Tíminn - 26.10.1976, Side 10
10
TÍMINN
Þriðjudagur 26. október 1976
Flokksþing Alþýðuflokksins:
Prófkjör og varnarmól efst á
baugi auk fjórmóla flokksins
AÞ-Reykjavik. — Benedikt Grön-
dal var endurkjörinn formaður
Alþýðuflokksins á 37. þingi
flokksins, sem haidið var um
heigina. Var öll æðsta stjórn
flokksins endurkjörin, en ritari er
Björn Jónsson, gjaldkeri Kristin
Guðmundsdóttir, varaformaður
Kjartan Jóhannsson, vararitari
Karl Steinar Guðnason og vara-
gjaldkeri Eyjólfur Sigurðsson.
Aðalmál flokksþingsins voru
fjármál flokksins. Gerði Benedikt
þeim itarleg skil i þingsetningar-
ræðu. Kom hann viða við, rakti
sögu Alþýðublaðsins og gat um
ýmsar eignir Alþýðuflokksins.
Urðu töluverðar umræður um
þessimál, en fjármál Alþýðu-
flokksins hafa að margra áliti
verið óhrein. A þessu þingi var
gerð tilraun til að ,,moka flór-
inn”, eins og einn af þingfulltrú-
um komst að orði við blaðamann
Timans. Er óhætt að segja, að
eftir ræðu Benedikts eru þessi
mál töluvert skýrari en áður, en
hins vegar er ljóst, að mörgum
spurningum i sambandi við
fjármál Alþýðuflokksins er ó-
svarað. Benedikt gerði grein fyrir
gömlum skuldum Alþýðuflokks-
ins, þ.e. skuldum frá 1966 og eldri,
en ekkert yfirlit var gefið um
rekstur hinna ýmsu útgáfufyrir-
tækja Alþýðublaðsins, sem starf-
að hafa undanfarin ár. Þessi mál
verða væntanlega rædd i Tfman-
um á næstunni.
Tvö mál önnur tóku nokkurn
tima þingsins. Annars vegar var
um að ræða tillögu um prófkjör,
sem samþykkt var, og hins vegar
tillaga um varnarmálin. Tillög-
urnar, eins og þær voru sam-
þykktar endanlega, verða birtar
hér á eftir, en það sama gildir um
þær og fjármál flokksins, að þær
verða ræddar nánar hér i blaðinu
siðar.
Prófkjörstillagan
,,1 hverju kjördæmi landsins ut-
an Reykjavikur skal vera kjör-
dæmisráð. Hlutverk kjördæma-
ráðs er að skipuleggja og efla
flokksstarfið i kjördæminu og
standa fyrir framboði við Alþing-
iskosningar.
1 kjördæmisráði eiga sæti full-
trúar allra flokksfélaga i kjör-
dæminu, þar með talin félög
ungra jafnaðarmanna, þingmenn
flokksins i kjördæminu svo og
aðrir þeir, sem samþykktir ráðs-
ins kveða á um. Kjördæmisráð
skal skipa til tveggja ára í senn,
en ráðið skal koma saman til
fundar árlega. Kjördæmisráð kýs
sér stjórn til tveggja ára i einu.
Kjördæmisráð setur sér sjálft
samþykktir, sem staðfestar skulu
af flokksstjórn, þar sem itarlega
skal kveðið á um hlutverk ráðsins
og skipan, stjórn þess og starfs-
vettvang, svo og gjaldskyldu
flokksfélaga og kostnað af störf-
um ráðsins.
Komi upp ágreiningur innan
kjördæmisráðs um lög flokksins
eða samþykktir ráðsins skal
flokksstjórn skera úr.
Kjördæmisráð ákveður fram-
boðslista flokksins við kosningar
til Alþingis, skylt er að hafa próf-
kjör um val i efstu sæti framboðs-
lista, sem borinn er fram i nafni
Alþýðuflokksins við Alþingis- og
sveitarstjórnakosningar.
Kjördæmisráð skal sjá um
framkvæmd á prófkjöri til Al-
þingis, en fulltrúaráð, eða stjórn-
ir félaga, um kjör fulltrúa á lista
til sveitarstjórna. Heimilt er þó
að fela sérstakri kjörstjórn að sjá
um kosningar, og er hún þá kosin
af viðkomandi aðilum.
Kjörstjórn annast allan undir-
búning prófkjörs. Þar sem starf-
andi eru Alþýðuflokksfélög skal
hafa opna kjörstaði. A stöðum,
þar sem ekki eru starfandi Al-
þýðuflokksfélög er kjörstjórn
heimilt að velja trúnaðarmenn til
að annast framkvæmd prófkjörs,
eða að einstakir flokksmenn
greiði atkvæði bréflega. Viðkom-
andi kjörstjórn setur nánari á-
kvæði um framkvæmd bréflegrar
atkvæðagreiðslu. Kjörstaðir
skulu vera opnir minnst 6 klst.
hverju sinni.
Velja skal með þessum hætti i
jafnmörg sæti framboöslistans og
fulltrúar Alþýðuflokksins urðu i
næstu sambærilegu kosningum á
undan, að einu viðbættu. Þar sem
flokkurinn hafði engan kjörinn
fulltrúa, skal kjósa i eitt sæti.
1 þessu sambandi teljast lands-
kjörnir þingmenn fulltrúar Al-
þýðuflokksins i kjördæminu.
Prófkjör skal hefjast minnst
fjórum mánuðum fyrir regluleg-
ar kosningar, en sé um aukakosn-
ingar að ræða, ákveður kjörstjórn
timasetningu prófkjörs i samráði
við flokksstjórn.
Kjörgengi til prófkjörs vegna
alþingiskosninga hafa þeir, sem
til þess hljóta meðmæli minnst 50
flokksbundinna Alþýðuflokks-
manna i Reykjavik og Reykja-
neskjördæmi, en 25 i öðrum kjör-
dæmum. Fulltrúaráð eða flokks-
félög ákveða tölu meðmælenda
vegna sveitarstjórnakosninga.
Berist aðeins eitt framboð til sæt-
is á lista er sjálfkjörið i það sæti.
Öllum, sem eru 18 ára og eldri
og ekki eru flokksbundnir i öðrum
stjórnm alaflokkum, er heimil
þátttaka i prófkjöri Alþýðuflokks-
ins i viðkomandi kjördæmi eða
sveitarfélagi.
Kjörstjórn skal halda skrá yfir
alla þátttakendur i prófkjöri Al-
þýðuflokksins.
Niðurstöður prófkjörs eru bind-
andi hljóti sá frambjóðandi, sem
kjörinn er, minnst 20 af hundraði
af kjörfylgi Alþýðuflokksins við
siðustu sambærilegar kosningar,
eða hafi aðeins eitt framboð bor-
izt. Heimilt er þó fulltrúaráðum
eða flokksfélögum i sveitarfélög-
um, þar sem Alþýðuflokkurinn
fékk færri en 100 atkvæði við sið-
ustu sambærilegar kosningar, að
vikja frá þessum ákvæðum við
val á framboðslista við sveitar-
stjórnarkosningar.
Framboð á vegum Alþýðu-
flokksins þarf endanlega stað-
festingu flokksstjórnar.”
Varnarmdlatillagan
-.,37. þing Alþýðuflokksins
harmar, að flota- og kjarnorku-
kapphlaup stórveldanna, risa-
vaxin uppbygging sovézka flotans
við Murmansk og vaxandi mótað-
gerðir Bandarikjanna skuli hafa
aukið spennu á norðanverðu
Atlantshafi i þann mund, er Hel-
sinki-samkomulagið gaf von um
að draga mætti úr ófriðarhættu.
Flokksþingið telur þvi rökrétt
með tilliti til öryggis Islands, og
viðhorfa i heimsmálum, að Is-
lendingar leiti að svo stöddu
trausts i varnarbandalagi grann-
þjóðanna og taki þátt i sameigin-
legum vörnum Atlantshafs-
bandalagsrikjanna.
Þingið leggur jafnframt á-
herzlu á, að vakað verði yfir
fyrsta tækifæri til þess að láta
varnarliðið hverfa úr landi án
þess að öryggi þjóðarinnar stafi
hætta af og að um þá ákvörðun
verði höfð þjóðaratkvæða-
greiðsla.
Þingið minnir á 30 ára aðild Is-
lands að Sameinuðu þjóðunum og
tilgang þeirra samtaka að koma i
veg fyrir ófrið i heiminum og
tryggja öllum þjóðum frið og ör-
yggi-
Reynslan hefur sýnt, að tilvist
hernaðarbandalaga ein sér hefur
ekki komið i veg fyrij- hernaðará-
tök, og nauðsynlegt er að tryggja
frið með öðrum hætti. 1 þvi sam-
bandi er mikilvægast að efla
Sameinuðu þjóðirnar og friðar-
gæzlustarf þeirra, ná samkomu-
lagi um gagnkvæma afvopnun,
auka friðsamleg samskipti þjóða
og stefna að afnámi hernaðar-
bandalaga.
Flokksþing Alþýðuflokksins
bendir á, að óeðlilegt er, að varn-
arliðsmenn njóti sérréttinda um-
fram landsmenn. Þingið krefst
þess, að sem allra fyrst verði öll
sh'k sérréttindi varnarliðsmanna
afnumin, svo sem sérstakur
gjaldmiðill, trollfriðindi o.fl.” .
FURÐULEGT BÓKHALD
REIKNINGAR Alþýðu-
flokksins voru kyndugir í
meira lagi.
Á plagginu hér til hliðar,
sem útbýtt var á þinginu,
er skrá yfir eignir og
skuldir Alþýöuf lokksins.
Kemur þar fram, að eignir
Alþýðuf lokksins eru rúmar
6 milljónir, en skuldirnar
nærri 8,5 milljónir.
í öllu venjulegu bókhaldi
eru ekki aðeins eignir held-
ur einnig skuldir færðar á
efnahagsreikning. Af ein-
hverjum dularfullum
ástæðum hefur það ekki
verið gert hér sem sjá má,
þegar efnahagsreikningur
Alþýðuf lokksins er skoðað-
ur. Ýmislegt annað mis-
ræmi er að finna í þessum
pappirum. T.d. er eign
flokksins i Blaðaprenti
ekki færð á efnahagsreikn-
ingi. Og tölum á listanum
yfir eignir og skuldir, þar
sem hlutabréf í Alþýðu-
brauðgerðinni eru færðar,
ber ekki saman við efna-
hagsreikning.
Auk þess munu eignir
Alþýðuf lokksins, sam-
kvæmt núverandi efna-
hagsreikningi, ekki hafa
verið til staðar í reikning-
um flokksins að undan-
förnu.
Fýsir marga að fá
skýringar á þessu.
Þingskjal IV. Skrá yfir eignir og skuldir Alþýðuflokksins.
1 Eignir: Hlutabréf í Alþýóuprentsmiðjunni h.f. 100.000.- I
Hlutabréf í Alþýöubrauðgerðinni h.f. 6.900.- I
Hlutabréf í Alþýöuhúsinu h.f. 425.- I
Framlag til Blaðaprents h.f. 1.150.000.- I
Minningarsjóður Magnúsar Bjarnasonar 5.000.000.- I
Saratals krónur 6.257.325.- 1
Skuldit Alþýðuflokksins vegna útgáfu Alþýöublaösins;
Skuld í Búnaðarbanka íslands 2.700.000.- I
Skuld í Útvegsbanka íslands 3.000.000.- I
Skuld í Iðnaðarbanka íslands 270.000. 1
Skuld í Verzlunarbanka íslands 637.500.- I
Skuld í Landsbanka íslands 1.872.000.- 1
Samtals krónur 8.479.500,-I