Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 25
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR3
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Fasteignakaupandinn er ný
þjónusta fyrir kaupendur fast-
eigna sem vilja að þriðji aðili
yfirfari öll gögn.
„Við mætum við gerð kaupsamn-
ings og afsala, yfirförum gögn og
bendum á þau atriði sem hafa þarf
í huga eftir því hvernig húsnæði
er verið að kaupa,“ segir Guðfinna
Jóhanna Guðmundsdóttir, héraðs-
dómslögmaður og framkvæmda-
stjóri Fasteignakaupa. Hún bætir
við að þjónustan sé ekki hugsuð til
höfuðs fasteignasölum. „Þetta er
hrein viðbót við lögbundna hags-
munagæslu fasteignasala. Betur
sjá augu en auga.“
Guðfinna er enginn nýgræð-
ingur í fasteignaheiminum. Hún
hefur unnið við fasteignalögfræði
í hartnær áratug, situr í stjórnum
Húseigendafélagsins og Búseta og
hefur haldið námskeið og fyrir-
lestra sem málefnið varða svo lítið
eitt sé nefnt. „Ég hef verið að fá
mál inn á borð hjá mér sem hefði
verið hægt að fyrirbyggja. Þessi
mál hafa til dæmis að gera með
eignaskiptayfirlýsingar, breyting-
ar á húsnæði, samþykktir og fleira.
Það er mikilvægt að skoða söluyf-
irlit vel og vita hverju má gera ráð
fyrir út frá húsaldri. Gallareglurn-
ar eru þannig að það er mikilvægt
að kaupendur átti sig á því hvaða
göllum má búast við í húsum eftir
aldri,“ segir Guðfinna.
Guðfinna segir málaferli af
þessu tagi sem betur fer ekki
algeng en þó ekki óþekkt. „Fólk
veit oft ekki hver réttarstaða þess
er fyrr en eftir kaup. Það koma oft
upp gallatilvik eða að lýsing á eign
er ekki í samræmi við fyrirliggj-
andi skjöl,“ segir Guðfinna. „Sem
dæmi kaupir þú hús sem er búið
að byggja við. Stuttu síðar verður
vart við leka í viðbyggingunni og
við eftirgrennslan kemur í ljós
að aldrei var gefið út leyfi fyrir
henni. Þú ert því réttindalaus.“
Spurð um væntanlega notendur
þessarar þjónustu segir Guðfinna
alla kaupendur geta nýtt sér þessa
þjónustu. „Ég á sérstaklega von á
því að fólk sem er að kaupa í fyrsta
sinn, fólk sem veit af einhverju
athugaverðu og fólk sem hefur lent
í veseni við húsnæðiskaup sjálft
eða þekkir til slíkra mála komi til
með að fagna þessari þjónustu. Í
Danmörku er þessi þjónusta mjög
almenn. Þar mætir kaupandi alltaf
með aðila með sér í samning. Hér
eru það fasteignasalar sem sjá um
hagsmuni beggja. Fæstir kaupa
húseignir á hverjum degi og því
getur verið betra að fleiri reyndir
aðilar komi að málinu,“ segir Guð-
finna að lokum.
Heimasíða Fasteignakaupanda
er www.fasteignakaupandi.is en
þar má meðal annars finna upp-
lýsingar um þjónustuna, verðskrá
og yfirlit yfir lög um fasteignavið-
skipti.
Betur sjá augu en auga
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fasteignakaupanda, segir það geta margborgað sig að hafa reyndan aðila með í
ráðum þegar kemur að húsnæðiskaupum. E.ÓL.
Hjónin Ingibjörg Ásgeirsdóttir
og Barry Andrews byrjuðu fyrir
um ári síðan að bjóða Íslend-
ingum upp á ekta bandaríska
gluggahlera.
Ingibjörg segir að gluggahler-
arnir hafi verið mjög vinsælir
það sem af er en þeir séu þó ekki
á hvers manns færi. ,,Þetta eru
engin sólargluggatjöld, þetta er
frekar fjárfesting. Hlerarnir eru
innfluttir, smíðaðir í Bandaríkjun-
um, og þess vegna vel stæðilegir
og flott hannaðir,“ útskýrir Ingi-
björg. Barry vann við að flytja inn
alveg eins gluggahlera í Bretlandi
og segir Ingibjörg að þar séu slíkir
gluggahlerar mjög vinsælir. Hafa
meðal annars stjörnur á borð við
Jude Law og Miranda Richardson
keypt þannig gluggahlera fyrir
heimili sitt. Í Bandaríkjunum eru
gluggahlerar jafnvel enn vinsælli
og hafa meðal annars ýmsir forset-
ar Bandaríkjanna haft slíka hlera
og þeir eru notaðir í Yale-háskóla.
Ingibjörg segir að helsti kostur
gluggahlera sé hvernig hægt sé að
stjórna birtunni. ,,Það eru sérstak-
ar lokur á hlerunum og því auðveld-
lega hægt að stjórna þeim. Þetta er
einnig mjög gott fyrir þá sem vilja
hafa smá einkalíf, til dæmis fólk
sem býr á jarðhæð og vill hafa ljós
en ekki endilega að allt sé galopið.“
Sökum þess að þetta er inn-
flutt gæðavara er verðið svolítið
eftir því. Ingibjörg segir þó að
það sé nær enginn verðmunur á
gluggahlerunum hér og í Bret-
landi. Hægt er skoða hlerana í
Línunni við Suðurlandsbraut en
auk þess má nálgast frekari upp-
lýsingar á heimasíðunni glugga-
hlerar.is.
Birtu stjórnað með hlerum
Gluggahlerar sóma sér vel inni á flestum
heimilum.
Hægt er að stilla lokurnur bæði að ofan og
neðan á gluggahlerunum.