Tíminn - 29.10.1976, Page 3
Föstudagur 29. október 1976
TÍMINN
3
Rækju-
veiðar
hefjast
í Húnaflóa
gébéRvik — Frá og með deginum
i dag eru rækjuveiðar leyfðar á
Húnaflóa, en þó verða þar nokkur
svæði lokuð vegna þess hve mikið
seiðamagn hefur fundizt, en þau
eru i Reykjafirði, Steingrimsfiröi,
Hrútafirði og Miðfirði. Sjávarút-
vegsráðuneytið ákvað að opna
Húnaflóann til rækjuveiða að
tiliögum Hafrannsóknastofnunar,
en starfsmenn hennar hafa fylgzt
gaumgæfilega með seiðamagni
þar að undanförnu, svo og i Axar-
firði, en þar var rækjuveiði aftur
leyfð i vikunni. Rækjuveiðar eru
einnig leyfðar á Isafjarðardjúpi,
nema i nokkrum innfjörðunt,
þannig aö nú er þessi veiði stund-
uð á þrem fjörðum við landiö.
Að sögn Jóns B. Jónssonar,
deildarstjóra i sjávarútvegsráðu-
neytinu, er vandlega fylgzt með
seiðamagni á fyrrnefndum stöð-
um, en Axarfirði var einmitt lok-
að fyrir stuttu siðan vegna þess
hve sjómenn urðu varir við mikið
af seiðum i trollum sinum. Þaö
mun ekki hafa gerzt um langt
árabil, að vart hefur orðið svo
mikils magns af seiðum inni á
fjörðum og flóum eins og nú, en
ástæðan er mjög velheppnað klak
á siðastliðnu vori.
Sjö bátar eru gerðir út á rækju-
veiðar í Axarfirði frá Húsavik, og
öfluðu þeir mjög vel i vikunni. I
Afkastageta verksmiðju Fisk- I
iðjusambandsins er um 25 tonn á I
viku, og það magn höfðu bátarnir I
fengið eftir aðeins tveggja daga |
veiði.
*
Ákveðnir í því að bankinn
verði hafinn til vegs og
virðingar að nýju
— segir Stefdn M. Gunnarsson,
bankastjóri Alþýðubankans
HV-Reykjavik. — Við erum
ákveðnir i þvi að hefja bankann
til vegs og virðingar, þannig að
hann verði I raun, eins og I fyrstu
var ætlað, sverð og skjöldur
verkalýöshreyfingarinnar i land-
inu, sagði Stefán M. Gunnarsson,
bankastjóri Alþýðubankans, á
blaðamannafundi, sem haldinn
var I bankanum I gær.
— Bankinn hefur skaðazt af
rannsókn þeirri, sem nú fer fram
á viðskiptum nokkurra aðila viö
hann, og einnig hefur hann skað-
azt af neikvæðum skrifum fjöl-
miðla um hann. Viö höfum af-
skrifað þrjátíu milljónir af þeim
skuldum, sem rannsóknin fjallar
um, en erum bjartsýnir á, að af-
gangur þeirra náist inn.
A blaðamannafundinum kom
fram, að eftir að bankastjórar
Alþýðubankans fóru frá, fyrir um
ári siðan, hélt bankaráð áfram að
lána fyrirtæki því sem þrjátiu
milljónirnar tapast á. Hins vegar
var þar ekki um háa upphæð að
ræða, og það lán var veitt, vegna
þess að einmitt þaö gat leitt til
þess að eitthvað af fyrri lánum
næðust til baka Hefur bankinn nú
von um að fá sex til átta milljónir
upp i þrjátiu milljónirnar, einmitt
vegna þessa láns sem um var
rætt.
— Það er óneitanlega ýmislegt
sem bendir til þess að ýms öfl i
þjóðfélaginu hafi horn i siðu
bankans, sagöi bankastjórinn
ennfremur igær, enda verður þaö
óneitanlega hnekkur fyrir and-
stæðinga verkalýðshreyfingar-
innar, ef þeir eru einhverjir, ef
bankanum tekst aö vinna sig upp.
A fundinum kom einnig fram aö
þau viðbrögö sem verkalýðs-
s *
Benedikt Daviösson, formaður
bankaráðs, Stefán M. Gunnars-
son, bankastjóri, og Ingi R.
Helgason, lögfræöingur Alþýöu-
bankans, á blaðamannafundinum
i gær.
hreyfingin hefur sýnt gagnvart
framtiðaruppbyggingu bankans
hafa verið mjög jákvæð.
ir
Heilbrigois- >fiskar
eftirlitið
skoðar Sæ-
Ymislegt
athugavert við
öryggisbúnað
gagnvart
gestum
var sett.
Hrafn sagði ennfremur, að nú
væri unniö að þvi að semja
skýrslu um skoöunarferð þessa,
og yrði hún send sýslumanns-
embættinu i Hafnarfirði, en þar
yröu ákvarðanir teknar um
hvaöa ráðstafanir og fram-
kvæmdir þyki nauðsynlegt að
gera i safninu til að öll skilyröi
verði uppfyllt.
■y.
gébé Rvik — Skoðunarferð var
farin i Sædýrasafnið I Hafnar-
firöi að frumkvæði Heilbrigðis-
eftirlits rikisins, og voru þar á
ferð Hrafn Friöriksson, for-
stöðumaður og Árni Kárason
heilbrigöisráðunautur frá eftir-
litinu, ásamt héraðsdýralækni
og fulltrúum sýsiumanns og
heilbrigöisráðs I Hafnarfirði. —
Astæðan fyrir þvl, aö ferö þessi
var farin, var sú að nú mun ver-
iö að skipuleggja hópferðir
skólabarna i safnið, og vildum
við skoða staðinn til að gera
okkur hugmynd um ástand þar
meö tilliti til öryggisbúnaðar og
heiibrigðismála, sagði Hrafn
Friðriksson.
— Viö fundum ýmislegt
athugavert, t.d. að nauðsyn
væri á að auka öryggi við
bjarnargryfjuna. Vitni eru að
þvi, aö börn gera sér að leik að
klifra yfir girðinguna fyrir ofan
,
Héraösdýralæknir og full-
trúar heilbrigðiseftirlits
ræða saman I Sædýrasafn-
inu að lokinni skoðunar-
ferð. Tlmamynd: Gunnar.
gryfjuna til aö svindla sér inn á
svæöiö, og einnig er talin full
ástæða til að setja virnet ofan á
girðinguna fyrir framan gryfj-
una, sagði Hrafn en einnig var
athugað almennt hreinlæti á
staðnum með tilliti til gesta.
Hraf n sagði, að miöað við þær
kvartanir, sem borizt hafa að
undanförnu um Sædýrasafnið,
bæöi i fjölmiðlum og annars
staðar, þá virtist ástandið ekki
eins slæmt og þvi hefði verið
lýst, en þó væri ýmissa úrbóta
þörf. — Til er reglugerð no. 67
frá árinu 1971, um dýragarða og
sýningar á dýrum, en ekki virð-
istsem farið sé bókstaflega eftir
reglum þessum i Sædýrasafn-
inu, sagði hann, en þess ber aö
gæta, að safniö hafði tekið til
starfa, þegar reglugerö þessi
ávíðavangi
Reiður og sakbitinn
maður
Það er reiður og sakbitinn
rnaður, sem skrifar leiðara
Dagblaðsins i gær, en vissu-
lega er Jónasi Kristjánssyni
þó vorkunn. Hann er I hlut-
verki matins, sent öll þjóðin
brosir að. Ritstjórinn, sent
beitti sér fyrir krossför i þágu
dr. Braga Jósepssottar, reynd-
ist sjálfur hafa barizt gegn
honum setn formaöur fræöslu-
ráðs Reykjanesutndæmis,
þegar Itann hafði tækifæri til
aö styöja hann. Maður, sem
hcgðar sér þannig, getur ekki
vænzt þess, aö fólk taki al-
tnennl mikiö mark á honum.
Og Jónas Kristjánsson gerði
réttast I þvi aö segja af sér
sem fræösluráðsmaður, þvl aö
þaö cr einnig upplýst, aö sök-
um ótta og hræðslu viö ráöu-
neytisstjóra menntamála-
ráðuneytisins, þorir Itann ekki
að greiða atkvæöi samkvæmt
sannfæringu sinni. Slfk
hræðsla við embættismenn
kerfisins útiiokar það, að
Jónas Kristjánsson geti gegnt
störfum I valdamikilli stofnun
eins og fræösluráði Reykja-
nesumdæmis eins og ætlazt er
tii af honurn.
Kitstjóri Dagblaösins mun
ekki hafa búizt við, aö .auka-
störf hans I fræösluráöi
Reykjanesumdæmis yröu
kynnt fyrir alþjóð. En á dög-
um svonefndrar rannsóknar-
biaðamennsku gera tnenn sér
far um að kynna sér innviö
kerfisins, afla sér gagna og
staöreynda, setn siðan eru
lagðar á borðið. Það var gert I
þessu máli. Engar hálfkveðn-
ar vlsur eða dylgjur, Iteldur
blákaldar staðreyndir, Eftir
langa, langa þögn viðurkenndi
svo Jónas Kristjánsson aö
hafa greitt öbrum aðila en dr.
Braga Jósepssyni atkvæði sitt.
Auðvitað er Jónasi
Kristjánssyni frjálst aö greiða
atkvæöi eins og honum sýnist.
Og auðvitab er þaö ekkert sak-
næmt, þótt liann hafi taiið
réttara aö ljá öörum manni en
dr. Braga Jósepssyni atkvæði
sitt. En hér er um alvarlcgan
siöferöisbrest að ræöa. um þaö
eru flestir sammála. Að lýsa
yfir stuðningi viö ákveöinn aö-
ila á opinberum vettvangi, en
berjast gegn honum á bak viö
tjöldin. Ennþá alvarlegra
er hátterni ritstjóra Dagblaðs-
ins fyrir þá sök, að hann hefur
lagt menntamáiaráðherra i
einelti og valið honum verstu
orö fyrir þaö eitt að taka ná-
kvæmtcga sömu afstööu til dr.
Braga Jóscpssonar og hann
sjálfur.
Jónasi Kristjánssyni er aö
sjálfsögöu frjálst að hrópa
sorpblaðamennska eins oft og
hann lystir. Staöreyndir þær,
sent Tlminn hefur kynnt I
þessu tnáli, brcytast ekkert
við það. Jónasi væri sæmra að
biðjast opinberlega afsökunar
á leiðurutn þeitn, sem hann
hefur skrifað unt þetta mál, I
stað þess aö berja höfðinu við
steininn eins og hanii gerir.
-a.þ.