Fréttablaðið - 21.11.2005, Side 78

Fréttablaðið - 21.11.2005, Side 78
34 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur í körfubolta, þvertekur fyrir að liðið vanvirði Powerade- bikarkeppnina en þeir sættu nokkurri gagnrýni eftir tapið gegn Njarðvík síðastliðinn föstudag í undanúrslitunum fyrir að reyna ekki að fresta leiknum. Keflavík spilaði gegn Riga í Evrópukeppninni daginn áður og vann frækinn sigur sem tók allan vind úr liðinu sem tapaði gegn Njarðvík með 28 stiga mun daginn eftir. „Ég held að þetta sé frekar virðing við keppn- ina að við drullumst til að mæta í alla leiki og spila þá í staðinn fyrir að draga okkur úr keppninni af því við viljum taka þátt í þessu öllu. Menn skyldu því aðeins hafa sig hæga við að gagnrýna þetta, anda djúpt og skoða hvað þeir eru að segja áður en þeir fara að röfla. Ég tel að við séum að sýna keppninni mikla virðingu og menn eru að leggja sig gríðar- lega fram við að spila þessa leiki. Menn skyldu virða það.“ sagði Sigurður við Fréttablaðið í gær. „Það var ekki um neitt annað að ræða en að spila svona þar sem við vildum ekki vera að segja okkur úr keppninni. Dagskráin okkar er svo þétt að við spilum marga leiki í hverri viku en við lögðum okkur alla fram en það fór mikil orka í leikinn gegn Riga en við erum ekkert að nota þetta sem afsökun, við vissum alveg hvað við vorum að gera og hvað við vorum að fara út í.“ Keflvíkingar eru komnir í sextán liða úrslit Evrópukeppninnar þar sem þeir mæta kunnuglegu liði, CAB Madeira frá Portúgal sem þeir hafa mætt þrjú ár í röð í keppn- inni. „Þeir virðast vera sterkari núna en þeir hafa verið áður og eru til að mynda efstir í deildinni í Portúgal. Þeir eru með mjög sterkt lið en það er allt hægt þannig að við erum hvergi bangnir.“ sagði Sigurður en fyrri leikurinn fer fram í Keflavík 8. desem- ber en síðari leikurinn ytra viku síðar. SIGURÐUR INGIMUNDARSON, ÞJÁLFARI KEFLAVÍKUR: GEFUR LÍTIÐ FYRIR GAGNRÝNISRADDIRNAR Engin vanvirðing hjá okkur FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þor- valdsson, leikmaður Halmstad í Svíþjóð, missir af stórleik liðsins gegn Sampdoria Í UEFA-bikar- keppninni á fimmtudaginn vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu liðsins í gær. Gunnar Heiðar er þó ekki mikið meiddur og verður að öllum líkindum með liðinu gegn Steaua frá Búkarest í lok mán- aðarins en Halmstad hefur tapað báðum leikjum sínum í keppninni til þessa og enn ekki náð að skora. Gunnar Heiðar er enn mjög eftirsóttur af liðum í Evrópu en ensk og þýsk lið hafa verið að bera víurnar í Gunnar sem varð markakóngur í Svíþjóð á nýaf- stöðnu tímabili. Gunnar á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Halmstad og fer að öllum líkind- um frá félaginu í janúarmánuði þegar liðin geta farið að tala við hann. Halmstad vill fá um tvær milljónir punda fyrir kappann en meðal liða sem áhuga hafa á Gunnari eru ensku úrvalsdeildar- félögin Everton og Birmingham. - hþh Gunnar Heiðar Þorvaldsson meiddur: Ekki með gegn Sampdoria GUNNAR HEIÐAR Væntanlega ekki illa slasaður. FÓTBOLTI Hjörtur Júlíus Hjartar- son, markakóngur Skagamanna í sumar hefur ákveðið að fram- lengja dvöl sína hjá liðinu og mun hann því spila með ÍA næsta sumar. Hjörtur fékk gullskóinn á Íslandsmótinu árið 2001 þegar hann skoraði fimmtán mörk en hann setti þau sex í sumar og var liðinu mjög mikilvægur. Hann spilaði fjórtán leiki með ÍA en þurfti síðan að fara til Banda- ríkjanna þar sem hann stundar nám samhliða knattspyrnunni og missti af síðustu fjórum leikjum liðsins. Hjörtur er 31 árs og lýsti því yfir eftir síðasta leik sinn með Skagamönnum í sumar að hann mundi helst vilja spila áfram með Skagaliðinu. Báðir aðilar eru því í skýjunum með málið en líklegt er að Skagamenn þurfi að fara á markaðinn í leit að öðrum sóknarmanni því Sigurður Ragn- ar Eyjólfsson verður ekki með ÍA næsta sumar. Sigurður sleit krossband og er á leiðinni í aðgerð í byrjun desember vegna meiðsl- anna sem halda honum frá knatt- spyrnuiðkun í marga mánuði. - hþh Góð tíðindi fyrir ÍA: Hjörtur áfram á Skaganum HJÖRTUR HJARTARSON Fagnar hér einu að mörgum mörkum sínum fyrir ÍA. Hann mun væntanlega fagnaf fleiri mörkum næsta sumar í gula búningnum. FÓTBOLTI Forystumenn Chelsea láta fátt stöðva sig þegar þeir vilja fá einhvern leikmann og það sönnuðu þeir í gær með því að punga út rúmlega 370 milljónum króna fyrir 16 ára strák frá Ser- bíu, Slobodan Rajkovic. Þetta er hæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann sem er yngri en 18 ára. Rajkovic mun vera í herbúð- um OFK Belgrade fram á sumar 2007 en þá flytur hann til London. Chelsea var ekki eina liðið sem hafði áhuga á þessum stórefni- lega strák sem er fastamaður í U-21 árs landsliði Serba. Arsenal og AC Milan sýndu honum einnig mikinn áhuga en voru ekki tilbúin að greiða jafn mikið og Chelsea fyrir hann. - hbg Chelsea setur heimsmet: Kaupir 16 ára strák á 370 milljónir króna FÓTBOLTI Stuðningsmenn enska landsliðsins í knattspyrnu munu eyða samtals rúmum 300 millj- örðum króna í varning tengdan þátttöku enska liðsins í HM á Þýskalandi næsta sumar, fari svo að liðið komist alla leið í sjálfan úrslitaleikinn. Þetta voru niður- stöður könnunar sem NatWest kreditkortafyrirtækið á Bret- landseyjum stóð nýlega fyrir. Fyrrnefnd upphæð snýst að öllu sem viðkemur þátttöku enska liðs- ins, meðal annars að sölu keppnis- treyja, ferðalögum til Þýskalands og gríðarlegri áfengisneyslu. Fastlega er gert ráð fyrir því að enska þjóðfélagið fari á annan endann ef lið þeirra kemst í úrslit HM. En jafnvel þó að liðið komist ekki þangað gerir könnunin ráð fyrir því að eyðsla ensku stuðn- ingsmannanna muni að lágmarki verða 110 milljarðar. Könnunin sýndi að hinn almenni stuðningsmaður er lík- legur til að kaupa sér þrjá bjóra kjósi hann að horfa á leik á bar og að lágmarki einn sérstakan HM-drykk sem flestar krár í Englandi bjóða upp á þegar HM er annars vegar. Ef stuðnings- maðurinn kýs að horfa á leik- inn í heimahúsi mun hann fá sér að minnsta kosti fjóra bjóra og meðalstóra pitsu með heim- sendingarþjónustu. Þá er búist við því að yfir fimmtíu þúsund Englendingar fari til Þýskalands til að berja goðin augum og mun það ferðalag kosta samtals 3,5 milljarða. Er þá ekki talinn með kostnaður vegna uppihalds, áfengis eða öðru slíku. - vig Almenningur í Englandi hefur áhuga á landsliði sínu: Enskir stuðningsmenn munu missa sig yfir HM KLIKKAÐIR Stuðningsmenn Englands eru líklega þeir ötulustu sem finna má í heim- inum. Fastlega má búast við því að enska þjóðfélagið muni fara á annan endann nái enska landsliðið að komast langt á HM. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES � � SJÓNVARP � 15.00 World Golf Championship á Sýn. � 15.35 Helgarsportið á Rúv. � 18.30 NFL á Sýn. Bengals gegn Colts. � 20.30 Ítölsku mörkin á Sýn. � 21.00 Ensku mörkin á Sýn. � 21.30 Spænsku mörkin á Sýn. � 22.00 Bardaginn mikli á Sýn. Tyson gegn Lewis. � 23.25 Spænski boltinn á Sýn. Real gegn Barcelona. � 23.50 Ensku mörkin á Rúv. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 18 19 20 21 22 23 24 Mánudagur OKTÓBER FÓTBOLTI Það kraumar allt í her- búðum Manchester United þessa dagana og menn bíða spenntir eftir nýjum fréttum. Ferguson er búinn að reka hjarta liðsins á brott en á sama tíma á liðið verulega undir högg að sækja innan vallar og ekkert leyndarmál að farið er að hitna undir Ferguson. Staða hans styrktist ekki í gær þegar þýski þjálfarinn Ottmar Hitzfeld greindi frá því að hann hefði feng- ið tilboð frá United og væri tilbú- inn að snúa aftur í boltann. „Mig langar að koma aftur í boltann og næsta sumar væri fínn tímapunktur. Eiginkona mín myndi koma með mér til Manchester og ég er tilbúinn í nýja áskorun,“ sagði Hitzfeld við þýska fjölmiðla en hann hefur ekki starfað í knattspyrnuheim- inum síðustu 18 mánuði. Hann er almennt talinn einn besti þjálfari Evrópu enda gerði hann bæði Bay- ern Munchen og Borussia Dort- mund að Evrópumeisturum. Fjöl- mörg félög hafa reynt að freista Hitzfelds síðan hann hætti og meðal annars stóð honum til boða að þjálfa þýska landsliðið. Hann sagði nei og kom sú ákvörðun hans verulega á óvart enda vildi flestir Þjóðverjar að hann myndi stýra liðinu á HM næsta sumar en sem kunnugt er fer keppnin fram í Þýskalandi. Hitzfeld segir það skipta sig miklu að kona hans vill koma með til Manchester. „Það skiptir gríðarlega miklu máli. Ég hef fengið tilboð víða í gegnum tíðina og meðal annars frá Mílanó en ég sé mig ekki fyrir mér að þjálfa á Ítalíu. Ég verð 57 ára í janúar og sé mig ekki fyrir mér hætta á þeim aldri. Ég er til- búinn að vinna á nýjan leik,“ sagði Hitzfeld sem nýlega hafnaði til- boði frá Hearts um að þjálfa liðið. henry@frettabladid.is Hitzfeld segir United hafa boðið sér vinnu Þýski þjálfarinn Ottmar Hitzfeld greindi frá því í gær að Man. Utd hefði boðið honum starf en sagði ekki hvort það væri starf knattspyrnustjóra. Þetta þykja ekki vera góð tíðindi fyrir Sir Alex Ferguson, stjóra United. HERSHÖFÐINGINN Á OLD TRAFFORD Ottmar Hitzfeld gengur stundum undir nafninu Hers- höfðinginn en hann þykir einstaklega klókur þjálfari. Hann hefur margoft áður verið orðað- ur við stjórastöðuna hjá Man. Utd en aldrei hefur þótt eins líklegt að hann fari til liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Skýrist í vikunni Framtíð Garðars Gunnlaugssonar skýrist að öllum líkindum í vikunni en nokkur erlend félög hafa borið víurnar í hann síðustu vikur. Meðal annars franska liðið Dijon. Ef Garðar fer ekki utan verður hann áfram með Val. > Ólöf að missa af lestinni? Ólöf María Jónsdóttir er í 63. sæti á lokastigi úrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina eftir tvo hringi. Hún lék fyrsta hringinn á 80 höggum en stóð sig ívið betur í gær er hún kom í hús á 76 höggum. Hún er samtals á tíu höggum yfir pari. Ólöf þarf klárlega að leika sitt besta golf næstu daga ætli hún sér að komast á Evr- ópumótaröðina því aðeins 30 efstu fá fullan þáttökurétt á mótaröð- inni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.