Tíminn - 15.10.1976, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.10.1976, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. október 1976 TÍMINN 3 SFV LOGÐ NIÐUR SEM LANDSSAMTÖK HV-Reykjavík. — Fram- kvæmdastjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna hefur lagt niður störf sín og aflýst lands- fundi samtakánna, sem halda átti í lok þessa mán- aðar. A fundi framkvæmdastjórnar samtakanna þann 12. október síð- astliðinn fluttu þeir Ólafur Ragn- ar Grimsson, Karvel Pálmason og Magnús Torfi Ólafsson tillögu, þess efnis, að vegna þess hve skoðanir væru skiptar um leiðir til að vinna'að upphaflegu mark- miði samtakanna, beri að leggja þau niður sem landssamtök, en þess i stað verði nverri einingu þeirra — þingflokki, kjördæma- samböndum. flokksfélögum og einstaklingum — gefið sjálfdæmi um það hverjar leiðir hún velji i starfi sinu. 1 samræmi við þetta myndi framkvæmdastjórn fela þing- flokki meðferð sameiginlegra verkefna, sem sinna þarf. visa sérmálum til einstakra skipu- lagseininga, leggja niður störf sin sjálf og aflýsa fyrirhuguðum landsfundi. Tillaga þessi var samþykkt ein- róma af öllum framkvæmda- stjórnarmönnum, og þvi hafa samtökin verið lögð niður sem landssamtök. Auk flutningsmanna tillögunn- ar, Olafs Ragnars Grimssonar, Karvels Pálmasonar og Magnús- ar Torfa Ólafssonar, áttu eftir- taldir menn sæti i framkvæmda- stjórnSFV: Andrés Kristjánsson, Arnór Karlsson, Elias S. Jónsson, Eyjólfur Eysteinsson, Halldór S. Magnússon. Haraldur Henrýsson, Herdis Olafsdóttir, Jón Helgason, Kristján Bersi Ólafsson og Stein- unn Finnbogadóttir. Friðgeir Björnsson og Sigurjón I. Hillariusson, sem kosnir voru i framkvæmdastjórnina á lands- fundi 1974, hafa dvalið langdvöl- um erlendis, segir i frétt SFV. Magnús Torfi Ólafsson: Minn vettvangur er samtökin — og á því verður engin breyting. HV-Reykjavik. — Að mínu áliti þýðir þetta ekki, að Sam- tökin séu að leggja upp laupana, sagði AAagnús Torfi Ólafsson, formaður þingf lokks Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, í viðtali við Timann í gær. — Það, sem gerðist, sagði Magnús, var að framkvæmda- stjórn flokksins komst i raun að þeirri niðurstöðu, að eins og sakir standa sé hún, vegna ágreinings um megin mál, ekki fær um að gegna þvi hlutverki að móta sam- eiginlega stefnu flokksins, og á- kvað þvi að leggja niður störf. Framtiðin verður svo að sýna, hvað á eftir fer, en ég, fyrir mitt leyti, er siður en svo á þeim bux- unum, að samtökin hverfi úr sög- unni, og tel ég að fjöldi samtaka- fólks sé sama sinnis. Nú standa málin þannig, að hver flokkseining mun starfa á- fram á sinum grundvelli og á sinu svæði, en fyrir hendi verður ekki að sinni nein stofnun, sem annast mótun sameiginlegrar stefnu. Áfram er þó við lýði flokksstjórn, sem komið getur saman, þegar á þarf að halda, þannig að þetta þarf ekki að þýða, að flokkurinn hafi ekki sameiginlega stefnu i þeim málum, sem upp kunna að koma. Aðspurður um það, hvort ein- hverra breytinga væri að vænta á starfsvettvangi hans sjálfs i ljósi þessara sviptinga, sagði Magnús Torfi: — Minn starfsvettvangur i stjórnmálum hefur verið samtök- in og á þvi verður engin breyting. Ég hef látið það i ljós á öðrum vettvangi, að of litið hefur miðað i þá átt, sem miðin voru sett á i upphafi, en ég tel þó þróun mála á þvi þingi, sem nú situr, benda til þess, að bilið milli þeirra flokka, sem skiða sér á vinstri væng i is- lenzkum stjórnmálum, hafi minnkað. Tel ég, að málaflutn- ingur og starf samtakanna hafi átt sinn þátt i þeirri þróun. Annars gildir það nú, sem svo oft áður, að um óorðna hluti er bezt að hafa engin orð að sinni, sagði Magnús Torfi að lokum. Magnús Torfi ólafsson Hannibal: Hættur í orði ?g * borði FJ-Reykjavik. Timinn haföi i gær samband við Hannibal Valdimarsson, fyrrverandi aiþingismann og ráðherra og aðalhvatamann að stofnun Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, og spurði hann álits á samþykkt fram- kvæmdastjórnar SFV. Hannibal svaraði þvi til, að hann væri hættur i stjórn- málum bæði i orði og á borði og þvi vildi hann ekkert láta hafa eftir sér um þetta mál. Karvel Pálmason: MÍNAR SKOÐANIR ERU EKKI FALAR — en öllum má vera Ijóst, að við leitum til Alþýðuflokksins Karvel Pálmason HV-Reykjavik. — Það eina, sem gerzt hefur, er aö framkvæmda- stjórn Samtakanna hefur lagt niður stör-f sin. Þetta þýðir engan veginn, að Samtökin sem slik hafi verið lögð niður, sagði Karvel Pálmason, formaður þingflokks Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, i viðtali við Timann i gær. — Við töldum einungis æski- legt, sagði Karvel ennfremur, að hver eining flokksins fengi sjálf- dæmi um starf sitt, þar sem við teljum æskilegt, að einingarnar geti valið þær leiðir, sem hver og ein telur farsælastar til að vinna að upprunalegum markmiðum samtakanna. Hvort þetta endanlega leiðir til þess, að samtökin leysist upp, verður framtiðin að skera úr um, en út af fyrir sig gerir þetta mál það ekki, þvi framkvæmdastjórn hefur einfaldlega ekki völd til að leggja flokkinn niður. Reynslan verður einnig að sýna, hvort ein- hverjar einingar flokksins taka sig út úr. Telur þú sjálfur, Karvel, að þetta muni leiða til þess, að sam- tökin lognist út af? — Ég hef að sjálfsögðu minar Framhald á bls. 19. Heildar-aflinn fyrstu 9 mánuði ársins: gébé Rvik. — Heildarfiskafli islenzka fiskiskipaflotans fyrstu niu mánuði ársins, var 840.881 lest, eða tæplega fjögur þúsund lestum meira en á sama tima i fyrra. Botnfiskafli bátaflotans er injög svipaður og á sama tima i fyrra, en togaraaflinn er heldur meiri nú. Hins vegar er afli á rækju, hörpudiski, humri, kol- Rúmum i meiri en munna og spærlingi mun meiri en á sama tima i fyrra. Allar tölur eru fengnar hjá Fiskifélagi ís- lands. Botnfiskafli bátaflotans skiptist niður á landshluta sem hér segir: Hornafjörður/ Stykkishólmur: 148.941 lest, Vestfirðir, 27.529 lest- ir, Norðurland, 16.818 lestir, og Austfirðir 14.613 lestir. iþúsund í fyrra Þann 30. september sl. höfðu is- lenzk skip landað bæði erlendis og innanlands alls 8.608 lestum af sild. Loðnuaflinn á sama tima var i heild orðinn nú i ár, 442.857 lest- ir, en var i fyrra 456.900 lestir. Rækjuaflinn fyrstu niu mánuði ársins var 4.362 lestir ■ i var 3.147 lestir á sa>- i tima i í. , 2.298 tonnum lestir höfðu veiðzt af hörpudiski, en 1.758 lestir á sama tima i fyrra og humaraflinn i ár varð 2.757 lestir, en var. 2.357 á sama tima i fyrra. 628 lestir veiddust af kol- munna i ár, en ekkert i fyrra. Af öðrum tegundum, svo sem spær- lingi og öðrum, var aflinn samtáls 12.779 lestir nú, en var aðeins 214 lestir i fyrra. áviðavangi Vilja flæma Karvel úr nefndinni Dálitiö sérstætt mál er kom- iö upp á Alþingi {sambandi viö fjárveitinganefnd, en kosningu nefndarinnar var frestað i fyrradag sökum á- greinings milli Alþýöubanda- lagsins og Samtakanna (rang- hermt var i blaöinu i gær, að kosning nefndarinnar heföí fariöfram). Máliö er þaö, aö á sinum tima var gerö laga- breyting og nefndarmönnum fjölgaö úr níu I tiu. Var þessi breyting gerð til aö auövelda þaö, aö allir flokkar gætu átt fulltrúa i ncfndinni. Alþýðu- bandalagið og Samtökin hafa siöan boðið frain samciginleg- an lista, sem tryggöi það, að fulltrúi Samtakanna, Karvel Pálma- son, kæmist i nefndina. En eft- ir Vestfjaröayfirlýsingu Sam- takanna, þar sem Karvel hall- aði sér aö Alþýöuflokknum, hafa kærleikar kólnaö milli hans og Alþýöubandalagsins. Og nú er svo komiö, aö Al- þýöubandalagiö vill ekki kosn- ingabandalag viö Karvel I sambandi við kosningu l fjár- veitinganefnd, heldur ætlar sjálfu sér tvo fulltrúa I nefnd- ina I staö eins áöur. Stjórnar- flokkarnir hafa átt sjö fulltrú- a, Sjállstæöisflokkur 4 og Framsóknarflokkur 3, en stjórnarandstööuflokkarnir þrir einn fulltrúa hver. Ekki er ljóst, hvernig þessu máli munu lykta, cn aö öllum likindum veröur Karvel flæmdur úr fjárveitinganefnd af fyrrverandi vinum sinum i Alþýöubandalaginu. Agaleysið í þjóðfélaginu N'ýlega birtust hugleiðingar i blaöinu Degi á Akureyri um agaleysiö i þjoðfélaginu. Þar segir m.a.: ,,Ein:: úr hópi alþingis- manna, Eyj- ólfur Konráð Jónsson, til- kynnti virðu- legum ráöu- neytum þá á- kvöröun sína, aö hann meö byssu I hönd ætl- aöi sjálfur aö hefja slátrun á Sauöárkróki, hvort sem leyfi yfirvalda til slátrunar I því sláturhúsi væru veitt eöa ekki. Því er þessi siðlausa fram- koma þingmannsins gerö aö umtalsefni, aö hún er I beinu framhaldi af þvi agaleysi og uppivöðslu i þjóöfélaginu sem nú einkennir það öörum tím- um fremur. Ekkert væri viö þaö að athuga, þótt þingmaö- urinn vildi skipta uni atvinnu og færi aö vinna i siáturhúsi, jafnvel aö aflifa skepnur, ef einhver treysti honum til þess. Hitt er injög vafasamt, hvort hann á nokkurn siöferöilegan (eða lagalcgan) rétt til aö sitja á Alþingi eftir aö hafa opin- berlega tilkynnt ákvöröun sina um skýlaust lagabrot meö drápsvopn i hönd.” — a.þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.