Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 81

Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 81
MÁNUDAGUR 21. nóvember 2005 37 Enska úrvalsdeildin: TOTTENHAM-WEST HAM 1-1 1-0 Mido (16.), 1-1 Anton Ferdinand (90.). MIDDLESBROUGH-FULHAM 3-2 0-1 Collins John (9.), 1-1 James Morrison (64.), 1-2 Papa Boupa Diop (70.), 2-2 Aiyegbini Yakubu (76.), 3-2 Jimmy Floyd Hasselbaink (84.). Heiðar Helguson lék síðustu 13 mínútur leiksins fyrir Fulham. STAÐAN: CHELSEA 13 11 1 1 31-7 34 WIGAN 12 8 1 3 15-8 25 MAN. UTD 12 7 3 2 19-12 24 ARSENAL 12 7 2 3 19-10 23 BOLTON 12 7 2 3 14-11 23 MAN. CITY 13 6 3 4 15-11 21 SPURS 12 5 5 2 13-8 20 LIVERPOOL 11 5 4 2 12-8 19 CHARLTON 12 6 1 5 17-17 19 WEST HAM 11 5 3 3 15-10 18 MIDDLESB. 13 5 3 5 18-18 18 BLACKB. 13 5 3 5 15-15 18 NEWCASTLE 13 5 3 5 12-13 18 FULHAM 13 3 3 7 14-19 12 A. VILLA 13 3 3 7 13-22 12 WBA 13 3 2 8 13-22 11 PORTSMOUTH 13 2 4 7 11-18 10 EVERTON 12 3 1 8 4-16 10 BIRMINGH. 12 1 3 8 7-17 6 SUNDERL. 13 1 2 10 12-27 5 Ítalska úrvalsdeildin: CHIEVO-ASCOLI 1-1 Pellissier - D´Anna. FIORENTINA-AC MILAN 3-1 Luca Toni 2, Martin Jörgensen - Alberto Gilardino. LECCE-SIENA 3-0 Konann Vucinic, Cozzolino. LIVORNO-EMPOLI 2-0 Morrone, Lucarelli. REGGINA-CAGLIARI 3-1 Amoruso, Cozza (víti), Paredes - Abeijon. SAMPDORIA-LAZIO 2-0 Diana, Flachi. TREVISO-PALERMO 2-2 Reginaldo 2 - Ferri, Brianza. Hollenska úrvalsdeildin: GRONINGEN-AZ ALKMAAR 0-0 Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði Alkmaar og lék allan leikinn. ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Heiðar Helguson og félagar í Fulham sóttu ekki gull í greipar Middlesbrough á River- side-vellinum í gær. Þrátt fyrir að hafa tvisvar komist yfir í leiknum vann Boro leikinn, 3-2. Jimmy Floyd Hasselbaink skoraði sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok en bæði lið lögðu allt undir á lokakaflanum sem var í meira lagi fjörugur. Hasselbaink átti einnig jöfnunarmarkið en hann skaut óvart í Yakubu og þaðan fór boltinn í netið. Boro sótti án afláts í kjölfarið og Hasselbaink tryggði síðan sigurinn eins og áður segir. Heiðar Helguson spilaði síð- ustu mínútur leiksins og gerði allt vitlaust þegar hann stökk með hnéð í bakið á einum leik- manni Boro. Í fyrri leik gærdagsins mætt- ust Lundúnaliðin Tottenham og West Ham en bæði lið hafa verið á fínni siglingu í vetur. Spurs komst yfir með skalla- marki Egyptans Mido en það var litli bróðir Rios Ferdinand, Anton, sem jafnaði metin fyrir West Ham rétt fyrir leikslok og tryggði þeim þar með eitt stig í leiknum. Mikil dramatík í enska boltanum í gær: Hasselbaink tryggði Boro sætan sigur MARKASKORARARNIR Egyptinn Mido hjá Tottenham og Anton Ferdinand, leikmaður West Ham, bítast hér um boltann í leik Spurs og West Ham á White Hart Lane í gær. Þeir skor- uðu mörkin í jafnteflisleik, 1-1. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES AKSTURSÍÞRÓTTIR Alexandre Premat sá til þess að Frakkar tóku afger- andi forystu í A1-kappakstrin- um þegar hann stýrði bíl sínum örugglega til sigurs í Malasíu. Premat tók forystuna snemma og hélt henni örugglega allt til loka. Keppendur í A1 geta átta sinnum í hverri keppni notað svokallað- an „krafttakka“ sem gerir það að verkum að bíllinn fer hraðar. Yfir- burðir Premats voru slíkir að hann þurfti aðeins einu sinni að grípa til krafttakkans. „Ég notaði takkann til þess að komast fram úr Svisslendingn- um Jani og síðan gat ég slakað á. Bíllinn var frábær og þetta gekk allt ótrúlega vel,“ sagði Premat en Frakkar hafa nú fengið 92 stig en Sviss er í öðru sæti með 65 stig. Brasilía kemur síðan í því þriðja með 60 stig og Nýja-Sjáland er með 42 stig. - hbg Línur farnar að skýrast í A1-kappakstrinum: Frakkar búnir að stinga af ALEXANDRE PREMAT Hefur farið á kostum í A1-aksturskeppninni.FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.