Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 82
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR38
FARÐU
Á LEIKINN
...EÐA SPILAÐU HANN Í PSP!
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR OG VINI ÞÍNUM AÐ SJÁ
CHELSEA • LIVERPOOL 6. DES. Á STAMFORD BRIDGE!
SENDU SMS SKEYTIÐ JA VAS Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VIÐ SENDUM ÞÉR 2 SPURNINGAR. ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA
SMS SKEYTIÐ JA A, B EÐA C Á NÚMERIÐ 1900!
VINNINGAR ERU • FERÐ FYRIR 2 Á CHELSEA-LIVERPOOL* • PSP TÖLV
UR
• PLAYSTATION2 TÖLVUR • FIFA 2006 [PSP] • PRO EVOLUTION SOCC
ER 5 [PSP]
• CHAMPIONSHIP MANAGER [PSP] • LJÓSATÍMAR Í LINDARSÓL
• FULLT AF TÖLVULEIKJUM, KIPPUR AF COCA COLA OG FLEIRA
*FERÐIN Á LEIKINN ER DREGINN ÚR ÖLLUM INNSENDUM SMS SKEYTUM OG NAFN VINNINGSHAFA VERÐUR BIRT Á WWW.GRAS.IS 2.DES 2005.
VINNINGAR VERÐA AFHENTIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI, MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 149 KR/SKEYTIÐ
SMS LEIKUR
DHL-deild karla:
ÍR-FRAM 32-38 (17-19)
Mörk ÍR: Andri Númason 6, Hafsteinn Ingason
6/1, Ólafur Sigurjónsson 5/1, Ísleifur Sigurðsson
5, Björgvin Hólmgeirsson 4, Tryggvi Haraldsson 3,
Ragnar Helgason 2, Karl Gunnarsson 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 24/1.
Mörk Fram: Sergey Serenko 9, Jóhann Gunnar
Einarsson 7, Þorri Björn Gunnarsson 6, Haraldur
Þorvarðarson 6, Guðjón Drengsson 3, Sigfús Sig-
fússon 2, Jón B. Pétursson 2/2, Sverrir Björnsson
1, Stefán Stefánsson 1, Gunnar Harðarsson 1.
Varin skot: Egidijus Petkevicius 23/1, Magnús
Erlendsson 1.
HK-FH 29-26
Mörk HK: Valdimar Þórsson 8/7, Remigijus Cepul-
is 5, Elías Már Halldórsson 4, Maxim Shalimov 3,
Brynjar Valsteinsson 3, Jón Gunnarsson 2.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 17, Arnar Freyr
Reynisson 7.
Mörk FH: Valur Arnarson 8, Linas Kalauskas 6/2,
Jón H. Jónsson 3, Daníel Berg Grétarsson 2, Finnur
Hansson 2, Sigursteinn Arndal 2, Pálmi Hlöðvers-
son 1, Heiðar Arnarson 1, Hjörleifur Þórðarson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 17.
STAÐA EFSTU LIÐA:
VALUR 10 8 0 2 310-274 16
FRAM 11 7 2 2 301-284 16
HAUKAR 8 6 1 1 241-215 13
Þýska úrvalsdeildin:
MAGDEBURG-NORDHORN 32-27
Sigfús Sigurðsson skoraði eitt mark fyrir Magde-
burg en Arnór Atlason komst ekki á blað.
MINDEN-GROSSWALLSTADT 27-29
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 9/2 mörk fyri
Minden. Einar Hólmgeirsson skoraði 2 fyrir Gross-
wallstadt og Alexander Petersons var með 12/7.
Iceland Express-deild kvk:
BREIÐABLIK-KR 66-71
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Fréttablaðið vann örugg-
an, og óvenju glæsilegan, sigur
á Fjölmiðlamótinu sem fram fór
í gær. Á leiðinni í úrslitin lagði
Fréttablaðið lið Stöðvar 2, Morg-
unblaðsins, Blaðsins og finna.is.
Í úrslitum mætti Fréttablaðið
liði Stöðvar 2 öðru sinni og Ívar
Guðmundsson kom Stöð 2 yfir en
það var fyrsta, og eina, markið
sem Fréttablaðið fékk á sig á mót-
inu.
Stöð 2 var ekki lengi í parad-
ís því Árni Þór Sævarsson jafn-
aði leikinn skömmu síðar og Jón
Skaftason tryggði Fréttablaðinu
síðan verðskuldaðan sigur með
stórglæsilegu marki en Jón fór á
kostum í mótinu og skoraði sex
mörk í öllum regnbogans litum.
Fjölmiðlamótið í knattspyrnu:
Glæsilegur sigur hjá
Fréttablaðinu
LANGBESTIR Sigurlið Fréttablaðsins. Efri röð frá vinstri: Árni Þór Sævarsson, Pétur Atli Lár-
usson, Jón Skaftason, Freyr Bjarnason og Þorsteinn Eyfjörð Jónsson. Neðri röð frá vinstri:
Trausti Hafliðason, Teitur Jónasson, Jón Kaldal fyrirliði og Ingi Freyr Vilhjálmsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HANDBOLTI „Ég er rosalega ánægð-
ur með sigurinn. Við spiluðum
alveg fantavel, sóknarleikurinn
var fjölbreyttur og við gerum
sæg af mörkum í öllum regnbog-
ans litum. Mér fannst varnarleik-
urinn ekki alveg nægilega góður
til að byrja með en svo kom hann
svo um munaði í síðari hálfleik og
var ofboðslega sterkur og þá kom
markvarslan líka og Petkevicius
var stórkostlegur í síðari hálf-
leiknum,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson þjálfari Fram eftir leik-
inn. Petkevicius lokaði markinu á
köflum og varði 23 skot en Sergey
Serenko komst loksins á flug og
skoraði níu mörk og Jóhann Gunn-
ar Einarsson sjö.
„Það er ekkert auðvelt að vinna
ÍR hérna á þeirra heimavelli, þeir
eru með sterkt lið og þess vegna
erum við í skýjunum yfir því að
ná sigrinum. Við töpuðum síðasta
leik og gerðum jafntefli þar áður
og því var þetta mjög mikilvæg-
ur sigur. Við þurftum virkilega á
báðum stigunum að halda og það
tókst. Það var magnaður karakter
í liðinu og andinn í hópnum er frá-
bær, nú þurfum við bara að fylgja
þessu eftir, við höfum burðina til
þess. Við þurfum að nota hléið vel
til að stilla saman strengina og
bæta okkur,“ sagði Guðmundur að
lokum.
Hafsteinn Ingason var sínum
gömlu félögum erfiður en hann
skoraði sex mörk og var marka-
hæstur ÍR ásamt Andra Núm-
asyni. „Það er alltaf gaman að
mæta gömlu félögunum en það er
skemmtilegra að vinna þá. Þeir
voru bara miklu betri en við á
öllum sviðum, það er nokkuð ljóst.
Við náum aldrei upp þeirri sterku
vörn sem við höfum verið að spila
í vetur og þetta var bara lélegt.
Vörnin var líka slök í síðasta leik
og er að eyðileggja þetta allt fyrir
okkur. Við náum samt að halda
hraðanum áfram og það er líklega
það eina jákvæða við leikinn. Við
erum að klára færin okkar illa
og Petkevicius var að verja vel
í markinu,“ sagði Hafsteinn við
Fréttablaðið, súr í broti eftir leik-
inn.
- hþh
Öruggur Framsigur á ÍR
Framarar áttu ekki í erfiðleikum með að sigra ÍR í Austurbergi í gær en góður
síðari hálfleikur var lykillinn að 38-32 sigri Fram.
SERENKO SJÓÐHEITUR Úkraínumaðurinn Sergey Serenko vann loksins fyrir kaupinu sínu í
gær og skoraði níu mörk í sigri Fram á ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HANDBOLTI Í Digranesi fór undar-
legur handboltaleikur fram í gær.
Heimamenn í HK unnu þá sigur
á FH-ingum sem hentu frá sér
sigrinum eins og um bolta hefði
verið að ræða. Lokatölur 29-26 í
leik sem FH átti að vinna.
Það verður ekki sagt án þess
að fegra sannleikann að fyrri
hálfleikur hafi verið upp á marga
fiska. HK var sterkari aðilinn
framan af, en á lokaspretti fyrri
hálfleiks náði FH góðum kafla og
janfaði, 13-13.
Það var ljóst að í seinni hálf-
leik myndi hálfkák fyrri hálfleiks
hverfa. HK-menn voru snöggir úr
skotgröfunum og náðu fljótlega
forskoti og tilfinning manns var
sú að þeir væru komnir með pálm-
ann í hendurnar. Svo gerðist það að
FH-ingar komu sér úr skotgröfun-
um sjálfir og með samhentu átaki
náðu þeir forskoti, 22-25. Tilfinn-
ingin breyttist í samræmi við það
og undirritaður hélt að FH myndi
ljúka þessu með sigri. Á lokamín-
útunum hætti liðið svo að spila
handbolta. Þeir hurfu í rykið af
HK sem lét ekki bjóða sér ókeypis
sigur tvisvar og gekk á lagið. HK
vann lokakaflann 7-1.
„Þetta er búið að gerast allt of
oft hjá okkur í vetur. Við spilum
vel í 50 mínútur og síðan gefumst
við upp. Við héldum að þetta væri
komið og við værum að vinna
góðan sigur en síðan hrynur þetta.
Ég bara skil þetta ekki. Ég veit
ekki hvað ég á að segja,” sagði FH-
ingurinn Daníel Berg Grétarsson
gráti næst. - ghó
Dapurt gengi FH hélt áfram í Kópavogi:
FH henti frá sér sigrinum
HVERT ERT ÞÚ AÐ FARA VINUR? Það var hart
tekist á þegar HK tók á móti FH í Digranesi
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA