Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.isOpi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
TEGUND ÁRGER‹ EKINN VER‹ TILBO‹SVER‹
MMC Pajero 2002 66 flús 3.480.000 3.140.000
OPEL Vectra 1.6GL 2001 73 flús 940.000 790.000
VW Passat Basic Line 1997 172 flús 640.000 330.000
Nissan Terrano II 1999 135 flús 1.150.000 990.000
Suzuki Vitara 1998 90 flús 690.000 470.000
Mitsubishi Lancer 2000 84 flús 740.000 590.000
OPEL Corsa Comfort 2001 96 flús 720.000 470.000
OPEL Vectra 1.6GL 1999 106 flús 720.000 580.000
OPEL Astra 1.6GL 1999 72 flús 880.000 690.000
OPEL Astra 1.2 2003 29 flús 1.020.000 820.000
Komdu til okkar og
fá›u flér nota›an bíl á
frábæru ver›i og flú fær›
jólagjafirnar í kaupbæti!
VER‹DÆMI
Sjá nánari uppl‡singar um tilbo› á www.ih.is/notadir
75.000 króna GJAFAKORT í Smáralind og
VETRARDEKK fylgja me› öllum tilbo›sbílum.
Allt a› 100% fjármögnun.
75.000 k
r.
GJAFAK
ORT Í
Tilbo›s
bíll og
STÓRLÆKKA‹
VER‹
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Vinna er gamaldags aðferð sem almenningur notar til að afla
sér peninga í skiptum fyrir tíma.
Miðað við að ég hef jafnmikinn
tíma og aðrir furða ég mig stund-
um á því að ég skuli ekki vera
búinn að koma mér upp veru-
lega góðum jeppa. Að vísu hefur
bensín hækkað upp úr öllu valdi
síðan olíufélögunum var bann-
að að hafa samráð um hvernig
þau gætu haldið verðinu niðri til
hagsbóta fyrir neytendur.
ÞEGAR jeppafíknin kemur yfir
mig tek ég fram blað og blýant
og reikna út hvað sexmillu jeppi
mundi kosta mig margar stundir
af þeim takmarkaða tímafjölda
sem ég hef yfir að ráða. Með
herkjum gæti ég sennilega breytt
allt að 25 stundum á viku til við-
bótar í peninga. Segjum að ég
gæti fengið 1500 kall á tímann
nettó. Ég er bjartsýnn. Það er
góðæri í landinu.
25 stundir á viku sinnum 1500
krónur í 52 vikur á ári gera rétt
um 2 milljónir. (Ég sleppi því að
reikna skatt af aukavinnunni því
að það er svo leiðinlegt). Það tæki
mig því ekki nema um þrjú ár að
eignast jeppa og nokkra mánuði
eða kannski ár í viðbót að borga
vextina af bílaláninu. Nokkurra
ára þrældómur fyrir góðan jeppa
er ábyggilega mjög sanngjarnt
verð. Hugsanlega gæti ég feng-
ið mér pallbíl frá Ameríku fyrir
minni peninga og skemmri tíma.
Sem er verulega freistandi, þótt
ég sé ekki fisksali og hafi reyndar
ekkert við pallbíl að gera fremur
en jeppann.
SAMT er líka freistandi að selja
ekki allan tíma sinn og geta
umgengist fjölskyldu og vini
þessa stuttu stund sem við fáum
að vera samferða á jörðinni.
Kannski er það tveggja milljón
króna virði á ári að fá að vera
með sínum nánustu. Kannski eru
börn jafnskemmtileg og jeppar.
Eða bækur eða gönguferðir. Að
minnsta kosti líður mér yfirleitt
eins og margföldum milljarða-
mæringi þegar ég er að eyða
þeim tíma sem ég hef nurlað
saman handa sjálfum mér. Hins
vegar líður mér stundum eins og
einhver sé að snuða mig þegar
ég er að breyta tíma í peninga.
Svona hljóðar röksemdafærsla
letingjans. ■
Röksemdafærsla
letingjans