Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 32
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR10
Bláa Lónið – Lækningalind tekin í notkun 2005. Aðlögun að hinu sérstæða umhverfi er höfð að leiðarljósi við efnisnotkun og
mótun bygginganna.
Arkitekt: Anna Sigríður Jóhannsdóttir
SEGIR FRÁ VERKUM SÍNUM
Verkin myndi samspil við umhverfið
„Hér hjá VA arkitektum ehf. eru tuttugu starfsmenn, þar af tíu eigendur. Öll vinn-
um við að fjölbreyttum verkefnum, svo sem innréttingahönnun, alhliða mann-
virkjahönnun og skipulagsvinnu og allt undir merkjum stofunnar,“ segir Anna Sig-
ríður Jóhannsdóttir, arkitekt og einn af eigendum fyrirtækisins. Hún segir mikla
áherslu lagða á að hvert mannvirki fái notið sín sem hluti af því umhverfi sem
það rís í, bæði í efnisnotkun og formmótun, hvort sem er í náttúru eða borg.
Einnig að mannvirkið endurspegli það hlutverk sem því er ætlað og sé auðvelt og
aðgengilegt í notkun. „Við reynum að sjálfsögðu að koma til móts við óskir og
væntingar viðskiptavinanna um notagildið,“ segir hún og nefnir til sögunnar
nokkur þeirra verka sem stofan hefur teiknað: Ingunnarskóla í Grafarvogi, Lækn-
ingalindina í Bláa lóninu, Safnaðarheimili Neskirkju og fjölbýlishús við Sóltún sem
eru í smíðum. „Þetta eru verkefni af ólíkum toga en eru þó lýsandi fyrir það sem
stofan fæst við,“ segir Anna Sigríður að lokum.
Ingunnarskóli var tekinn í notkun 2005. Nýtt kennsluform kallar á nýja hönnun skóla-
byggingar. Opin rými eru í góðum tengslum við opin svæði innandyra sem utan.
Safnaðarheimili Neskirkju var tekið í notkun 2004. Formmótun
tekur mið af kirkjubyggingunni og leggur áherslu á rýmismyndun.
Fjölbýlishús í Sóltúni í byggingu. Tvö fjölbýlishús með sam-
tals 64 íbúðum sem hönnuð eru með áherslu á gæði
íbúðanna og gott samspil við umhverfið.
VALLENGI - 5 HERB. ENDAÍBÚÐ
Mjög falleg, rúmgóð og björt 111 fm, 5 herb. íbúð með sér inngang á efri-
hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin er opin og vel skipulögð. Björt og rúmgóð stofa,
útgengt á suður-svalir. 4 svefnherb. öll með skápum. Baðherb. er með
baðkari, sturtuklefa og innréttingu. Flísalagt þvottaherb. innan íbúðar.
Glæsilegt eldhús opið inn í stofu. Vandaðar flísar og parket á gólfum.
Útsýni. Stutt í alla þjónustu. V. 23,9 millj.
FANNAFOLD - EINBÝLI
Glæsilegt 195,5 fm einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr á
góðum stað í Grafarvogi. Húsið er í botnlanga, í rólegu hverfi og með fal-
legu útsýni. Flísar og Merbau parket á gólfum. 3 svefnherb. og 3 stofur.
Arinn. Eldhúsið er bjart og glæsilegt með vandaðri innréttingu og tækjum.
Hátt til lofts í stofum og eldhúsi. Baðherb. með hornbaðkari, sturtuklefa,
vegghengdu salerni og innréttingu. Glæsilegur og skjólgóður sólpallur. V.
49,8 millj.
BORGARTÚN - LÚXUS ENDAÍBÚÐ
Mjög falleg, 160,4 fm „lúxus-endaíbúð“ á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi við
Borgartún ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Húsið er byggt 2003 og álklætt.
Íbúðin er vel skipulögð og björt, gluggar á 3 vegu. Gengið inn í forstofu beint
úr lyftu. 2 svefnherb., fataherb., 2 baðherb., eldhús með vandaðri innréttin-
gu og tækjum. 2 svalir. Í kjallara er sérgeymsla. Að auki er sér merkt
bílastæði við húsið. V. 49,5 millj.
HVASSALEITI - 4RA HERB. M/BÍLSK.
Mjög björt og falleg 93,5 fm endaíbúð á 3. hæð með gluggum á 3 hliðar
ásamt 21,8 fm bílskúr. Baðherb. með glugga, lagt er fyrir þvottavél. Eldhús
með borðkók. Stærra svefnherb. er mjög rúmgott með stórum skáp. Á
holi, eldhúsi og svefnherb.gólfum er korkur. Stofurnar eru samliggjandi,
bjartar og fallegar og með fallegu stafa parketi. Stigahúsið er ný málað og
tepplagt. Vestur svalir. V. 21,3 millj.
ÞRASTARÁS - 4RA HERB.
ENDAÍBÚÐ
Mjög falleg 4ra herb., 111,5 fm endaíbúð á 3. hæð í Hafnarfirði. Glæsilegt
útsýni. Sér inngangur af svölum en sameiginlegur inn í húsið. 3 svefnherb.,
öll með skápum. 16 fm hjónaherb.. Flísalagt baðherb.. Eldhús með borðkrók.
Þvottaherb. innan íbúðar. Fallegar innréttingar, innfelldar hurðar. Flísar og
parket á gólfum. Sér geymsla í sameign. Stutt í alla þjónustu. V. 25,8 millj.
ÖLDUGRANDI - 3JA HERB. SÉRINNG.
Góð 85,4 fm, 3ja herb. endaíbúð á jarðhæð með sérinngang og stæði í
lokaðri bílageymslu. Fyrir framan eldhúsið er borðstofa, inn af henni er
rúmgóð stofa með útgengi á skjólgóða og afgirta hellulagða verönd.
Baðherb. með baðkar og innréttingu. Tengt fyrir þvottavél. Dúkalögð herb..
Sérgeymsla í kjallara. Til stendur að laga húsið að utan og greiðir seljandi
fyrir þá framkvæmd. V. 20,5 millj.
STYKKISHÓLMUR - EINBÝLI
Mjög fallega staðsett, glæsilegt 80,1 fm einbýlishús á 2 hæðum við
Höfðagötu. Uppgert í gamla stílnum að utan. Forstofa og 2 flísalögð
baðherb.. Þvottavél fylgir. Stofa og fallegt eldhús. 2 svefnherb.. Út af stofu
er sólpallur, glæsilegt útsýni. Rúmgóður sjónvarpsskáli með náttúrurstein
á gólfi. Geymsluskúr á lóðinni. Allt nýuppgert á afar smekklegan hátt,
bæði að innan og utan. TILBOÐ ÓSKAST Í EIGNINA.
STYKKISHÓLMUR - EINBÝLI
145,2 fm timburhús á steyptum grunni við Tangagötu. Kjallari, hæð og ris.
Húsið er klætt að utan og þarfnast standsetningar. Hæðin er forstofa, 2
stofur, svefnherb. og bað. Í risi eru 2 stór svefnherb.. Eign sem gefur
möguleika. V. 7,9 millj.
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
sími 896 4489
Karl Dúi Karlsson
sölumaður
GSM 898 6860
Samtengd söluskrá
Sex fasteignasölur
- ein skráning - minni kostnaður -
- margfarldur árangur -
wwwhus.is
Opið virka daga
frá kl. 09:00-18:00.
www.fmg.is
Sími 575 8585 – Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is
F
ru
m
STYKKISHÓLMUR - EINBÝLI
Til sölu fallegt og vel skipulagt 220,9 fm. einbýlishús á einni hæð með
tvöföldum, óvenjustórum innbyggðum bílskúr við Tjarnarhólm. 4-5 svefn-
herb.. Rúmgott og bjart eldhús með stórum borðkrók. Gestasnyrting og
stórt baðherb.. Þvottaherb. með innréttingu, geymsla og búr. Patket og
flísar á gólfum. Falleg staðsetning. Mikið útsýni til fjalla. Skipti möguleg á
eign í Reykjavík. V. 26,8 millj.
STYKKISHÓLMUR - EINBÝLI
Fallegt 140,4 fm timbur einbýlishús ásamt ca 40 fm bílskúr á fallegum stað
við Garðaflöt. 3 svefnherb. og rúmgóð og björt, tvískipt stofa. Mögul. að
bæta við 4. herb.. Eldhús með fallegri innréttingu og borðkrók. Baðherb.
með baðkari og innréttingu. Fallegt parket og vandaðar náttúruflísar á
gólfum. Húsið er við opið svæði, fallegt útsýni. Stutt á golfvöllinn. Skipti
möguleg á eign á Stór-R.víkur svæðinu. V. 19,5 millj.
SELD
SELD