Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 27
MÁNUDAGUR 21. nóvember 2005 5
534 1300
w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s
Góð lausn
fyrir gluggann
Hafðu samband og við
komum heim til þín
Fyrirtækið Vatnsvirkinn veitir bæði
ráðgjöf og flytur inn efni fyrir fólk
sem langar að hafa sauna inni á
heimilum sínum.
Hjalti Ólafson, framkvæmdastjóri
Vatnsvirkjans, segir að það hafi færst
mikið í aukana hér á landi að fólk fái
sér gufubað inn á heimili sín. Vatns-
virkinn selur hins vegar ekki tilbúna
klefa. „Við flytjum efni inn eftir teikn-
ingum eða stöðluðum teikningum.
Það er fyrirtæki í Svíþjóð, Tylo, sem
er með mjög vandaða og góða klefa
og það vinnur efnið fyrir okkur og
sendir okkur hingað. Við fáum inn
bæði sérpantanir og staðlaða klefa,“
segir Hjalti. Hann segir að yfirleitt sé
það fólkið sjálft sem hafi hugmyndir
um hversu stóra klefa það þurfi. Það
veit hversu mikið pláss það hefur
og pantar þess vegna staðlaða klefa
eftir því.
Viðurinn sem fólk notar í klefann er
mikilvægastur að mati Hjalta. Efnið
sem hann flytur inn er sérþurrkað og
sérvalið en annars myndi viðurinn
skreppa of mikið saman. Þess vegna
er mjög mikilvægt að fólk leiti til
aðila sem selja gæðavið sem örugg-
lega hentar til smíði á gufubaði.
Hjalti segir að það sé sáraeinfalt að
koma upp slíkum klefa. „Þú þarft
bara pláss undir þetta og passa að
það sé gott aðgengi að honum og
jafnvel nálægð við sturtur eða annað
slíkt. Það þarf líka sáralitla loftræst-
ingu. Þetta er í raun sáralítið mál.
Bara að setja upp klefa, henda ofni
inn í hann og skvetta síðan vatni á
steinana,“ segir Hjalti að lokum.
sauna }
Uppsetning
auðveld
VATNSVIRKINN AÐSTOÐAR VIÐ
UPPSETNINGU Á SAUNA.
Fallegir saunaklefar eins og þessi eru að
verða sífellt vinsælli hjá einstaklingum.
Hægt er að láta gera sérsmíðaða sauna-
klefa sem taka allt að 15-20 manns.
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR FJALLAR UM HVÍTSKÚRAÐ GÓLF
Í dönsku blöðunum má vel merkja að hvít trégólf
eru í tísku. Hvítt eða grátt skal það vera, kannski
brúnt, en alls ekki gult. Fyrir 20 árum átti að lakka,
fyrir 10 árum að olíubera og 5 árum að mála, en nú
á bara að skúra gólfin. Ótrúlegt en satt!
Stundum var sagt að það væri hvítskúrað út úr
dyrum og maður hélt að það þýddi bara að það
væri svona vel þrifið. En það var ekki nema hálf-
ur sannleikur. Að hvítskúra var ódýr og góð aðferð,
reyndar lengi vel sú eina til að meðhöndla trégólf.
Hvítskúruð gólf höfðu einnig sérstakt útlit. Fyrr á
tímum valdi fólk ekki svona gólf. Þau urðu bara
svona af ágangi heimilisfólks, gesta og endurtekn-
um skúringum formæðranna með þeim efnum
sem þá voru tiltæk. Aðferð ömmu fólst einfaldlega
í því að skúra gólfið með grænsápuvatni og bursta.
Sápan og sandurinn af óhreinu gólfinu gerðu yfir-
borðið harðara eftir því sem skúrað var oftar. Gólfið
fékk svo smám saman fallega hvít- eða silfurgjáandi
áferð sem að sumra mati fæst ekki keypt í búðum.
Veljir þú hvítskúrað og nennir að hafa fyrir því
þarftu þolinmæði í u.þ.b. ár áður en aðferðin skil-
ar árangri og gólf úr gegnheilum barrviði; greni,
lerki eða furu. Greni er best því að það lýsist frekar
fljótt.
Svona gerum við þegar við skúrum okkar gólf:
Fjarlægið húsgögn. Bleytið gólfið með köldu
vatni. Setjið ekki sápuvatn á þurran viðinn. Látið 2-3
tappa af feitri fljótandi sápu í 10 lítra af köldu vatni.
Ekki nota heitt vatn því það dekkir viðinn. Takið
skrúbb með skafti og skrúbbið með sápuvatninu
3-4 borð í einu. Þurrkið yfir með skúringaklút og
fjarlægið allar sápuhrannir. Þetta er endurtekið í 2-
3 skipti þangað til gólfið er orðið mettað af sápu.
Látið þorna á milli. Svona er skúrað einu sinni til
tvisvar á ári til viðbótar við venjulegar skúringar.
Hægt er að svindla smá með því að blanda sér-
stöku kalkkremi saman við vatn. Kalkblandan er
borin á með pensli, látin þorna í lágmark 5 tíma
og svo sópað burt. Munið þá að nota grímu. Að því
loknu er skúrað, eins og lýst er að ofan, eldsnemma
einhvern morguninn.
Svona gerum við er við skúrum okkar gólf...
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8