Tíminn - 29.10.1976, Side 1
ÆNGIRP
Aætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Símar:
2-60-60 og 2-60-66
raHagnlr
í virkjanir — hús
verksmiðjur — skip
SAMVIRKIS'
Kópavogi 30
• Fjárlagaræða ráðherra — Sjá bls. 8
AÞ-Reykjavik. — Gylfi
Þ. Gislason, formaður
þingflokks Alþýðu-
flokksins, kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár i
sameinuðu þingi i gær
og gerði að umtalsefni
þingfrétt i fréttatima
útvarpsins 27. október.
Var formanni þing-
flokks Alþýðuflokksins
mikið niðri fyrir, en
hann taldi, að þing-
fréttamaðurinn hefði
m.a. brotið 3. grein út-
varpslaganna, sem seg-
ir fyrir um óhlutdrægni
Rikisútvarpsins.
Frétt sú, sem svo
mjög fór i taugarnar á
formanni þingflokks Al-
þýðuflokksins, var frá
umræðum um skipun
þingnefndar til að rann-
saka gang og meðferð
dómsmála. Var sagt i
umræddri útvarpsfrétt,
að eftir að ölafur Jó-
hannesson dómsmála-
ráðherra hefði gert at-
hugasemdir viö tillög-
una, hefði ,,litið staðið
eftir af ágæti hennar”.
Gylfi Þ. Gislason
sagði, að hann hefði
fyrir hönd þingflokks
Alþýðuflokksins skrifaö
útvarpsstjóra bréf
vegna þessa máls, þar
sem óskað er eítir þvi,
að hann geri „tafar-
lausar ráöstafanir” til
þess, ,,að fréttaflutn- -
ingur Rikisútvarpsins
frá umræðum á Alþingi
verði endurskoðaður og
það vandlega tryggt, að
hann verði i samræmi
við gildandi reglur um
óhlutdrægni”, eins og
segir orðrétt i bréfinu.
Verður ekki annað séð
en formaður þingflokks
Alþýðuflokksins sé með
þessu erindi að óska eft-
ir ritskoöun á þingfrétt-
um útvarpsins. Þess má
geta, að Gylfi Þ. Gisla-
son sýndi þingfrétta-
manni útvarpsins,
Nönnu Úlfsdóttur, ekki
þá sjálfsögðu kurteisi
að ræða við hana, áöur
en hann tók málið upp i
saineinuðu þingi.
Seina-
gangur í
Sakadómi
skaðar
Alþýðu-
bankann
segir Ingi R. Helgason
HV-Reykjavik. — Það er pina og dauði
hversu mikill seinagangur er á rannsókn-
inni hjá sakadómi, og það sem við óttumst
er, að hún taki að minnsta kosti sex mán-
uði til viðbótar, áður en málið kemur
aftur til saksóknara, sagði Ingi R. Helga-
son, lögfræðingur Alþýðubankans, á
blaðamannafundi, sem haldinn var hjá
bankanum I gær.
— Það er hreint furðulegt, nánast ótrú-
legt, við hvaða aðstæður viðkomandi
sakadómari verður að vinna að málinu,
sagði Ingi ennfremur, til dæmis fær hann
ekki aðgang að dómssal og ekki ritara
nema einn af hverjum sex vinnudögum,
eða þrisvar til fjórum sinnum i mánuði. A
þessum degi verður hann að hafa allar
vitnaleiðslur, og það i mörgum málum,
þvi þetta mál er aðeins eitt af fjölda mála,
sem viðkomandi dómari hefur til með-
ferðar.
Við höfum orðað það við saksóknara,
hvort ekki sé hægt að flýta málinu eitt-
hvað, en það virðist með öllu ómögulegt.
Okkur þykir það óneitanlega hart, að
bankinn þurfi að liða fyrir þetta. Á sinum
tima taldi bankaráð það, sem þá sat, eðli-
legast að æskja þess, að rannsókn yrði
láíin fara fram á þvi, hvort viðskipti
bankans við tiltekna þrjá aðila hefðu ver-
ið i samræmi við gildandi lög eða ekki.
Þeir stjórnendur, sem þá voru við yfir-
stjórn bankans, hafa vikið úr sessi, og þvi
þykir okkur óréttmætt, að stofnunin sjálf
liði fyrir þetta enn.
Það hafa verið gerðar ráðstafanir til af
koma i veg fyrir, að slikt sem þetta endur
taki sig, og nú vill bankinn geta einbeitl
sér að uppbyggingu sinni.
^ —
Gylfi Þ. Gíslason ævareiður ó Alþingi:
Krefst ritskoðunar á
þingfréttum útvarpsins
Hafnarfjarðarvegur:
Stöðvast framkvæmdir
við Arnarneslæk?
gébé Rvík — Ég sé
ekki fram á annað,
eins og málin standa í
dag, en að einhver töf
verði á framkvæmd-
unum við Hafnar-
fjarðarveginn, því
varla verður haldið á-
fram, þvert ofan í
vilja bæjarstjórnar
Garðabæjar, sagði
Zóphónías Pálsson,
skipulagsstjóri i gær.
Vegurinn er nú um
það bil kominn að
Arnarneslæk en þar
munu framkvæmdir
að öllum líkindum
stöðvast.
Eins og kunnugt er,
hefur bæjarstjórn
Garðabæjar lagzt
gegn lagningu hrað-
brautar til Hafnar-
f jarðar um Garðabæ,
vegna þeirrar slysa-
hættu, sem þar myndi
skapast, auk hávaða
frá umferð. Vill hún,
að legu vegarins verði
breytt en bæjarstjórn
Hafnarf jarðar vill
hins vegar, aö fram-
kvæmdum verði þeg-
ar haldið áfram. — Á
meðfylgjandi Tíma-
mynd Gunnars eru
vegagerðarmenn að
leggja þennan um-
deilda veg síðasta
spölinn að Arnarnes-
læk, en þar stöðvast
f ramkvæmdirnar
senniiega i bili.
„Jóhanna"
kveður
„Vertu sæl mín
kæra..."
Háhyrningurinn
Jóhanna leggur
af stað til Nizza
Sjá frétt bls. 2
Timamynd
Sverrir Aöalsteinsson.