Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 66
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR44
DRAUMAHÚSIÐ MITT GAUTUR G. GUNNLAUGSSON
Stofur fyrir stofuóperurHeiðarskóli stendur viðLeirá í Borgarfirði, um
miðja vegu milli kaupstað-
anna Akraness og Borgar-
ness. Hann þjónar sveitar-
félögunum sunnan Skarðs-
heiðar og norðan Hvalfjarð-
ar að undanskildum Akra-
neskaupstað – sem munu
sameinast hinn 1. júní
næstkomandi. Heiðarskóli
var teiknaður af Húsameist-
ara ríkisins og undir teikn-
ingarnar skrifa Hörður
Bjarnason og Guðmundur
Þór Pálsson. Byrjað var á
byggingunni árið 1959 en
skólinn tók til starfa árið 1965. Upphaflega var hluti hússins heimavist en
hún var lögð niður snemma á áttunda áratugnum. Nú sækja um 110 nem-
endur skólann og er húsnæðið fullnýtt undir kennslu. Skólastjóri er Helga
Stefanía Magnúsdóttir.
HEIÐARSKÓLI
„Draumahúsið mitt væri sennilegast stórt og reisulegt bárujárns-
hús frá 1920 í Þingholtunum,“ segir Gautur G. Gunnlaugsson, tón-
skáld og söngvari með meiru, þegar hann er spurður um drauma-
húsið sitt. „Þar er risastór bókaveggur eins og var inni hjá Brahms,
kannski heilt herbergi þakið bókum frá gólfi og upp í loft svo þar
inni væri maður umkringdur bókum. Húsið er á tveimur hæðum
svo það sé nóg pláss fyrir alla fjölskylduna og því fylgir góður og
gróðursæll garður með háum trjám. Eldhúsið er stórt og hlýlegt,
innréttingarnar gamaldags en öll nútímaþægindi eins og til dæmis
gaseldavél. Stofurnar væru líka stórar og þar væri auðvitað flygill
og líka pláss til að setja upp litlar kammeróperur fyrir gesti og
gangandi. Úr stofunum væri síðan brattur stigi upp í turn þar sem
ég myndi geta setið og samið tónlist og handrit.“ Gautur er ekki
alveg fjarri þeim raunveruleika þar sem hann stendur nú fyrir
flutningi á kammeróperunni Gesti í reisulegu gömlu bárujárnshúsi,
Iðnó við Reykjavíkurtjörn. Óperan fjallar um samkynhneigð hjón
og nágrannann sem kemur róti á líf þeirra. Þeir Gautur og Gunnar
Kristmannsson sömdu tónlistina og handritið og syngja hlutverk
hjónanna en hlutverk nágrannans syngur Hrólfur Sæmundsson.
Íbú›aver›
upp á vi›
Enn hækkar íbúðaverð á
höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
hækkaði að meðaltali um 0,8
prósent frá enduðum september til
loka október. Þetta kemur fram á
vef Fasteignamats ríkisins,
www.fmr.is Þar er fylgst með þró-
uninni frá mánuði til mánaðar og
vísitala íbúðaverðs reiknuð út mið-
að við að hún væri 100 stig í janúar
1994. Í október síðastliðnum var
vísitalan 285,6 stig. Þegar breyting-
ar á verði eru skoðaðar síðustu
misserin kemur í ljós að hækkunin
nemur 1,1 prósenti á síðustu þrem-
ur mánuðum, 9,2 prósentum á síð-
ustu sex mánuðum og frá því í októ-
ber í fyrra hefur vísitalan hækkað
um 36,4 prósent.
Eftirspurn í
Eyjum
Líflegur fasteignamarkaður
er í Vestmanneyjum.
Góðar húseignir í Vestmanneyj-
um hafa hækkað í verði um tíu til
tuttugu prósent á síðustu mánuð-
um og eftispurn eftir slíkum eign-
um er meiri en framboð. Smærri
eignir seljast vel líka. Nýlega var
einbýlishús við Smáragötu selt á
23,5 milljónir króna og er það
með hæsta verði sem fengist
hefur fyrir hús í Vestmannaeyj-
um. Einnig eru nýbyggingar í
burðarliðnum í bænum á svokall-
aðri Baldurshagalóð þannig að
enn sem fyrr þykir fólki gott að
búa í Eyjum. Heimild: www.eyja-
frettir.is
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
30/9-
6/10
181
7/10-
13/10
210
14/10-
20/10
158
21/10-
27/10
194
28/10-
3/11
168
4/11-
10/11
166
Gæ›i
í gegn