Fréttablaðið - 03.01.2006, Síða 28
2 ■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Geðrækt hefur dreift segulmottum
til allra landsmanna undanfarið
sem minna á Geðorðin 10.
„Allir hafa geðheilsu og því
koma geðheilbrigðismál öllum
við,“ segir Guðrún Guðmunds-
dóttir, verkefnisstjóri Geðræktar,
sem ætlað er að fræða fólk um
geðheilbrigði og geðraskanir, um
forvarnir og eflingu geðheilbrigð-
is og draga úr fordómum.
„Geðorðin 10 eru einföld ráð en
mikilvægur leiðarvísir í daglegu
lífi. Með því að rækta eigin heilsu
andlega, líkamlega og félagslega
erum við betur í stakk búin til að
mæta því sem á vegi okkar kann
að verða í lífsins ólgusjó án þess
að brotna. Með því að hlúa að
eigin geðheilsu verðum við einn-
ig færari um að gefa af okkur og
veita stuðning þeim sem á þurfa
að halda.“
Geðorðin 10:
1. Hugsaðu jákvætt, það er létt-
ara.
2. Hlúðu að því sem þér þykir
vænt um.
3. Haltu áfram að læra svo lengi
sem þú lifir.
4. Lærðu af mistökum þínum.
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir
lundina.
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra
í kringum þig.
8. Gefstu ekki upp, velgengni í
lífinu er langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika
þína.
10. Settu þér markmið og láttu
drauma þína rætast.
Áttundi hver íslenskur karlmaður
getur búist við að greinast með
blöðruhálskirtilskrabbamein fyrir
85 ára aldur, en sjúkdómurinn
er algengasta krabbamein í karl-
mönnum á Vesturlöndum. Eftir því
sem menn lifa lengur aukast líkur
á sjúkdómnum, en á Íslandi grein-
ast að meðaltali 176 karlmenn
með blöðruhálskrabbamein á ári
hverju. Meðalaldur þeirra eru 72
ár, en aldur og fjölskyldusaga auka
líkurnar á blöðruhálskirtilskrabba-
meini.
Margir karlmenn veigra sér
við skoðuninni á þeim forsendum
að hún sé óþægileg - en þó getur
hún varla talist óþægilegri en
reglubundnar krabbameinsskoðan-
ir kvenna. Karlmenn sem komnir
eru yfir fimmtugt, og þá sérstak-
lega þeir sem vita af blöðruháls-
kirtilskrabbameini í ætt sinni, eru
því hvattir til að drífa sig í skoðun
árlega, en staðbundið krabbamein
í blöðruhálskirtil veldur oft litlum
sem engum einkennum.
Blöðruhálskirtilskrabbamein
Blöðruhálskirtilsskoðun er óþægileg, en
getur bjargað lífi manna.
„Fyrir mér snýst klifur einna helst
um styrk og liðleika. Það er mik-
ilvægt að vera í líkamlega góðu
ástandi, en það að þekkja sín tak-
mörk og sitt jafnvægi er einnig
mikilvægt. Svo hjálpar líka að vera
léttur, sérstaklega þegar maður
ætlar sér að ná árangri,“ segir
Valdimar.
Valdimar segist æfa 3-5 sinnum
í viku í Klifurhúsinu en auk þess
vinnur hann einnig í Klifurhúsinu.
„Það mætti segja að þetta sé bara
lögheimili manns, en sem betur fer
er það ekki,“ segir Valdi, sem er 21
árs að aldri og hefur klifrað af krafti
í rúm sex ár.
Valdimar segist hafa eytt nánast
öllum helgum síðasta sumar í klifri,
hann fór mest á klifursvæðið austur
á Hnappavöllum, en klifraði einn-
ig í Gerðubergi og Vatnsdal. Hann
segist hrifinn af þessum klifursvæð-
um en bætir einnig við: „Ef það er
útiklifur, þá er ég hrifinn af því.“
Valdimar er einn þriggja Íslend-
inga sem hafa klifið leiðina Slátur-
húsið sem er gráðuð 5.13b (8a).
Hann segist stefna á að klifra leið af
gráðunni 5.13d (8b) á næsta ári og
verða þar með annar Íslendingurinn
til að klifra leið af því erfileikastigi.
Valdimar hefur klifrað erlendis og
hreifst mikið af klifursvæðunum í
kringum Barcelona á Spáni.
Aðspurður að því hvert hann
stefni í klifrinu segir hann að hann
vilji bara klifra sem mest og takast
á við nýja hluti, alls ekki lenda í því
að vera að gera sömu hlutina aftur
og aftur. Hann segir klifuríþróttina
á mikilli siglingu hér á landi, margir
efnilegir stundi sportið og hann spái
því að eftir rúm 5-10 ár verði hér
fjöldinn allur af góðum klifrurum.
Klifurhúsið er annar tveggja
staða á landinu sem eru opnir
almenningi í innanhúsklifri en
ásamt honum er klifurveggur hjá
Fimleikafélaginu Björk. Klifurhúsið
er helsta miðstöð klifrara á Íslandi
og þar er á ári hverju haldin móta-
röð sem gefur Íslandsmeistaratitil í
grjótglímu. Grjótglíma er sú tegund
klifurs sem er stunduð án reipis,
þar sem sá sem það stundar tryggir
sig ekki. Þetta sport er nær ávallt
stundað yfir dýnum og í Klifurhús-
inu eru dýnur undir öllum veggjum.
Klifurhúsið, sem er í Skútuvogi 1G,
er opið alla daga vikunnar.
Býr næstum í Klifurhúsinu
Valdimar Björnsson er með allra bestu klifurgörpum á landinu. Hann segir að hann
gæti nánast flutt lögheimili sitt í Klifurhúsið, enda æfir hann þar oft í viku og vinnur
þar að auki.
Valdimar segir það mikilvægt að þekkja sín takmörk og jafnvægi sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er alveg rosalega gott æfinga-
kerfi og gríðarlega vinsælt. Við
höfum verið með þessa tíma í tvö ár
og vinsældirnar eru alltaf að auk-
ast eftir því sem fleiri prufa,“ segir
Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri
Hreyfingar. „Fólk er mjög ánægt
með árangurinn sem það nær og þá
kannski helst hvað það lærir mikið
nýtt. Jafnvel fólk sem hefur verið
í annarri þjálfun árum saman og
fer í Pilates lærir helling og þjálfar
líkamann upp á nýtt því áherslan
hér er lögð á að þjálfa út frá miðju
líkamans.“
Pilates-æfingakerfið var upphaf-
lega hannað í byrjun síðustu aldar
fyrir atvinnudansara, en síðustu
áratugina hefur kerfið verið þróað
fyrir almenning. Stott-Pilates kerf-
ið, sem kennarar Hreyfingar eru
sérþjálfaðir í, er sérlega hentugt
fyrir venjulegt fólk, en það var
unnið í samvinnu við sjúkraþjálf-
ara, að sögn Ágústu.
„Aðallega eru þetta konur sem
koma í þessa tíma, en þeir eru ekki
síður nytsamlegir fyrir karla því
þegar maður þjálfar miðju líkam-
ans, þá styrkir maður mikið bak-
vöðvana. Þeir hefðu margir mjög
gott af Pilates-tímunum,“ segir
Ágústa.
Mest eru tólf manns í hverjum
tíma, sem tryggir það að hver og
einn nýtur ýtarlegrar kennslu og
leiðbeinslu kennarans.
Auk hefðbundinna líkamsrækt-
ar- og þolfimitíma býður Hreyf-
ing upp á barnagæslu fyrir börn á
öllum aldri, sem er þjónusta sem
getur komið sér afar vel fyrir margt
foreldrið. Um sextíu manns starfa
í líkamsræktarstöðinni og þeirra
á meðal er næringarfræðingurinn
Ólafur G. Sæmundsson.
Pilates-tímar í Hreyfingu
Stott-Pilates þjálfunin hefur verið að ryðja sér rúms í heiminum seinustu árin og er
afar vinsæl í líkamsræktarstöðinni Hreyfingu í Faxafeni í Reykjavík.
Ágústa Johnson í Hreyfingu segir Pilates-æfingakerfið vera sífellt vinsælla, en kerfið var
hannað fyrir atvinnudansara í byrjun síðustu aldar.
Geðorðin 10
- leið að betri geðheilsu
Segulmottan með geðorðunum 10.
Líkamsrækt í vatni
Finnur þú fyrir verkjum í fótleggjum eða baki
við líkamsþjálfun?
Þegar æft er í vatni minnkar álag
um liði þar sem áhrif þyngdark-
raftsins minnka. Það verður því
auðveldara að þjálfa upp úthald
og styrk án þess að það valdi of
miklu álagi á liðina.
Bæði rólegir og kröftugir tímar í
hádeginu og eftirmiðdaga, undir
leiðsögn sjúkraþjálfara, í hlýrri og
bjartri sundlaug við Laugarás.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 897-2896
: Netfang: harpahe@hi.is