Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 36
10
Með kransæðasjúkdómum er átt
við það að fá kransæðastíflu, eða
það að þurfa á hjartaaðgerð eða
kransæðaútvíkkun að halda. Krans-
æðasjúkdómar koma til af mörgum
þáttum og getur því margt valdið
kransæðasjúkdómi. Þegar talað er
um hjarta- eða æðasjúkdóma er
ásamt kransæðasjúkdómum átt við
heilblóðföll, ýmsar æðakalkanir og
hjartasjúkdóma.
Blóðsykur er einn af þeim þátt-
um sem geta valdið hjarta- og
æðasjúkdómum. Fólki ber því að
fylgjast með blóðsykurmagni í
sínu blóði, en ef því er ekki hald-
ið í jafnvægi getur það skemmt
æðar og valdið kransæðasjúkdóm-
um. Reykingar auka svo líkurnar á
kransæðasjúkdómum til muna og
eru reykingamenn mikill áhættu-
hópur í þessum efnum. Blóðfita er
enn annar áhættuþáttur, en kólest-
eról er til dæmis blóðfita sem hefur
veruleg áhrif á heilsu. Hár blóð-
þrýstingur er einnig áhættumerki,
sem og offita.
Hreyfing er mjög mikilvæg í
baráttu við þessa sjúkdóma, hún
hækkar hlutfall HDL í blóðinu en
það er oft kallað „góða kólesteról-
ið“. Hreyfing hefur einnig jákvæð
áhrif á blóðþrýsting og jafnandi
áhrif á blóðsykur, auk þess sem
hreyfing hefur jákvæð áhrif sem
forvörn fyrir aðra sjúkdóma svo
sem krabbamein, beinþynningu,
þunglyndi og kvíða. Margir hafa
gengið svo langt að kalla hreyfingu
hin eina sanna lífselexír, enda ljóst
að skynsöm hreyfing hefur ekkert
nema jákvæð áhrif á líðan fólks og
heilsu.
Áhættumat Hjartaverndar er
skynsamlegur kostur fyrir alla
þá sem hafa minnstu ástæðu til
að ætla að þeir séu haldnir æða-
eða hjartasjúkdómi. Í slíku mati
eru ýmis áhættuatriði metin og
tekin út. Blóðþrýstingur, HDL, þrí-
glyceriða (brennslufita), blóðsykur,
blóðhagur, kólesterol og kreat-
in er meðal þess sem er mælt hjá
þeim sem koma í slíka rannsókn.
Eftir athuganir á niðurstöðum
og áhættumati þar sem reiknað-
ar eru líkur á því að viðkomandi
fái kransæðasjúkdóm eru teknar
ákvarðanir um frekari rannsóknir.
Hafin er meðferð ef fengnar upp-
lýsingar gefa tilefni til.
Varðandi kransæðasjúkdóma
og forvarnir í þeim efnum er þó
mikilvægast að hafa í huga að
góð hreyfing og hollt mataræði er
mikilvægsta og besta forvörnin.
Kransæðasjúkdómar vinna á hjá
fólki yfir langan tíma og allir verða
að vera vakandi fyrir þeim.
Farðu vel með hjartað þitt
Hjarta- og æðasjúkdómar eru stórt vandamál sem mörgum stafar ógn af. Heilbrigð-
ur lífsstíll og hreyfing eru besta svarið við þessum sjúkdómum, en margir hafa nefnt
hreyfingu hinn eina sanna lífselexír.
Á heimasíðu Hjartaverndar er að
finna reiknivél sem reiknar út hve
miklar líkur eru á því að sá sem taki
þátt fái kransæðasjúkdóm á næstu
tíu árum. Reiknivélin er fyrir ein-
staklinga á aldrinum 35-77 ára,
konur og karla. Niðurstöðurnar
birtast í prósentulíkum á því að
viðkomandi fái sjúkdóminn á næstu
tíu árum. Spurt er um aldur, þyngd,
hæð, efri mörk blóðþrýstings,
íþróttaiðkun og fleira og út frá þeim
upplýsingum eru svo reiknaðar lík-
urnar á kransæðasjúkdómi.
Varað er þó við því að útkoma
reiknivélarinnar er ekki sjúkdóms-
greining á neinn hátt, og þó svo
að þátttakandi beri ekki mikið sem
bendi til kransæðasjúkdóms er rétt
að minna á að þeir geta leynt mikið
á sér. Það er því www.hjarta.is fyrir
þá sem vilja hafa varann á.
Kransæðareiknivél
REIKNAÐU ÚT LÍKURNAR Á KRANSÆÐASJÚKDOMI Á
WWW.HJARTA.IS.
Húsnæði Hjartaverndar
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Drífðu börnin út úr húsi. Mörg börn
eyða allt of miklum tíma í það að
spila tölvuleiki og horfa á sjón-
varp, rektu þau út úr húsi og sendu
vini þeirra með. Skráðu þau svo á
íþróttanámskeið eða eitthvað annað
uppbyggilegt og láttu þau læra að
njóta lífsins í gegnum eitthvað
annað en gerviveruleikann.
Fjöldi íþróttafélaga er mikill,
sérstaklega í Reykjavík, og geta allir
fundið sér eitthvað við sitt hæfi.
Börn eru flest lífsglöð og hress og
því er um að gera að virkja þau.
Börnin út
úr húsi
Sími 698 1834 • www.leppin.is
������������������
��������������
��������������������������������������������������������
������������������������������
������������������������������������
���������������������������������������������
��������������������������������������������������������������