Tíminn - 26.10.1976, Page 21
Þriðjudagur 26. október 1976
TÍMINN
21
„Þó að þeir hefðu
Jóhann Cruyff..
— í liði sínu, myndu þeir lóta hann spila í vörninni", segir
Tommy Docherty þegar hann lét í Ijós dlit sitt d
Middelsborough, sem er á toppnum í Englandi
Middlesbrough notaði tækitæri
og skauzt á topp 1. deildar, þar
sem Liverpooi náði aðeins jafn-
tefli i Leeds. „Boro” keppti á
heimavelli (23 þús áhorfendur) á
móti WBA, og þarf varla að taka
það fram, að sigur þeirra var 1-0.
Markið kom óvenju fljótt i leikn-
um, eða á 42. minútu. Þá skoraði
David Mills fyrir þá eftir óvenju-
vel útfærða sóknarlotu. Eftir
þetta börðust þeir með kjafti og
I klóm og tókst að halda þessu for-
skoti út leikinn. Venjulega hefur
‘ Middlesbrough ekki skorað fyrr
en á siðustu minútum heima-
leikja sinna, þannig að andstæð-
ingurinn á varla möguleika á að
jafna metin. „Boro” setti, tvo
menn til höfuðs Johnny Giles og
þannig tókst að halda honum al-
gjörlega i skefjum. Við það för
mesti broddurinn úr sókn WBA.
Það lýsir bezt stöðu knatt-
spyrnunnar i Englandi nú, að lið,
sem leggur ávallt megináherzlu á
varnarleik, skuli vera i efsta sæti
1. deildar, með 15 stig úr 11 leikj-
um, og aðeins átta mörk skoruð.
Tommy Docherty, framkvæmda-
stjóri Manchester er ófeiminn að
láta i ljós álit sitt á Middles-
brough, og sagði hann um þá nú
fyrir helgi, ,,að jafnvel þótt þeir
hefðu Johan Cruyff i liði sinu, þá
Ólafui
DAVID MILLS...... skoraði sigur-
mark „Boro”.
myndu þeir láta hann spila i öft-
ustu vörninni.”
★ En lið Docherty, Manchester
United, gengur ekkert allt of vel
þessa dagana. Vitaspyrna frá
Daly og mark frá Hill færðu Man-
chester liðinu 2-0 forystu á móti
Norwich i hálfleik, en i seinni
hálfleik glutruðu þeir þessari for-
ystu niður, er John Ryan, er kom
inn á sem varamaður fyrir Nor-
wich, skoraði með sinni fyrstu
spyrnu i leiknum á 72. mínútu, og
Phil Boyer jafnaði metin á 84.
minútu. Manchester mátti siðan
þakka fyrir að ná öðru stiginu, er
Boyer fór illa með gott færi á sið-
ustu minútu. Greinilegt er, að
leikjadagskrá United eralltof stif
fyrir hir.a ungu leikmenn liðsins.
Þeir keppa nú tvo og stundum
þrjá leiki i viku, og greinilegt er,
að fjöldi leikjanna kemur niður á
gæðum knattspyrnunnar (Áhorf-
endur 54.356.
★rLeeds sótti og sótti á móti
Liverpool i leiknum á Elland
Road, en allt kom fyrir ekki,
þannig að það hlaut eiginlega að
verða Liverpool. sem skoraði. Og
þannig varð það, að Kennedy
Framhald á bls. 23
VömWest
Orrason
ENSKA KNATT- ,
SPYRNAN
1.DEILD 1
Middiesbro. ,ii 6 3 2 8-6 15
Aston Villa . . n 7 0 4 24-11 14
Liverpool... . 10 6 2 2 15-8 14
Everton .... . n 5 3 2 19-14 13
Ipswich .... . 10 5 3 2 17-13 13
Newcastle.. . n 4 5 2 17-13 13
Man City ... . n 4 5 2 15-11 13
Leicester... . u 3 7 1 12-9 13
Man Utd. ... . 10 4 4 2 17-14 12
Arsenal .... . 11 5 2 4 18-19 12
WBA . 11 4 3 4 16-12 11
Coventry ... . 10 4 3 3 13-12 11
QPR ....... /11 4 3 4 15-16 11
Stoke . 11 4 3 4 7-11 11
Birmingh... . 11 4 2 5 17-14 10
Leeds . 11 3 4 4 14-15 10
Norwich ... .42 3 3. 3 12-18 9
Tottenh .... .11 3 2 6 11-23 8
Derby . 10 1 5 4 15-17 7
Bristol . 10 2 3 5 10-13 7
West Ham .. . 11 1 3 7 9-22 5
Sunderl .... . 10 0 4 6 5-15 4
|2. DEILD
Ham eins oa
gatasigti....
Leikmenn Everton gengu út og inn um
hana eins og þeim sýndist, og voru
klaufar að vinna ekki stærri sigur en 3:2
Chelsea .... ..11 8 1 2 19-14 17
Blackpool .. .. 12 6 2 4 19-13 14
Wolves .. 11 5 3 3 26-14 13
Charlton ... .. 11 5 3 3 26-24 13
NottmFor.. .. 11 4 4 3 26-17 12
Bolton .. 11 5 2 4 19-16 12
Hull .. 11 4 4 3 14-12 12
Oldham .... . .11 4 4 3 16-17 12
Plymouth .. ...ii : 1 ! 5 3 18-16 11
Fulham .... . .10 3 5 2 13-12 11
South’ton ... ..11 4 3 4 20-20 11
Bristol R ... .. 11 4 3 4 12-12 11
Notts Co .... ..11 5 1 5 16-20 11
Millvall .... ..10 4 2 4 14-11 10
Biackburn.. .. 11 4 2 5 13-14 10
Luton ..11 4 2 5 15-18 10
SheffUtd... ..11 2 6 3 14-18 10
Carlisle .... ..11 3 4 4 15-23 10
Cardiff .. 11 3 3 5 17-20 9
Burnley .... ..11 2 4 5 16-21 8
Orient ..10 2 3 5 9-13 7
Hereford ... ..11 2 2 7 14-26 6
Það er nú altalaö meðal enskra
knattspyrnumanna, að West Ham
liðið hafi alls enga vörn, heldur
bara eittstórt gat, þar sem vörnin
ætti að vera. Og þannig var það
lika þegar West Ham mætti
Everton á Goodison Park i Liver-
pool. Leikmenn Everton gengu út
og inn um vörn West Ham eins og
þeim sýndist, og geta einungis
kennt um eigin klaufaskap að
mörkin urðu aðeins þrjú, en ekki
tiu eða jafnvel fimmtán. Hvað
eftir annað skutu sóknarmenn
Everton yfir eða framhjá, þar
sem auðveldara hefði verið að
skora, og að venju varði Day I
marki „The Hammers” vel og
tókst honum með góðri mark-
vörzlu að hindra, að lið West Ham
yrði að athlægi.
Það voru liðnar 12 minútur, er
Lyons skoraði fyrsta mark leiks-
ins. Hann fékk knöttinn á eigin
vallarhelmingi, lék upp miðjuna
og var tilbúinn að gefa hann til
samherja strax og að honum yrði
sótt. En þar var nú bara meinið,
engum datt i hug aö vera að trufla
hann, svo hann labbaði beint I
markið með knöttinn. Enda sagði
Lyons eftir leikinn, að hann hefði
aldrei á ævi sinni skorað auðveld-
ara mark. Eftir markið dundu
sóknarloturnar á mark West
Ham, en góð markvarzla og
klaufaskapur þeirra sem sóttu
komu I veg fyrir fleiri mörk, i
fyrri hálfleik.
A 56. minútu skoraði King svo
annaö mark Everton. Tekið var
horn, allir varnarmenn West
Ham dekkuðu hættulegasta sókn-
armann Everton, Latchford, en
árans fantarnir gáfu þá á King i
staðinn, og átti hann auðvelt með
að skalla I markið.
Þriðja markið var svipað hin-
um fyrri. A 70. minútu fékk
Latchford knöttinn á eigin vallar-
helmingi. En nú var vörn West
Ham tilbúin við vitateig og átti nú
aldeilis ekki að hleypa Latchford
lengra en þangað. En Latchford
' sá við þvi, hann þurfti ekki að
fara lengra en upþ að vítateig,
þar sem hann var kominn I ákjós-
anlegt skotfæri og boltinn söng 1
netinu.
Mörk West Ham eru svo kapi-
tuli út af fyrir sig. Á 76. minútu
átti hinn tyrkneskættaði Ohran
skot að marki, sem hefði fariö
a.m.k. tiu metra framhjá, ef
McNaught hefði ekki komið til
skjalanna og stýrt boltanum
snyrtilega framhjá eigin mark-
verði. Og er tvær mlnútur voru til
leiksloka, átti Billy Bonds skot
upp i loftið, sem á óskiljanlegan
hátt datt niður i mark Everton.
Liðin voru þannig skipuö:
Everton: Davies, Darracott,
Lyons, McNaught, Jones, King,
Hamilton, Dobson, Goodlass,
Telfer, Latchfor.
West Ham: Day, Bonds, Tayl-
or, Green, (Lock), Lampard,
Curbishley, Brooking, Paddon,
Ohran, B. Robson, K. Robson.
Áhorfendur: 23.163.
— Ó.O.
VIÐAR SÍMONARSON.... skoraöi 12 mörk gegn Vestmönnum I
Evrópukeppninni.
Viðar var
óstöðvandi
í Færevium
—FH-ingar áfram í Evrópukeppninni
VIÐAR Símonarson var ó-
stöövandi, þegar FH-ingar
tryggöu sér sigur (25:20)
yfir Vestmönnum frá Fær-
eyjum í Evrópukeppni
meistaraliöa í Þórshöfn í
Færeyjum. Viðar skoraði
alls 12 mörk i leiknum, þar
af 10 í síðari hálfleik.
Færeyingar tóku Geir Hall-
steinsson úr umferð i leiknum og
elti „skuggi” hann allan leikinn,
hvert sem hann fór. Þrátt fyrir
það skoraði Geir 4 mörk gegn
Færeyingum, sem höfðu yfir
(11:9) i hálfleik. Eins og fyrr seg-
ir, var Viðar óstöðvandi i siðari
hálfleiknum og framlag hans (10
mörk) tryggði FH-ingum sigur.
Mörk FH-liðsins skoruðu: Við-
ar 12, Sæmundur 5, Geir 4, Þórar-
inn 2 og Guömundur Arni 1.
................................... ,
Celtic tapaði
1 SKotlandi gerðist það merkilegast, aö bæði Celtic og Rangers
töpuðu sínum leikjum. Celtic keppti I Aberdeen. Dalglish náði
forystunni fyrir þá i seinni hálfleik, en tvö mörk frá Joe Harper
sneru leiknum fyrir Aberdeen. Rangers keppti við Motherwell,
Hamilton náði forystunni fyrir Rangers, en mörk frá Wark og
Pettigrew (2) gerðu út um leikinn Motherwell I vil. Dundee Unit-
ed vann 2-1 sigur i Edinborg á móti Hearts og heldur þvi ennþá
þriggja stiga forystu í deildinni. öörum leikjum lyktaöi þannig,
að Partick vann Kilmarnock 2:1 og Ayr tapaði fyrir Hibernian á
heimavelli, 2:3. —Ó.O.
JÓHANN og SIGURÐUR... leika mjög vel saman.
Sigurður og Jóhann
eru ósigrandi...
ISLANDSMEISTARARNIR Sig-
urður Haraldsson og Jóhann
Kjartansson i tviliðaleik i bad
minton eruósigrandi. Þeir iögðu
alla keppinauta sina að velli i úr-
tökumóti fyrir NM-mótiö, sem fór
fram i íþróttahúsi TBR um helg-
ina.
Sigurður og Jóhann sigruöu þá
Sigfús Ægi Arnason og Ottó Guð-
jónsson iúrslitum — 17:16og 15:8.
Lovisa Sigurðardóttir og Hanna
Lára Pálsdóttir urðu sigurvegar-
ar i tviliöaleik kvenna — sigruðu
Svanbjörgu Pálsdóttur og Ernu
Franklin með yfirburðum — 15:1
og 15:6. Lovisa og Steinar Peter-
sen urðu sigurvegarar i tvennd-
arleik — sigruðu Sigurð Haralds-
son og Hönnu Láru i úrslitum 15:8
og 15:8.