Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 35
MÁNUDAGUR 21. nóvember 2005 13
Dómsmálaráðuneytið hefur
falið Endurmenntun Háskóla
Íslands að hafa umsjón með
réttindanámi og prófum til
löggildingar fasteigna-, fyrir-
tækja- og skipasala. Með
náminu er stefnt að því að
gera stétt fasteignasala að
meiri fagstétt.
Eyvindur G. Gunnarsson lektor
er umsjónarmaður löggildingar-
námsins og segir hann helstu
breytinguna sem nú verður þá að
nám fasteignasala færist nær
háskólastigi. „Stefnt er
að því að stétt fast-
eignasala verði meiri
fagstétt,“ segir Ey-
vindur. „Nú eru gerðar
meiri kröfur en áður
hafa verið gerðar. Til
dæmis þarf viðkomandi
að hafa lokið stúdents-
prófi eða sambærilegri
menntun áður en hann
hefur nám ásamt því að að
hafa tólf mánaða starfs-
reynslu hjá löggildum fast-
eignasala að baki.“
Markmið námsins er fjöl-
þætt. Meðal annars verður
lagt upp úr kunnáttu í fræði-
kerfi íslenskrar lögfræði og
þekkingu á reglum um stofnun
samninga og reglum um ógild-
ingu þeirra, hvaða skuldbinding-
ar felast í samningum um skipti,
kaup og sölu og hvaða afleiðingar
vanefndir á þeim hafa. Einnig
mun námið veita nemendum
trausta þekkingu á lögum og regl-
um sem gilda um fasteignakaup
og þeim reglum sem lúta að rétt-
indum og skyldum fasteignasala,
bæði gagnvart
kaupanda og selj-
anda. Nemendur fá auk þess
þjálfun í gerð þeirra skjala sem
mesta þýðingu hafa við sölu fast-
eigna, fyrirtækja og skipa. Sér-
stök áhersla verður lögð á gerð og
efni söluyfirlits, kauptilboðs,
kaupsamnings og afsals ásamt
fræðslu um þau tæknilegu og
fjármálalegu atriði sem helst
hafa þýðingu við skoðun og mat á
fasteignum, fyrirtækjum og skip-
um.
Eyvindur segir það hafa verið
lengi í umræðunni að auka kröfur
til þeirra sem starfa sem fast-
eignasalar. Fasteignaumhverfið
sé orðið hraðara og kröfuharðara
og með breytingum á námstilhög-
un tilheyri fasteignasalar fag-
lærðri stétt.
Námið hefst 1. febrúar
á næsta ári og eru náms-
lok áætluð um miðjan júní
árið 2007. Námið skiptist í
þrjá hluta og er alls þrjátíu
einingar á háskólastigi.
Einnig verður kennt í fjar-
námi fyrir þá sem búa utan
höfuðborgarsvæðisins og mun
kennslan fara fram í gegnum
vefumhverfi Horizon Wimba.
Umsóknarfrestur rennur út
15. desember 2005 og er umsókn-
areyðublöð að finna á vefsíðu
Endurmenntunar Háskóla Ís-
lands.
Löggildingarnám fasteignasala
Lýsing: Gengið er inn í spónaparkettlagða forstofu með hengi. Í húsinu er dúklagt
baðherbergi með baðkari og nýleg hreinlætistæki. Eldhús er spónaparkettlagt með
gömlum neðri skápum. Spónaparkettlögð skrifstofa er inni af eldhúsi en þaðan er
gengt inn í teppalagða tvöfalda stofu. Brattur stigi liggur upp á efri hæð sem telur
tvö svefnherbergi og opið rými. Upprunaleg gólfborð eru á efri hæðinni. Manngeng-
ur kjallari er undir öllu húsinu og er þar þvottahús og geymslur, meðal annars köld
geymsla.Timburgólf er á milli hæða. Utanáliggjandi rafmagn og endurnýjað á efri
hæðinni. Texplötur eru í útveggjum að innan. Í öllu húsinu eru upprunalegar inni-
hurðir.
Annað: Húsið er byggt árið 1900 og er friðað. Húsið hefur verið endurnýjað að
miklu leyti, m.a. var það einangrað og klætt með bárujárni. Einnig er búið að skipta
um glugga í húsinu. Ofnar eru nýlegir. Þakjárnið er um fimmtán ára gamalt og ný-
lega málað. Skólplagnir endurnýjaðar út í götu.
Fermetrar: 132,5 Verð: 14,3 milljónir Fasteignasala: Lögmenn Suðurlandi
820 Eyrarbakki:
Friðað einbýlishús frá 1900
Bakarísstígur 4 (Skúmsstaðir I, Pálsbær): Fallegt einbýlishús með
stórum kjallara á sjarmerandi stað
Bragi Björnsson
lögmaður
og löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður
og löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI
5 12 12 12
FAX
5 12 12 13
Netfang:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, Fax 512 12 13, Netfang foss@foss.is
VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ.
ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR Í SIMA 512 1212
SIGTÚN - RIS
Erum með góða 88,7 fm 5 herb. risíbúð á eft-
irsóttum stað. Íbúðin er nýstandsett að stór-
um hluta. Eldhús með snyrtilegri eldhúsinn-
réttingu. Falleg tvöfölld hurð með gleri skilur
að borðstofu og stofu. Baðh. er nýstandsett
á afar smekklegan hátt, flísar á gólfi og
veggjum. Sameiginlegt þvottahús. Gott útsýni er úr íbúðinni. Verð 19,9 m.
SELJAVEGUR - RISÍBÚÐ
Opin og falleg 58,7 fm risíbúð á eftirsóttum
stað í gamla vesturbænum. Baðherb.,
flísalagt hólf í gólf, baðkar. Stofa, borð-
stofa og eldhús í alrými. Eldhús með
snyrtil. hvítri innrétt. Rúmg. sv.herb.. Í kjall-
ara er geymsla og sameiginlegt þvottahús.
Verð 15,2 milljónir
VESTURVALLAGATA - FALLEG
Falleg og rúmgóð 65,4 fm 2ja herb. íbúð á 4.
hæð. Íbúðin er afar snyrtileg með nýlegum
gólfefnum á eftirsóttum stað í Vesturbæ. Frá-
bært útsýni. Stórt eldhús. Björt stofa með út-
gengi á rúmg. suðursvalir. Baðh. er rúmgott.
Björt og rúmg. eign með einstöku útsýni á
eftirsóttum stað í vesturbænum. Verð 15,6 m.
LÆKJASMÁRI - SÉRINNGANGUR
Falleg 127,1 fm, 4ra herb. íbúð á jarðh. með
sérinng. Íb. fylgir stæði í bílskýli. Flísal. forst.
Eldh. er rúmg. með hvítri innrétt. St. og borð-
st. í alrými. Afg. hellul. garður. Baðh. flísal. 3
sv.h., öll með fatask. Stutt í alla þjón. Verð
33,9 millj. FALLEG 4RA HERB. ÍBÚÐ MEÐ
SÉRINNG. Á EFTIRSÓTTUM STAÐ.
MARÍUBAUGUR - FALLEG
Glæsileg 3ja herb. eign á einum eftirsóttasta
stað í Grafarholtinu. Íbúðin er 78,6 fm með
um 25 fm einkalóð. Íbúðin er sérlega vel
skipulögð, björt og opin. Allar innréttingar
sérsmíðaðar. Gengið er út um eldhús í stóran
garð með nýjum leiktækjum. Glæsilegt út-
sýni. Verð 18,9 milljónir
FROSTAFOLD - GRAFARVOGUR
Góð 3ja herb. 95,6 fm íbúð ásamt stæði í
bílageymslu. Forstofa með skáp. Eldhús er
opið, hvít snyrtileg innrétting. Stofa er stór
og björt með parketi á gólfi. Útgengt er á
góðar svalir frá stofu. Baðherb. er stórt,
tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Tvö
svefnherbergi. Hús í góðu ásigkomulagi. Verð 18,9 milljónir.
Fr
um
FUNALIND - ÚTSÝNI
Rúmg. 3ja herb. íbúð með góðu útsýni á efstu
hæð í fjögurra hæða fjölbýli. Parket er á
flestum gólfum nema baðherbergi og þvotta-
húsi. Hol með fataskáp. 2 svefnh. með góðu
útsýni og fataskápum. Stofa og borðstofa í
alrými. Útgengt á góðar svalir frá stofu. Lóð
með leiktækjum. Verð 21,5 m.
ÁLFKONUHVARF - 4RA HERB.
Stórglæsileg 120 fm 4ja herb. íbúð í fallegu
fjölbýli, með sérinng. af svölum og stæði í
bílskýli. Stofa og borðstofa með parketi á
gólfi. Rúmgóðar svalir. Eldhúsið með flís-
um á gólfi, vönduðum innréttingum og eld-
hústækjum. Stór og fallegt baðh. Þrjú stór
og björt parketlögð svefnherb. með skápum. Þvottahús í íbúð. Verð 30,5 m.
FÍFULIND - KÓPAVOGUR
4ja herb. íbúð, 104,4 fm í Lindunum í Kópa-
vogi. Úr stofu er útgengt á svalir sem snúa
til suðurs. Eldhús með fallegum viðarinn-
réttingum. Við eldhúsið er sér þvhús með
flísum á gólfi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Baðherbergi Flísalagt gólf og veggir. Stutt
í alla þjónustu, leikskóla, skóla, verslanir og td. Smáralind. Verð 22,9 milljónir.
SAFAMÝRI - EFRI SÉRHÆÐ
Björt og falleg mikið endurýjuð efri sérhæð
alls 163 fm, þar af bílskúr 26,2 fm á eftirsót-
tum stað í Reykjavík. Fjögur svefnherbergi.
Stórar stofur. Rúmgott eldhús. Fallegt
beyki-parket á gólfum. Tvö baðherbergi
bæði flísalögð hólf í gólf. Stórar svalir. Hús í
góðu ásigkomulagi. Verð 41 milljónir.
GVENDARGEISLI - RAÐHÚS
Erum með í sölu glæsileg raðhús á einni
hæð. Húsin er 140 fm íbúð og 28 fm bílskúr.
Húsin eru vel staðsett og er stutt í grunnsk.,
leiksk. og aðra þjón. Timburverönd 25 fm
fylgir hverri eign í suður. Húsin afh. fullb. að utan. Lóð er afh. m. hellul. stéttum og
aðalinngi með hitalögn. Íbúðirnar skilast fullb. að innan, án gólfe. Anddyri, bað og
þv.húsgólf skilast þó með flísal. á gólfi. Vönduð tæki og innr. Verð 38,7 - 39,8 millj.
HEIÐARGERÐI - NÝUPPGERT
Nýuppgert einbýli á 3 hæðum. Bílskúr
byggður 1996 fylgir eigninni. Stofa og
borðstofa með fallegu gegnheilu parketi á
gólfi, hægt er að stækka stofu um ca 16 fm.
Rúmg. eldh. og baðherb. Á 2. hæð er hol,
Þrjú svefnherb. og baðherb. Í kj. er rúmg.
herb. með sérinng. og þv.h. Verð 43 millj.