Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 21
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Heimild: Almanak Háskólans �������������� ������� ������������������ ������������� �������� ������ ����������������� ��� ���� ������������������� ������� ������� ������������� �������������� �������������� ��������������� �������������� � �������� Góðan dag! Í dag er þriðjudagurinn 3. janúar, 3. dagur ársins 2006. Ertu með barn í maganum, frænka, eða hefurðu borðað of mikið? KRÍLIN Reykjavík 11.17 13.32 15.48 Akureyri 11.29 13.17 15.05 Stefán Jón Bernharðsson er hornleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Horna- blástur tekur töluvert á lungun svo Stefán Jón þarf að halda sér í þokka- legu formi. Það gerir hann með knatt- spyrnu og einfaldlega með því að æfa á hljóðfærið alla daga. Stefán Jón er nýútskrifaður úr Tónlistarhá- skólanum í Ósló en þar spilaði hann knatt- spyrnu reglulega. „Þegar ég var úti spilaði ég fótbolta tvisvar í viku,“ segir Stefán Jón. „Við skólafélagarnir vorum með lið og æfðum reglulega auk þess sem við spiluð- um leiki og fórum á mót.“ Stefán Jón nefnir líka að félagslegi þátt- urinn sé ekki síðri í boltanum en sá líkam- legi. „Svo var aðstaðan svo góð því við hlið- ina á skólanum var risa gervigrasvöllur og öll búningaaðstaða til staðar í skólanum,“ Stefán Jón játar að eftir að hann kom heim hafi hann ekki verið nógu dugleg- ur í líkamsræktinni. „Ég sakna þess að spila fótbolta en það hefur verið svo mikið að gera hjá mér síðan ég kom heim að ég hef ekki komist í neitt reglulegt. Reyndar er ágæt líkamsþjálfun að spila á hornið, lungun eru eiginlega í 100% starfi við það. Það heldur mér í góðu formi og þó að ég sé svo sem enginn íþróttagarpur get ég allt- af tekið sprett án þess að leggjast í götuna eftirá.“ Stefán hefur vissulega nóg að gera en hann er fastráðinn hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Auk þess hefur hann ferðast víða síðasta árið og tekið þátt í ýmsum keppnum og hlotið nokkur verðlaun. Ferðalögunum er langt í frá lokið en næsti áfangastaður er Svíþjóð en þangað heldur Stefán Jón síðar í mánuðinum. „Svo á ég líka lítinn strák og eins og flest- ir foreldrar vita þá er það ágæt leikfimi að eiga börn,“ segir Stefán Jón og í bakgrunn- inum heyrist sá stutti skríkja af ánægju og hefja trommusóló á eldhúspottana. tryggvi@frettabladid.is Heldur sér í formi með hornablæstri Stefán Jón með líkamsræktartækið sitt, hornið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu hafa sameinast í eina stofnun sem ber nafnið Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Innan hennar verða heilsugæslu- stöðvarnar í Garðabæ, Hafn- arfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og á Seltjarnarnesi auk Heilsuverndarstöðvarinnar og Miðstöðvar heima- hjúkrunar í Reykjavík. Engar breytingar verða á þjónustu heilsu- gæslustöðvanna við sameininguna, en tvær nýjar heilsu- gæslustöðvar verða opnaðar í janúar, Heilsugæslan Fjörð- ur í Hafnarfirði og Heilsugæslan Glæsibæ í Reykjavík. Útsölurnar eru byrj- aðar. Margar búðir eru nú þegar farnar af stað með útsölur á völdum vörum. Seinna í vikunni fer svo allt af stað og því gott að fara á stúfana og sjá hvað er í boði. Reykingabann gekk í gildi á Spáni í gær, algert bann við reykingum á vinnustöð- um og öðrum opinberum stöðum. Spánverjar eru þekktir fyrir reykmettaða bari sína og nú eru veitingastaðir skikkaðir til að bjóða upp á reyklaus svæði. Reyk- ingabannið veldur miklum titringi meðal vanafastra spænskra reykinga- manna. Kate Moss fékk upp- reisn æru þegar hún var valin best klædda kona ársins 2005 að mati margra tísku- frömuða og tímarita. Fékk hún mikið lof fyrir óaðfinnanlegt útlit og að vera ávallt smekklega til fara þrátt fyrir neikvæða athygli vegna fíkniefnamisferlis. Sienna Miller er talin næstbest klædda konan og á eftir henni kemur Gwen Stefani. LIGGUR Í LOFTI [HEILSA TÍSKA] Þegar nýtt ár hefur runnið upp er gott að vita hvað er í tísku. Ákveðinn klæðnaður, litir, tæknibúnaður og hetjur eru inni árið 2006 og annað dettur út í staðinn. Inni árið 2006 Má skilja eftir með árinu 2005 Aðsniðin pils Útvíð pils Hlutlausir, klassískir litir Skærir, ósamstæðir litir Beinhvítur Skjannahvítur Grár Brúnn Dökkar gallabuxur Snjáðar gallabuxur Sjóliðarendur Svart/hvítar rendur Rokkaralúkk Háskólalúkk Súperman Batman iPod video iPod music Mittisbuxur Mjaðmabuxur Hylja sig Bera sig Mótorhjólastígvél Stígvél í viktoríönskum stíl Kúrekar Sverð- og sandalahetjur Hreinar og beinar línur Óskýrar, flæðandi línur Sjóliðarendur og Súperman MEÐ NÝJUM TÍMUM KEMUR NÝ TÍSKA. Ganga Sífellt fleiri kjósa að ganga sér til heilsubótar BLS. 2 Útsölur Alltaf er hægt að gera góð kaup á vetrarútsölum BLS. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.