Fréttablaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 60
34 ■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
● HOLLT OG GOTT MATAR-
ÆÐI Heilinn þarf á góðri næringu
að halda og ætti enginn sem vill
viðhalda skerpu og einbeitingu að
hunsa mataræðið. Morgunmaturinn
er til dæmis mjög mikilvægur og
hafa rannsóknir sýnt að þeim sem
sleppa morgunverði gengur ekki
eins vel í skóla og starfi. Þetta er
þó ekki bara spurning um að koma
í sig einhverjum hitaeiningum, því
morgunmatur sem inniheldur of
mikinn sykur getur haft þveröfug
áhrif. Mestu skiptir að borða reglu-
lega, og fjölbreytt svo heilinn fái öll
þau efni sem eru honum nauðsyn-
leg til að starfa eðlilega.
● ÖRVANDI TÓNLIST Mikið
hefur verið skrifað og rætt um áhrif
tónlistar Mozarts á heilann. Nokkr-
ar rannsóknir hafa sýnt að með því
að hlusta á tónlist hans örvist heil-
inn og bæði minni og færni auk-
ist til muna. Aftur á móti eru aðrar
rannsóknir sem segja tónlist Moz-
arts ekki hafa nein áhrif. Tónlist
viðrist þó hafa góð áhrif á heilann,
en það krefst aðeins meiri vinnu
en bara að hlusta. Rannsóknir sem
gerðar voru á börnum sýndu að þau
sem voru í tónlistarnámi voru með
hærri greindarvísitölu en önnur
börn. Ekki eru neinar rannsóknir
sem sýna hvaða áhrif tónlistarnám
hefur á fullorðna, en það sakar ekki
að prófa.
● MINNIÐ BÆTT Nýlegar rann-
sóknir gefa til kynna að ef minnið
er bætt, þá hækkar greindarvísital-
an. Einfaldar minnisæfingar sem
innihalda lausn á vandamáli eiga
að vera sérstaklega gagnlegar. Gott
er til dæmis að leysa reiknings-
dæmi í huganum því heilinn leggur
aðferðina á minnið um leið og hann
leitar að lausninni.
● GÓÐUR SVEFN Heilinn þarf á
því að halda að við sofum. Á meðan
við sofum vinnur hann ýmis verk
sem ekki er hægt að vinna í vöku.
Hann vistar nýjar minningar, flokk-
ar upplýsingar og leysir verkefni.
Ástand manns sem vakað hefur
samfleytt í 21 klukkustund er álíka
og hjá drukknum manni. Reyndar
þarf maður ekki að vaka lengi sam-
fleytt til að finna fyrir áhrifunum,
því það nægir að fara seint að sofa
nokkur kvöld í röð. Tapaðan svefn
er þó hægt að vinna upp og getur
tveggja klukkustunda lúr yfir miðj-
an daginn gert kraftaverk.
● LÍKAMSRÆKT Með röskum
göngutúr í hálftíma, þrisvar í viku
er hægt að bæta minnið, einbeit-
ingu og rökhugsun um heil fimmt-
án prósent. Áhrifin hafa komið
sterkust fram hjá eldra fólki, sem
segir manni að það er aldrei of seint
að bæta sig.
● NOTAÐU HEILANN Heilinn er
eins og vöðvi og skiptir öllu máli að
reyna á hann til þess að styrkja hann.
Hægt er að gera það með að leysa
þrautir, lesa bækur, rifja upp hluti,
leggja hluti á minnið og margt fleira.
Aldrei er of seint
að örva heilann
Allir geta örvað heilastarfsemi sína, óháð menntun og
gáfnafari. Ekki þarf að leggjast í strangt nám eða gerast
forfallinn bókaormur, því margar aðferðir eru til sem
örva og bæta heilann.
Heilann þarf að þjálfa eins og vöðva til að viðhalda skerpu og einbeitingu.