Fréttablaðið - 21.11.2005, Side 73
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR29
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
PATROL
JÓLA–NISSAN
PAKKINN
N†R PATROL Á GJAFVER‹I OG fiRJÚHUNDRU‹ OG
FIMMTÍU fiÚSUND KRÓNA JÓLAGJÖF Í KAUPBÆTI. A‹EINS
20 BÍLAR Á fiESSU TILBO‹I!
350.000 KALL Í JÓLAGJÖF!
STÓRI
250.000 kr. aukahlutapakki
Tegund Ver›
Patrol Luxury beinskiptur 4.090.000.-
Patrol Luxury sjálfskiptur 4.190.000.-
Patrol Elegance beinskiptur 4.390.000.-
Patrol Elegance sjálfskiptur 4.490.000.-
Innifali›: 33" dekk, krókur og toppbogar.
KAUPAUKI100.000 kr.GJAFABRÉF HJÁ
SKIPT_um væntingar
A‹EINS 20 BÍLARÁ fiESSU TILBO‹I!
[ BÆKUR ]
UMFJÖLLUN
Það syrtir heldur betur í álinn
hjá vini okkar honum Harry
Potter í þessari sjöttu bók J.K.
Rowling um baráttu galdra-
drengsins með örið á enninu við
myrkraöflin. Spennan magnast
því í Harry Potter bálknum sem
heild þó höfundinum hafi heldur
verið að fatast flugið í tveimur
síðustu bókunum.
Rowling toppaði í Harry
Potter og eldbikarnum sem er að
mínu mati langbesta Harry Pot-
ter bókin þó það hefði að ósekju
mátt stytta hana um 100 blaðsíð-
ur eða svo. Það gekk hins vegar
svo rosalega mikið á í bókinni
og í lífi Harrys sem á viðkvæmu
þroskaskeiði þurfti að horfast í
augu við erkifjandann Voldemort
í öllu sínu veldi.
Næstu tvær bækur, Harry
Potter og Fönixreglan og nú
Harry Potter og blendingsprins-
inn halda ekki sama dampi en
það breytir því þó ekki að þessi
nýjasta bók er þrælskemmtileg
og vægast sagt áhugaverð fyrir
alla þá sem eru fastir í töfraneti
Rowling.
Það er hins vegar ekki Harry
sjálfur og ævintýri hans sem
vekja mesta forvitni í blendings-
prinsinum heldur óvenju djúp
innsýn sem lesandinn fær í hug-
arheim og ævisögu Trevor Del-
gome sem síðar tekur upp nafnið
Voldemort.
Fyrir utan þessi safaríku inn-
lit í brenglaðan huga og ættar-
sögu Voldemorts gengur allt sinn
vanagang í Hogwarts. Harry,
Ron og Hermione gruna Malfoy
um græsku og hafa á honum
góðar gætur. Þá heldur gelgjan
og hormónaruglið áfram að gera
krökkunum lífið leitt og Snape
er leiðinleg sem aldrei fyrr.
Rowling gerði mikið úr því
þegar hún byggði upp spennu
fyrir tvær síðustu bækur sínar
að mikilvægar persónur myndu
láta lífið í þeim báðum. Þessi
brella hefur virkað vel í tvígang
og aðdáendur Potters voru með
hjartað í buxunum fyrir útkomu
beggja bókanna, svefnlaus-
ir af áhyggjum yfir því hvern
Rowling tæki upp á að drepa.
Sirius Black var vitaskuld öllum
harmdauði í Fönixreglunni en
ótímabært dauðsfall þessarar
bókar er stóráfall og með því
raskast ákveðið ógnarjafnvægi
sem ríkt hefur milli hins góða og
illa í síðustu fimm bókum.
Nú hefur Voldemort yfirhönd-
ina og allt getur gerst. Það spill-
ir svo ekki fyrir að í þessari bók
eru framin hádramatísk svik og
upplausin er alger í lokin. Harry
Potter og blendingsprinsinn
gefur því fögur fyrirheit um að
síðasta bókin verði kynngimagn-
að og dimmt drama.
Þórarinn Þórarinsson
Ógnarjafnvægi raskað
HARRY POTTER OG
BLENDINGSPRINSINN
HÖFUNDUR: J.K: ROWLING
ÚTGEFANDI: BJARTUR
Niðurstaða: Nú hefur Voldemort yfirhöndina
og allt getur gerst. Það spillir svo ekki fyrir að
í þessari bók eru framin hádramatísk svik og
upplausin er alger í lokin.
Hjá Máli og menningu
er Vetrarvíg,
myndasögubók
eftir Emblu
Ýr Bárudóttur
og Ingólf Örn
Björgvinsson
komin út. Bókin
er sjálfstætt
framhald verð-
launabókanna Blóðregns og Brenn-
unnar, myndasagna sem byggðar eru á
Brennu-Njáls sögu.
Hjá Máli og menningu
er komin út
bókin Bæjarins
verstu eftir Hrein
Vilhjálmsson,
tæplega sextugan
Reykvíking
sem leiddist
kornungur út í
óreglu og missti
tökin á tilverunni.
Í þessari hispurslausu bók lýsir höfundur
því á vægðarlausan en þó broslegan
hátt hvernig hann fer í hundana.
Hjá Máli og menningu
er komin út
sakamálasagan
Blóðberg eftir
Ævar Örn Jóseps-
son, sem hefur
með glæpa-
sögum sínum
Skítadjobbi og
Svörtum englum
tekið sér stöðu í
fremstu röð glæpasagnahöfunda lands-
ins. Bækurnar hafa hlotið lofsamlega
dóma og Svartir englar var tilnefnd til
Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverð-
launanna.
Hjá Máli og menningu
er komin út
bókin Túristi
eftir Stefán
Mána. Bókin er
ferðasaga um
lendur ástarinn-
ar, um refilstigu
bókmenntanna
og dularfulla
afkima mannsins.
Metsölu-bókin Þú
ert það sem
þú borðar
eftir dr. Gillian
McKeith er
komin út á
íslensku hjá
bókaútgáfunni
Hólum. Í bók-
inni er að finna upplýsingar um fæðu-
tegundir sem geta valdið ýmsum kvillum
eða hjálpað manni að losna við þá.
NÝJAR BÆKUR