ingar hans saka hann um að hafa stuðlað að inn-
rásinni í Írak árið 2003 og hagnast verulega sjálfur á
samningum sem gerðir voru við Kellogg, Brown and
Root.
FBL-GREINING: HALLIBURTON
Pólitísk tengsl ná langt aftur
Björn Ingi Hrafnsson
lýsti yfir framboði sínu
til fyrsta sætis í próf-
kjöri Framsóknarflokks-
ins. á laugardaginn.
Hvenær ákvaðstu að
fara í framboð?
Ég ákvað það endan-
lega á föstudaginn.
Þetta hefur legið í loftinu og ég hef
verið að hugsa minn gang en nafn
mitt hefur komið fram í þessari
umræðu nokkrum sinnum. Skoð-
anakannanir hafa sýnt að við eigum
á brattann að sækja en framsóknar-
menn eru bæði bjartsýnir og raunsæir
og hafa líka sýnt að þeir geta komið
á óvart.
Var það mikilvægt að Alfreð skyldi
hætta? Já, það var mikilvægt. Hann
hefur verið leiðtogi okkar og ég hef
áður lýst því yfir að ég studdi hann.
Eftir að það var ljóst að hann hygðist
ekki sækja eftir endurkjöri ákvað ég
að eyða allri óvissu og uppfylla óskir
fjölda stuðningsmanna.
Áttir þú einhvern þátt í brotthvarfi
Alfreðs? Nei, Alfreð hefur lýst því
yfir að hann hafi sjálfur tekið þessa
ákvörðun Hann er fullfær um að taka
slíkar ákvarðanir sjálfur.
Framboðið
ákveðið á
föstudaginn
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
SPURT & SVARAÐ
PRÓFKJÖR Í REYKJAVÍK