Tíminn - 30.10.1976, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Laugardagur 30. október 1976
FJÖLBREYTT STARFSEAAI
KJARVALSSTAÐA í VETUR
„Fólk og dýr” eftir Jóhannes Kjarval.
Listaráö Kjarvalsstaöa hefur
sent frá sér yfirlit yfir fyrirhug-
aöa starfsemi á siöasta árs-
fjóröungi 1976 til vors 1977.
Kennir þar margra grasa. Fjöl-
margar sýningar veröa i hiís-
inu, i sölunum tveim, Austur-
og Vestursal, en auk þess er
gertráö fyrir litlum sýningum á
skúlptúr, gullsmiöi, keramik og
fl. i glerskápum hússins.
Kjarval
Nti stendur yfir sýning á mál-
verkum og teikningum eftir Jó-
hannes Kjarval i kaffistofu
Kjarvalsstaöa, en þaö,sem sýnt
er, eru verk úr safni Þorsteins
B. Magnússonar og Karitasar
’ Bjargmundsdóttur. Vilja for-
ráöamenn Kjarvalsstaöa meö
þessum hætti minnast 91 árs af-
mælis listamannsins, sem var
15.októbersiðastliöinn. Þetta er
skemmtileg sýning og vel þess
verö, aö hún sé skoöuö, ekki siö-
ur en heföbundin sýning á verk-
um meistarans, sem staðið hef-
ur mánuðum saman i Austursal,
Reykvikingum og feröamönn-
um til mikillar ánægju. Kjar-
valsstaöir verða, ef un'nt er, aö
hafa nokkra tilbreytingu i kynn-
ingu á verkum og persónu Jó-
hannesar Kjarvals. Vill sá,sem
þetta ritar, ennfremur nota
tækifærið til þess enn, aö hvetja
listaráð til þess aö reyna aö
gera t.d. ritstörfum Kjarvals,
skáldskap og fl. einhver skil i
húsinu, „þjóðsagan” Kjarval er
ekki minna viröi fyrir þjóöina,
en málarinn og þvi æskilegt aö
þetta haldist i hendur.
Fyrirlestrar og fl.
Siðastliöinn fimmtudag hófust
fyrirlestrar sem halda á i hús-
inu á hverjum fimmtudegi til
jóla. Þar mun Aöalsteinn Ing-
ólfsson, listfræðingur og fram-
kvæmdastjóri listaráðs Kjar-
valsstaöa, halda eftirtalda fyr-
irlestra:
1. Forverar: Van Gogh,
Gauguin & Cézanne.
2. Fauvismi: Matisse, Derain
o.fl.
3. Expressjónismi i Þýzkaiandi.
4. Kúbismi: Pikassó, Braque,
Gris o.fl..
5. Fútúrismi og Vortex.
6. Dada
7. Súrrealismi.
8. Ný-plastik i Hollandi:
Mondrian, van Doesburg o.fl.
9. Ameriskur Afstrakt-
Expressjónismi.
10. Amerisk list 1950-1965.
11. Minimal og Concept.
12. Skúlptúr á 20. öld.
Að sögn fyrirlesarans veröur
stiklaö á stóru i þessum fyrir-
lestrum og leitazt veröur viö aö
gefa almenningi innsýn I eöli og
þróun nútimalistar. Veröa fyr-
irlestrarnir haldnir i fundarsal
Kjarvalsstaöa, og er öllum
heimill aögangur meöan hús-
rými leyfir.
Eftir jól mun verða haldið á-
fram fyrirlestrahaldi, og þá
verður fjallað um nútimamynd-
list, erlenda og islenzka.
Skáld og rithöfundar
lesa úr verkum sinum
Þá hefur undirritaður heimild
ir fyrir þvi, aö ætlunin muni
vera aö fá skáld og rithöfunda
til þess að lesa úr nýútkomnum
bókum (jólabókunum), og virð-
ist þaö vel til fundiö. Er þarna
fundin ný leiö til fjölmiðlunar
fyrir höfundana, sem aöeins
hafa fengið örfáar minútur i
rikisútvarpinu til þess aö kynna
bækur sinar, og er þetta siöur en
svo sagt til þess aö kvarta und-
an framlagi útvarpsins, sem á-
vallt hefur haldið upp á skáld-
skap og fagrar bókmenntir.
Mjög mikilvægt er þó, aö vel
veröi búiö að slikum bók-
menntakynningum, og er stung-
iö upp á þvi hér, aö kaffihúsiö
veröi notaö undir þessar uppá-
komur, ef þaö rekst ekki á hags-
muni kaffihússins aö ööru leyti.
Þaö er vitaö, aö ýmsir at-
hyglisveröir höfundar veröa
meö bækur aö þessu sinni, og
sumar eru þegar komnar út og
fleiri koma næstu daga.
Ef til vill væri einnig mögu-
leiki á aö kynna þarna valda
kafla úf leikritum eftir islenzka
höfunda i lestrarformi, eins og
Þjóöleikhúsiö er nú aö rföa á
vaðiö meö, en þetta lesform
viröist tilvaliö til almennrar
bókmenntakynningar.
Austursalur
Þá eru það sýningarsalirnir
tveir. Vestursalur mun notaður
undir „venjulegar” sýningar,
en Austursalurinn fyrir hina
föstu sýningu Kjarvals, auk
annars.
Nú stendur yfir i Austursal
Kjarvalsstaöa sýning á verkum
Magnúsar A. Arnasonar (14.-31.
okt.) en þar sýnir listamaöurinn
tæplega 100 myndir frá ýmsum
timum, en flestar þó frá sein-
ustu tveim árum. 1 nóvember og
desember verður skipulagssýn-
ing á vegum Reykjavikurborg-
ar, en sem kunnugt er hefur
borgarstjóri verið meö fundi um
áætlanir um þróun Rvíkur
næstu 20 árin. Þetta er fróölegt
á aö lita, og þeirri ábendingu er
hér með komið á framfæri, að
nokkurtsérhæft starfsliö verði á
staönum til þess að greina frá
hugmyndum kerfisins um höf-
uðborgina, þvi ekki eru allar
sllkar sýningar alþýðlegar viö
fyrstu sýn.
Eftir áramót veröur norræn
vefjalist i Austursalnum, hún
verður i báðum sölum dagana
19.1-22.2. 1977. Að þvi loknu mun
Kjarvalssýningin opna á nýjan
leik, og þá vænta menn ein-
hverranýjunga,sbr.það sem að
framan var sagt.
Vestursalur
Nýlokið er sýningu á verkum
Einars Hákonarsonar og Harö-
ar Agústssonar. Siðan tekur
viö hver sýningin af annarri, og
standa þær yfirleitt hálfan mán-
uö. Hafa listamennirnir ýmist
allan salinn undir, eöa skipta
honum meö sér.'
Þessi munu sýna þarna til
vors (7. jún. 1977).
27. okt.-9. nóv.
Magnús Kjartansson og Guðni
Hermannsen
10. nóv.-23. nóv.
Veturliöi Gunnarsson
24. nóv.-14. des.
óráðstafaö i bili
1977
5. -18. jan.
Sigfús Halldórsson
19. jan.-22. febr.
Norræn vefjalist
23. frbr.-15. marz.
Hringur Jóhannesson
16. marz-5. apr.
Baltasar Semper
6. apr.-26. apr.
Haukur Dór og Þorbjörg
Höskuldsdóttir
27. apr.-26. apr.
Jónas Guömundsson og Ómar
Skúlason
11. mai-7. júni
12 ungir iistmálarar frá Bret-
landi.
Þessar upplýsingar komu
fram i bréfi, sem afhent hefur
verið fjölmiðlum, nema um
bókmenntakynninguna, sem
komu eftir öðrum leiöum.
Forstööumaður Kjarvals-
staða er Alfreð Guðmundsson,
en framkvæmdastjóri listráðs
Aðaisteinn Ingólfsson, listfræð-
ingur.
Jónas Guðmundsson.
G.Ó. Sauöárkróki — Leikfélag
Sauðárkróks frumsýndi Is-
landsklukkuna s.l. fimmtudag.
Leikstjóri er GIsli Halldórsson
og leikmynd geröi Jónas Þór
Páisson. Gestir á frumsýning-
unni voru Vilhjálmur Hjálmars-
son, menntamálaráöherra, sem
flutti ávarp að lokinni sýningu,
og Vigdis Finnbogadóttir, leik-
hússtjóri.
Leikendur I Islandsklukkunni
eru 33, en meö helztu hlutverk
fara:
Assessor Arnas Arn-
æus..... Haukur Þorsteins-
son, Snæfrlöur Björnsdóttir Ey-
dalln...Kristln Dröfn Arna-
dóttir, Jón Hreggviös#
son........ Hafsteinn
Hannesson, Eydalin lögmaö-
Islandsklukkan
á Sauðárkróki
ur...Kristján Skarphéöinsson,
Grinvicensis.... Jón Ormar
Ormsson, Jón Marteinsson.....
Kári Jónsson, junkærinn......
ólafur Matthlasson, Dóm-
kirkjupresturinn..... Knútur
Ólafsson.
Kristin Dröfn Arnadóttir er
Jón Hreggviösson hreilir Grinvicensis, Hafsteinn Hannesson og
Ormar Ormsson.
Jón
ung leikkona, sem hefur áöur
vakiöathygli á leiksviöi hér,en I
hlutverki Snæfriðar hefur hún
nú sannað ótvlræöa hæfileika,
til aö túlka erfiö og margslungin
hlutverk. Jón Ormar Ormsson
er trúverðugur Grinvicensis og
Knútur Ólafsson gerir Sigurö
dómkirkjuprest sannan og lif-
andi. Haukur Þorsteinsson,
Hafsteinn Hannesson, Kristján
Skarphéöinsson og Kári Jónsson
eru vanir leikarar, og allir gera
þeir hlutverkum sinum eftir-
minnilega góð skil.
Þá vil ég sérstaklega nefna,
aö gamla manninn (úr Blá-
skógaheiöinni) leikur okkar
gamli og góöi leikstjóri og leik-
ari Eyþór Stefánsson, en móöur
Jóns Hreggviössonar leikur
Kristin Sölvadóttir. Bæöi eru
þau Eyþór og Kristln þekktir og
vinsælir leikarar frá fyrri tlö
hér á Sauðárkróki, en hafa ekki
komiöá „fjalirnar” I nokkur ár,
en létu tilleiöast aö vera enn á
ný meö slnu gamla félagi, sem
þau hafa áöur unnið svo vel, á
þessu 100 ára leiklistarafmæli.
Sem vænta mátti skiluðu þau
bæði hlutverkum slnum af
fyllstu nákvæmni og rikum
skilningi.
Um aðra leikendur er þaö aö
segja, aöþeir standa sig af hinni
mestu prýði, enda er heildar-
svipur sýningarinnar sérstak-
lega samstilltur og glæsilegur.
Þaö er vissulega ástæöa til aö
fagna þessari sýningu Leikfé-
lags Sauöárkróks, enda var þaö
óspart gert aö lokinni frum-
sýningu. Leikstjóra og leikend-
um voru færöir blómvendir og
ákafthylltir. Þökk sé leikendum
öllum og hinum vandvirka og
snjalla leikstjóra Gísla Hall-
dórssyni, fyrir frábæra
skemmtun og túlkun á hinu
mikla verki Halldórs Laxness —
Islandsklukkunni. Leikmynd
Jónasar Þórs Pálssonar er meö
ágætum.
1 vandaöri sýningarskrá, sem
gefin var út, ritar Kristmundur
Bjarnason rithöfundur um leik-
mennt á Sauöárkróki 1876-1941.
Þar eru einnig greinar eftir rit-
höfundana Indriöa G. Þor-
steinsson og Helga Hálfdánar-
son.
Húsfyllir var á frumsýning-
unni og þeim sýningum sem slö-
an hafa verið.
Kristln Dröfn Arnadóttir og Kristján Skarphéðinsson I hlutverkum
Snæfríðar og Eydalins lögmanns.