Tíminn - 26.10.1976, Page 2
2
TÍMINN
Þriöjudagur 26. október 1976
erlendar fréttir
Ford fer
á kostum
Ileuter, Portland. — Gerald
Ford, Bandarlkjaforseti, var
umsvifamikiil f kosningabar-
áttunnif Bandaríkjunum I gær
og hélt kosningafundi í fjórum
fylkjum i vesturhluta Banda-
rikjanna, áður cn hann flaug
meir en tvö þúsund mitna
vegaiengd (3.500 kflómetra)
til Pittsburg I gærkvöldi.
Honum veitir enda ekki af,
þar sem tvær nýjar skoðana-
kannanir sýna að áskorandi
hans, Jimmy Carter, forseta-
cfni demókrata, hefur enn for-
ystuna i baráttu þeirra um
forsetaembættið.
Skoðanakönnun Time sýndi
i gær aö Carter hefur fylgi 48
af hundraði kjósenda. cn Ford
ckki nema 44 af hundraði, sem
er allnokkuð, þótt það teljist
ckki nægilegt til öruggs sig-
urs, þar sem ákaflega stór
hluti kjósenda cr óákvcöinn
enn þá.
Timaritið Newsweek birti I
gær skoöanakönnun, sem náöi
yfir öll fylki, cn niöurstöður
hennar eru þær aö Carter hafi
nægilcgt fylgi til að tryggja
sér þrjú hundruð og átta kjör-
menn, sem er þrjátiu fleira en
þarf til aö ná kjöri til forseta-
embættisins.
Pundið enn
á niðurleið
Reuter, London. — Sterlings
pundið féll enn gagnvart doll-
ar á gjaldeyrismörkuðum I
gær, að þessu sinni um sjö
cent.
Þegar markaðir lokuðu i
gær stóð pundið i 1.5935 dollur-
um.
Þá var sterlingspundiö einn-
ig lægra en nokkru sinni fyrr
gagnvart vestur-þýzka mark-
inu, franska frankanum og
belgiska frankunum, auk
nokkurra annarra gjaldmiðla.
Jafnaöarfall sterlings-
pundsins gagnvart öörum
lciðandí gjaldmiðlum veraid-
ar síöastliðinn fjögur ár, var i
gærkvöld 47,6%, eftir aö hafa
komist i 47.8% um hádegi I
gær. Hefur þaö aldrei verið
svo lágt áður.
Sögusagnir ganga um þaö
að alþjóðlegi gjaldeyrissjóö-
urinn og Bandarikin vilji
koma sterlingspundinu niður i
1.5 dollara til þcss aö hjálpa
útflutningi Brcta fram á veg.
Metframleiðsla
á korni í Sovét?
Reuter, Moskvu. — Leonid
Brezhnev, formaður sovc/ka
kommúnistaflokksins, sagði I
gær aö kornframleiösla I
Sovétrikjunum gæti vel oröiö
meirien nokkru sinni fyrr, eöa
yfir 222.5 milljón tonn.
Sagöi hann að þegar heföi
uppskeran náö þvi að verða
216 milljónir tonna, scm er
næst mesta ársframleiösla I
Spvét til þessa.
] — Uppskeran heldur áfram
saghi hann og það er ekki óifk-
legt að við náum metinu frá
1973, jafnvel bætum það — .
DC-fórst í
Columbíu í gær
Reuter, Bogota. — Columbísk
DC-3 íarþegaflugvél fórst i
flugtaki við borgina Villav-
icencio í Columhiu í gær og
meö henni fórust þrjátfu og
tveir, eða allir sem I henni
voru.
Flugvélin, sem var frá flug-
félaginu E1 Venado, var í inn-
anlandsflugi, þegar hún fórst
eftir að eldur kom upp I
hreyfli.
Fluginaðurinn reyndi að
lenda aftur á flugvellinum við
Villavicencio, en vélin hrapaöi
logandi til jarðar.
Þörungavinnslan h.f.:
125,7 millióna
tap á rekstri
fyrstu 8 món-
uði órsins
— áætlun gerð til langs
tíma um uppbyggingu
gébé Rvik. — Gerö hefur veriö áætlun til langs tima um uppbyggingu
Þörungavinnslunnar hf., þar sem miöað er við, aö á næsta ári verði
unnt aö framleiöa 2300 tonn af þurru mjöli en 4000 á öðru ári og stiga-
aukning þar til náö verði 6000 tonna framleiöslu árið 1983, en fram-
leiöslan á þessu ári varð 1500 tonn. Jafnframt verði smám saman
lengdur starfstimi vinnslunnar með vinnslu þara og þurrkun smáfisks,
þar til unnt yrði aö framleiöa 500 tonn af hvoru áriö 1985. Aætlun þessi
sýnir rekstrarhalla um 113 milljónir kr. á næsta ári, 35 millj. kr. áriö
1978, 5 millj. kr. árið 1979, en rekstrarhagnaö upp frá þvi sem færi vax-
andi. — Fyrstu 8 mánuði þessa árs er reikningslegt tap á rekstri Þör-
ungavinnslunnar 125,7 millj. kr., og ljóst er, aö rekstur fyrirtækisins
hefur brugðizt hrapallega. Stjórn félagsins telur þó rétt aö gera frekari
tilraun til rekstrar og gera þær ráðstafanir I fjárhagslegum, stjórnun-
arlegum og tæknilegum efnum, sem hugsanlega geta leitt til árangurs.
Stjórnin hefur lagt greinargerö sina og tillögur um aðgerðir fyrir
iðnaöarráöherra. Framtíð fyrirtækisins veröur ekkiráöin fyrr en svar
hefur borizt, enda ljóst aöáfram veröur ekkihaldið nema með stórlega
auknu hlutafé, er rétt geti eigin fjárstöðu og séð fyrirtækinu farborða á
fyrirsjáanlegu erfiöleika- og uppbyggingartfmabili.
Um margháttaöa byrjunar-
öröugleika hefur veriö að ræöa
hjá vinnslunni, tæknilegs og
stjórnunarlegs eölis. Þar er fyrst
að telja skort á heitu vatni, gallar
og bilanir á tækjum i verk-
smiöjunni, og svo, aö verulegar
tafir uröu á þvl, aö full starf-
ræksla hæfist I vor, þar sem
dráttur varð á afgreiöslu f járfest-
ingarlána.
öflunartæki hráefnis hafa
brugðizt og þangskurðarpramm-
ar þeir, sem keyptir voru til að
tryggja hráefnisöflun hafa ekki
skilað nema þriðjungi þess, sem
upphaflega var vænzt. Bilanir á
prömmum hafa veriö miklar, og
hafa þannig ekki nýtzt nema tæp
60% hugsanlegra sláttudaga, en
stefnt haföi veriö aö 83,5% nýt-
ingu.
I tillögum stjórnar Þörunga-
vinnslunnar um bættar öflunar-
aðferöir, segir m.a. aö í septem-
ber og október i ár, hafi veriö
geröar tilraunir meö handöflun á
þangi I tengslum viö notkun þang-
skurðarpramma. Niðurstööur
benda til, að meö slikri samvinnu,
megi létta af öflunarmönnum erf-
iöasta og timafrekasta þætti
handöflunarinnar. Byrjunartölur
sýna, að hver sláttumaöur geti
skoriö 3-4 tonn á dag aö meöaltali.
Ef þetta reynist rétt, viröist kom-
inn grundvöllur fyrir mun hag-
kvæmari handslátt en áöur var
taliö.
Hiö mikla álag á mannafla af
völdum vatnsskorts, bilana og
annarra byrjunarerfiöleika hafa
óhjákvæmilega leitt til óhag-
kvæmrar nýtingar mannafla og
mikillar yfirvinnu. Ef unnt reyn-
ist aö koma reglu á starfsemina,
veröur einnig hægt aö vinna aö
rekstrarhagræðingu, sem getur
Þörungavinnslan
Reykhólum við
fjörð.
h.f. að
Breiða-
haft I för meö sér um'talsveröa
lækkun rekstrarkostnaöar.
Aö lokum segir I greinargerö
stjórnarinnar, að ljóst sé að horf-
ast verður i augu viö verulega
Framhald á bls. 18
VerðurlSkoti fenginn
til að stjórna
Þörungavinnslunni?
nAUnlil hi 1 ni AViAIftiinrT
gébé Rvik. — Skozka fyrirtæk-
iö Alginate Industries Ltd.
hefur boöiö Þörunga-
vinnslunni h.f. að lána mann
til aö annast verklcga þjálfun
og framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins. Skozka fyrirlækið
hefur einnig boöizt til að
hækka verð fyrir afurðir Þör-
ungavinnslunnar, umfram áö-
ur geröa samninga og einnig
að auka hlutafjárþátttöku
slna. 1 áliti tveggja starfs-
manna AIL, sem komu hingaö
til lands á s.l. sumri, kemur
frant, að stjórnunarþáttur
Þörungavinnslunnar hafi ver-
ið vaninetinn og ekki nægilegt
aðhald né leiðbeining gefin
öfiunarlíði miðað við hinar ný-
stárlegu aðstæöur. Stjórn
Þörungavinnslunnar telur
gagnrýní AIL réttmæta, og aö
ckki hafi fengizt út úr öflun-
inni það, scm af henni megi
vænta, vegna skorts á mark-
vissri starfsþjálfun og verk-
stjórn.
„Brýn nauðsyn að efla
einingu sjómanna"
— segir nýkjörinn formaður Sjómannasambandsins,
Oskar Vigfússon
gébé Rvik. — Brýnustu verkefnin
framundan hjá nýkjörinni stjórn
Sjómannasambands islands eru
að efia einingu sjómanna og að
leita eftir nánu samstarfi við Far-
manna- og fiskimannasamband
íslands og Alþýðusambönd Vest-
fjarða og Austfjaröa, sem sjá um
samninga fyrir sjómenn í þessum
landshlutum, sagöi óskar Vigfús-
son, nýkjörinn formaöur Sjó-
mannasambandsins, en hann tek-
ur við afi Jóni Sigurðssyni, sem
hefur verið formaöur sambands-
ins siöastliöna áratugi. — Þaö er
frumskilyröi til að ná umtals-
veröum árangri, aö þessi sam-
bönd vinni mjög náið saman,
sagði Óskar.
— Við höfum enga aðstöðu til að
leita samninga, þar sem það eina
vopn sem viðmælendur okkar
skilja, verkföllin, hefur verið tek-
ið úr höndum okkar, sagði Óskar
og átti þar við bráðabirgðalögin.
Hvert er hlutskipti
dætra verkamanna?
NÝENDURKJÖRINN for-
maður Alþýðuflokksins, Bene-
dikt Gröndal, svaraði nokkr-
um spurningum fréttamanns i
sjónvarpi i gærkvöldi i tilefni
af nýafstöðnu flokksþingi.
Fréttamanni lék forvitni á,
einsog svo mörgum öðrum, að
fá að vita hvernig á þvi stæði
að verkamönnum færi sifellt
fækkandi i forustuliði Alþýðu-
flokksins, en menntamönnum
fjölgaði að sama skapi i þeirri
sveit.
Formaðurinn hafði þau svör
á reiðum höndum, að synir
verkamanna gengju nú
menntaVeginn og þvi væri
eðlilegt að þeir tækju upp
merki feðranna i flokknum
sem menntamenn en ekki
verkamenn. Ekki lét hann
þess getið i hvaða forustusveit
verkamenn skipa sér nú á tim-
um. Hins vegar vekur það
nokkra athygli að formaður
fyrrum verkalýðsflokks lét
þess hvergi getið hvert væri
hlutskipti dætra verkamanna,
hvort þær ganga menntaveg-
inn, leggjast i barneignir og
búsýslu, fari á eyrina eða
hvort þær eiga þess jafnvel
kost á að láta að sér kveða i
liði toppkrata.
Óskar Vigfússon, nýkjörinn for-
maður Sjómannasambands ts-
iands.