Tíminn - 05.11.1976, Qupperneq 7
Föstudagur 5. nóvember 1976
TÍMINN
7
Stéttarfélag barnakennara í Reykjavík:
Hvers vegna fella kennarar niður kennslu?
Greinargerð um 8. nóvember
X fundi i fulltrúaráði Stéttarfé-
lags barnakennara i Reykjavik,
mánudaginn 1. nóv. sl. þar sem
mættir voru fulltrúar frá öllum
barnaskólum borgarinnar, auk
aðal- og varastjórnar félagsins,
var einróma samþykkt, að fella
niður kennslu í öllum deildum 12
ára barna og yngri við barna-
skóla Reykjavikur, mánudaginn
8. nóv. n.k. 1 þess stað mæta
kennarar á venjulegum starfs-
tima i skólunum til fundarhalda
og könnunar á kjörum sfnum og
stöðu. A þessum fundi lýstu allir
fulltrúarnir yfir þvi, að þessi mál
hefðu verið rædd i skólunum
næstu daga á undan og fundar-
samþykkt lægi fyrir hjá svo til
öllum kennarafélögunum, að efna
til aðgerða sem þessara.
En hvers vegna gripa kennarar
til svona aðgerða, kynni margur
að spyrja?
Undanfarin ár og áratugi hafa
ýmsar spurningar brunnið á vör-
um kennara varðandi stöðu sina
og kjör. Augu þeirra hafa smátt
og smátt verið að ljúkast upp fyr-
ir þvi, að ýmislegt er þar með
öðrum hætti en skyldi, og ýmis-
legt er haft i frammi við kennara-
stéttina, af valdhöfum, sem ekki
er beitt við aðra, einkum og sér i
lagi við þá kennara, sem annast
uppfræðslu nemenda i barnaskól-
um landsins.
Þann 8.nóv. n.k. munu kennar-
ar gera alvarlega tilraun til að
leita svara við þeim spurningum,
sem hvað áleitnastar eru.
Hvers vegna er þeim kennur-
um, sem kenna 12 ára börnum
eða yngri, ætlað að kenna 4 stund-
um lengurá viku fyrir sömu laun,
enþeimkennurum,semkenna 13-
15 ára nemendum, enda þótt þeir
kenni við sömu stofnun og allir á
grunnskólastigi? Hvers vegna er
sömu kennurum ætlað 10% lægra
álag á yfirvinnu?
Kennarar skilja það vel, að Há-
skóli Islands nýtur sérstakrar
virðingar hjá þjóðinni. Flest
embættisstörf á vegum hins opin-
bera eru eingöngu skipuð mönn-
um, sem hafa tekið embættispróf
frá Háskóla Islands og ekki á færi
annarra að fá rétt til að gegna
þeim störfum. Þannig eru mörg
prestaköll óveitt, þvi enginn
guðfræðiingur sækir um þau.
Læknishéruð eru óveitt meðan
enginn læknismenntaður maður
sskir um starfið,, þótt lifi og
heilsu fólksins i þvi héraði sé
stefnt i voða, og enginn ólöglærð-
ur maður myndi voga sér að
sækja um embætti sýslumanns
eða dómara, þótt nóg væri af slik-
um störfum á lausu. En hvað um
kennarastarfið?
1 landinu er Kennaraháskóli,
sem menntar kennaraefni sin í
þrjú ár eftir stúdentspróf. Mætti
þvi ekki ætla, að sömu kröfur
væru gerðar til þeirra, sem taka
að sér kennslu og uppfræðslu
æskunnar, og til þeirra, sem ráð-
ast til starfa við stofnanir, er
krefjast embættisprófs frá Há-
skóla Islands? En þvi er ekki að
heilsa. A sama tima og Kennara-
háskóli Islands útskrifar kennara
með háskólapróf B.Ed., eru fjöl-
margar af kennarastöðum við
grunnskóla setnar mönnum, sem
enga kennaramenntun hafa hlot-
ið, en hafa fengið ráðningu til
starfsins hjá sömu aðilum og hafa
yfirumsjón með Kennaraháskóla
Islands og um leið mótað starfs-
hætti þar. Þetta ástand eiga
kennarar erfitt með að skilja.
Hvers vegna er kennaraskortur-
inn leystur með ráðningu fólks án
starfsréttinda, fremur en i önnur
embættismannastörf? Er þetta
það, sem koma skal? Er þá öll
kennaramenntun og allt tal um
nauðsyn vel menntaðs kennara-
liðs eintómt skrum?
Sú spurning er all áleitin i hug-
um kennara, hvers vegna verið sé
að skipta menntun þeirra i
ákveðna flokka eftir stigum.
Hvers vegna er kennarapróf, sem
tekið var i gamla kennaraskóla-
húsinu við Laufásveg metið á 90
stig? Var það þróf ekki mesta
kennaramenntun, sem völ var á
þá? Æðsta kennaramenntun nú,
B.Ed. gráða frá Kennaraháskóla
íslands, er metin á 140 stig. Eitt
ár við kennslu er metið á 4 stig.
Hvers vegna þarf kennari með
gamla kennaraprófið að kenna i
meira en áratug til að fá jafn-
mörg stig og nýútskrifaður kenn-
ari? Hvers vegna gildir 4ra vikna
námskeið, eða 80 námskeiðs-
stundir, það sama og eins vetrar
kennslustarf eða 4 stig.
Kennarar munu einnig velta
þeirri spurningu fyrir sér,
hvernig beri að skilgreina ákvæði
reglugerðar frá sl. vori um
starfstima grunnskóla, að þvi er
varðar breytingu á fridögum.
Þannig munu kennarar nota
timann mánudaginn 8. nóv. n.k.
Ef til vill tekst þeim að fipna
viðhlýtandi svör við þessum
spurningum og fjölda mörgum
öðrum, sem þörf er að fjalla um,
en ekki hafa verið nefnd hér. Ef
til vill verða kennarar ánægðir
eftir þessa könnun og sætta sig
við sinn hlut. En ef til vill fást
ekki fullnægjandi svör og ýmis-
legt kann þá að koma upp á yfir-
borðið, sem nú er hulið sjónum
okkar, en krefst afdráttarlausra
svara. Kannski verður þá að
grípa til nýrra aðgerða og krefj-
ast nýrra svara. Hver veit?
Stjórn Stéttarfélags barnakenn-
ara i Reykjavik.
Hinn 26. okt. sl. var aðal-
fundur Stéttarfélags barna-
kennara i Reykjavlk haldinn i
Alftamýrarskólanum. Um 120
manns sóttu þennan fund. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
urðu miklar og fjörugarumræð-
ur um hagsmunamál kennara.
Eftirfarandi tillögur voru
samþykktar:
I. Aðalfundur Stéttarfélags
barnakennara i Reykjavik
haldinn 26. okt. 1976 skorar hér
með á kennara i skólum, þar
sem æfingakennsla fer fram, að
neita nú þegar að taka kennara-
nema frá KHl vegna mismun-
andi mats rikisvaldsins á
kennaraprófi úr Kennaraskóla
Islands og Kennaraháskóla Is-
lands.
II. Aðalfundur Stéttarfélags
barnakennara i Reykjavik
ályktar:
Með hliðsjón af þeirri megnu
óánægju, sem rikir meðal kenn-
ara i SBR vegna skilningsleysis
og vanmats stjórnvalda á starfi
kennara 1.-6. bekkjar grunn-
skóla, vill fundurinn benda á
eftirfarandi:
1. Félagar munu standa ein-
huga vörð um, að við næstu
kjarasamninga verði kennslu-
skylda allra kennara grunnskól-
ans hin sama.
2. Fundurinn vill ennfremur
minna stjórn Sambands isl.
barnakennara á, að þó hún hafi
nú samið „vopnahlé” fram að
næstu samningum, haldi hún
vöku sinni i baráttumálum
stéttarinnar og vinni m.a.
markvisst að þvi, að almennt
kennarapróf sé metið til jafns i
launum, hvort heldur það er frá
Kennaraskóla Islands eða
Kennaraháskóla Islands, Leitaö
verði stuðnings heildarsamtaka
opinberra starfsmanna, enda er
það eitt af baráttumálum
BSRB, að próf, sem veita tiltek-
in starfsréttindi verði metin
jafngild, án tillits til þess á
hvaða tima þau eru tekin.
3. Fundurinn skorar jafn-
framt á stjórn BSRB að beita
sér af fullri alvöru að þvi, i
næsta kjarasamningi, að laun
og kjör allra opinberra starfs-
manna verði stórlega bætt.
Stjórn félagsins skipa nú:
Formaður Tómas Einarsson,
Hliðaskóla. Varaform. Kolfinna
Bjarnadóttir Hvassaleitissk.
Ritari Aslaug Brynjólfsdóttir,
Fossvogsskóla. Gjaldkeri Július
Sigurbjörnsson Hvassaleitissk.
Me ð s t j ór n a nd i Sigrún
Guðmundsdóttir, Vogaskóla.
GLÆSILEGASTA BILASYNING VOLVO FRAM TIL ÞESSA.
VIÐ SÝNUM VOLVO 244, 343 OG 66
Á SELFOSSI!
Nýju Volvobílarnir verða til sýnis
hjá Bílasmiðju K. Á. á Selfossi,
laugardaginn 6. nóvember n. k.
Sýningin verður opin kl. 13 - 18.
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
VO» vo
VOLVO 245
VOLVO M