Tíminn - 15.10.1976, Side 7
Föstudagur 15. október 1976
TtMINN
7
Norræn menningar-
vika í Kópavogi
Á morgun hefst i Kópavogi nor-
ræn menningarvika.
Aödragandi vikunnar er sá,
segir i frétt frá framkvæmda-
nefndi að á sl. ári bauö Nor-
ræni menningarsjóöurinn I Kaup-
mannahöfn fram styrk meöal
sveitarfélaga á Norðurlöndum, til
þess aö efla kynningu á sviöi
menningarmála þeirra á milli.
Hlaut Kópavogskaupstaöur
styrk frá sjóönum til þessa, og fól
bæjarstjórn Kópavogs fulltrúum
frá Leikfélagi Kópavogs, Lista-
og menningarsjóði Kópavogs,
Norræna félaginu i Kópavogi og
Tómstundaráöi Kópavogs aö ann-
ast framkvæmd og skipulagningu
vikunnar, ásamt bæjarstjóranum
i Kópavogi.
SU hugmynd kom fljótlega
fram, aö bjóöa vinabæjum Kópa-
vogs á Noröurlöndum þátttöku i
vikunni, og þáöu þeir allir boöiö,
en þeir eru Angmagssalik á
Grænlandi, Klaksvik i Færeyjum,
Mariehamn á Álandseyjum,
Norrköping i Sviþjóö, Odense i
Danmörku, Tampere i Finnlandi
og Þrándheimur i Noregi.
Meginþættir menningarvikunn-
ar verða sýning aö Hamraborg 1
frá fyrrnefndum vinabæjum og
ráðstefna i Félagsheimili Kópa-
vogs um tómstundamálefni og
hlutdeild sveitarfélaga i þeim.
Veröa fyrirlesarar frá öllum
vinabæjunum og kynna þeir
framlag sinna sveitarfélaga til
tómstundastarfsemi. Til ráö-
stefnunnar er boöiö fulltrúum
allra félaga i Kópavogi, auk
ýmissa annarra. Ráöstefnan,
sem er opin almenningi til
áheyrnar eftir þvi sem húsrúm
leyfir, verður á sunnudag.
Grafik sýning verður aö
Hamraborg 1 (neðri sal) meö
verkum eftir listamenn frá Norr-
köping, Odense og Islandi. Sýning
þessier tilkomin vegna samvinnu
Lista- og menningarsjóðs viö
Norrköpings Museum og Fyns
stiftmuseum i Odense og hafa
verkin verið sýnd á þeirra vegum
i Norrköping og Odense.
Ýmislegt annaö veröur um aö
vera i vikunni i Félagsheimili
Kópavogs.
Laugardaginn 16. október frum-
sýnir Leikfélag Kópavogs verk
Williams Heinesens, „Glataöir
snillingar”.
Sunnudaginn 17. október verður
norræn kvöldvaka meö dagskrá
um Angmagssalik, Klaksvik,
Mariehamn og Kópavog.
Mánudaginn 18. október verður
kvikmyndasýning og sýnd danska
myndin „Mansku’være noget ved
musikken”.
Þriöjudaginn 19. október veröur
norræn kvöldvaka meö dagskrá
um Norrköping, Odense, Tamp-
ere og Þrándheim.
Miövikudaginn 20. október sýnir
leikflokkur Þjóöleikhússins Inúk.
Fimmtudaginn 2l.októberveröur
önnur sýning Leikfélags Kópa-
vogs á Glötuöum snillingum eftir
William Heinesen.
Föstudaginn 22. október veröur
seinni sýningin á dönsku kvik-
myndinni „Man sku’være noget
ved musikken”.
Mánudaginn 18. október flytur
Clifford Long fornleifafræðingur
erindi á vinabæjarsýningunni að
Hamraborg 1 um fornleifaupp-
gröft i Þrándheimi.
1 tengslum viö menningarvik-
una efnir Norræna félagiö i Kópa-
vogi til ritgeröarsamkeppni um
vinabæina meöal skólanema i
Kópavogi frá 11 ára aldri.
Einstaklingar og félög hafa
gert sitt til aö gera „Norrænu
menningarvikuna” i Kópavogi
mögulega. Þaö er von þeirra, sem
aö vikunni standa, aö hún megi
veröa til aö stuöla aö auknum
kynnum og vaxandi samvinnu
hinna norrænu þjóða, og er þvi
ástæöa til aö hvetja sem flesta til
aðkynna sér þaö, sem þar er boö-
iö fram.
1 framkvæmdanefnd Norrænu
menningarvikunnar eru:
Björgvin Sæmundsson frá
Bæjarstjórn Kópavogs.
Björn Magnússon frá Leikfé-
lagi Kópavogs
Hjálmar ólafsson frá Norræna
félaginu i Kópavogi
Jón Guölaugur Magnússon frá
Lista- og menningarsjóöi Kópa-
vogs
Pétur Einarsson frá Tóm-
stundaráöi Kópavogs
Framkvæmdastjóri vikunnar
er Einar Ingi Sigurösson.
SMIDJUVI 'GI 6 SIMI 44544
Verðlækkun
Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju
vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega:
Bergamo
Sófasettið hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000
Staðgreiðsluverð í dag kr. 186.000.—
Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner” stíl.
Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt.
Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð
Opið til
kl. 19 föstud.
kl. 12 laugard.
Verksmiðiu
SIÐASTI DAGUR!
Verksmiðjuútsölunni í Iðnaðarhúsinu,
Hallveigarstíg 1, lýkur á morgun
OPIÐ KL. 9-12
Seldar eru lítið gallaðar vörur frá verksmiðjum okkar
á Akureyri, Borgarnesi og í Reykjavík
SÍÐASTA TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA GÆÐAVÖRU Á GJAFVERÐI
Iðnaðardeild Sambandsins
Auglýsmgndeild