Tíminn - 05.11.1976, Blaðsíða 20
1&
Föstudagur
5. nóvember 1976
Auglýsingasími
Tímans er
'v.
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustig 10-Sími 1-48-06
^ALLAR TEGUNDIR-
Fisher Price leikjöng
eru heimsfrceg
Póstsendum
Brúðuhús
Skólar
Benzinstöðvar
Sumarhús
Flugstöðvar
Ðílar
FÆRIBANDAREIMA
FYRIR
' Lárétta
færslu
na' f*r*h
Einnig: Færibandareimar úr 'u
ryöfríu og galvaniseruöu stáli
Arni ólafsson & co,
.. annas
40098
KROFLU"
SVÆÐIÐ:
f
gébé Rvik — Kennsli hraunkvik-
unnar, sem er á um 3-4 km dýpi,
og rann frá Kröflusvæðinu norður
i Gjástykki, var 500-1000 rúm-
metrar á sekúndu, sem er tiu
sinnum meira rennsli en var I
Heimaeyjargosinu á fyrstu dög-
um þess. Ekki er vitaö hvers
vegna gosið fór þessa leiö, en ekki
upp á yfirborðiö, sagði Eysteinn
Tryggvason, jarðeðiisfræðingur
hjá Raunvisindastofnun Háskóla
Islands, meðal annars, þegar
Timinn ræddi viö hann i gær.
— t umbroturium á Kröflusvæö-
inu um siðustu helgi, seig landið
mjög snögglega á milli stöðvar-
hússins og Leirhnjúks, eða um
hálfan metra. Ég hef gert halla-
mælingar við Leirhnjúk og i
Hliðardal, sem styðja þetta, sagði
Eysteinn. Mikill gosórói eða
stöðugur titringur i jörðinni, sem
fylgir eldgosum, hófst snemma
morguns 31. október, og á eftir
fylgdi jarðskjálftahrina, sem
smádró úr, unz henni lauk á
þriðjudagsmorgun. Upptökin
reyndust vera um 20 km norðan
við Kröflusvæðið eða i Gjástykki.
— A 3-4 km dýpi hefur
hraunkvika verið að safnast sam-
an i nokkurs konar þró á
virkjunarsvæðinu, og reis landið
jafntogþéttá meðan. Um siðustu
helgi gerist það svo, að hraun-
kvikan hleypur úr þessari þró
norður i Gjástykki. — Við höfum
gert mælingar á þvi um hve mikiö
magn hraunkviku var að ræða, og
reyndust það um 50 milljónir
rúmmetra, en þessi tala getur
skakkað til eða frá um helming,
sagði Eysteinn. Þegar rennslið
Rennsli hraunkvikunnar
mun meira en rennslið
í Heimaeyjargosinu
■1
m
J
'5',' 'V >'%3
.
var mest, s.l. sunnudags-
morgunn, var það um 500-1000
rúmmetrar á sek., sem er um tiu
sinnum meira rennsli en var i
Heimaeyjargosinu á fyrstu dög-
um þess. Hins vegar er þetta mun
minna en var I Heklugosinu 1947,
sem er mesta gos I manna minn-
um hér á landi. Þetta var þvi all-
mikið og ákaft neðanjarðargos,
en hvers vegna það fór þessa leið,
en ekki upp á yfirboröið vitum við
ekki, sagði Eysteinn.
— Hraunkvika hefur þegar
byrjað að safnast fyrir á ný i
þróna á virkjunarsvæðinu og min
skoöun er sú, að það muni taka
um 2-2 1/2 mánuö þangað til land-
ið nær sömu hæð og það var s.l.
laugardagskvöld. Þennan tima
ætti því litið að vera um aukna
jarðskjálftavirkni á virkjunar-
svæðinu, en eftir það gæti aukin
virknihafiztá ný og landið byrjað
að siga snögglega, en hvert
hraunkvikan fer, er ómögulegt að
segja.
Um mánaðamótin sept/okt, en
þá hafði landið á svæðinu verið að
smárisa siðan i marz, tók það að
risa snögglega, en minnkaði fljót-
lega aftur og byrjaði að risa á ný.
Þá tók um 3 vikur aö ná aftur
sömu landhæð, en um siöustu
helgi seig landið mun meira.
Eru það þessi umbrot sem valda
þvi hve rennsli hefur minnkað I
borholum á virkjunarsvæöinu?
— Þeir virðast ekki finna eins
mikið af vatnsæðum nú og i fyrra-
sumar, en hvort þessi umbrot
valda þvi að rennsli er nú miklu
minna, þori ég ekki að fullyrða
um, þó ég hafi grun um það. Aðal-
vandamálið er núna, að mér
skilst, hve litil gufa kemur úr bor-
holunum, sagði Eysteinn.
„Kemur sterklega
til greina að selja
Ver"
— segir stjórnar-
formaður
Krossvíkur
Gsal-Reykjavik — Eigendur varðskipsins Vers munu fá togarann sinn
frá Landhelgisgæzlunni einhvern næstu daga, en þessi skuttogari var
sem kunnugt er leigður til landhclgisgæzlustarfa i fyrra.
Að sögn Valdimars Indriðasonar stjórnarformanns Krossvikur, en
það er eigandi Vers, kemur sterklega til greina að selja skipið og kaupa
minni togara í staöinn. Hann sagði, aö þegar hefðu fariö fram viðræður
við tvö útgerðarfyrirtæki um kaup á skipinu, Bæjarútgerö Hafnar-
fjarðar og útgerðarfyrirtækið Samherja, en þessar viðræður væru þó
enn á algjöru byrjunarstigi.
Ver skemmdist mikið I þorskastriðinu, en viðgerð er nú að fullu lokið.
Verður síld seld
úr landi í 10 kg.
umbúðum?
wí m?
Brazilíukaffi — IVvalskaffi
gébé Rvik — Samningaumleitanir
standa nú yfir milli Sildarútvegs-
nefndar og finnskra siidarinn-
flytjenda um sölu á verulegu
magni af sykursaltaðri sild i 10 kg
umbúðum, og er ekki óliklegt að
samningar takist um sölu á
sykursaltaðri sild i slikum um-
búðum fyrir allt að 50 millj. isl.
króna til afgreiðslu á fyrrihluta
komandi árs. Þetta er gert sam-
kvæmt tilraunum sem Sildarút-
vegsnefnd hefur unnið að undan-
farin ár, til þess að koma til móts
við þróunina iþessum málum hjá
kaupendum íslenzku sildarinnar.
Svo sem kunnugt er, er söltuð
sild að verulegu leyti flutt út sem
fullunnin neyzluvara. Sildin er
ýmist seld I verzlanir erlendis I
þvi ástandi sem hún er afgreidd
héðan, eða pökkuð i mismunandi
stórar dreifingarumbúðir í þvi
ástandi sem hún kemur úr tunn-
unum. Nokkur hluti saltsildarinn-
ar i Sviþjóð og sykursildarinnar i
Finnlandi, er þó flakaður áður en
pakkað er i þessar umbúðir.
Sildarútvegsnefnd hóf m.a. til-
raunaframleiðslu á pökkun haus-
skorinnar og slógdreginnar sildar
og einnig sildarflaka i 10 kg
dreifingarumbúðir, áður en
sildveiðibannið sunnanlands hófst
á sinum tima. Tilraunasending,
sem send var til Finnlands 1972,
kom á markað þar i góðu ásig-
komulagi. Eftir að sildveiðibann-
inu með hringnót lauk, var haldið
áfram þar sem frá var horfið, og
er nú i undirbúningi að senda
aukið magn i tilraunaskyni til
Finnlands, Bandarikjanna og
fleiri landa, og hafa þegar ýmsar
undirbúningsráðstafanir verið
gerðar i þessu skyni. Gert er ráð
fyrir að fyrstu sendingarnar verði
settar á markaðinn i 3-10 kg um-
búðum.Sildin verður að vera full-
verkuð áður en hægt er að pakka
henni i dreifingarumbúðirnar.
Áframhald i tilraunapökkun
þessari verður fyrst um sinn á
vegum Sildarútvegsnefndar, en
ef markaðurinn eykst fyrir salt-
aða sild i þessum umbúðum á við-
unandi verði, er ráðgert að pökk-
unin verði framkvæmd á þeim
sildarsöltunarstöðvum, sem góða
aðstöðu hafa til slikrar vinnslu.
PALLI OG PESI
Þingeyri:
Heimilis'
skemmast
- vegna of hórrar
rafmagnsspennu
gébé Rvik — Þau mistök urðu I
sambandi við viðgerð á raf-
niagnslinum á Þingeyri, að of
há spenna kom inn I nokkur
hús á staönum, og hafði þaö
þær afleiðingar, aö heimilis
tæki og sjónvörp skcmmdust
— Rafveitur eru tryggðar
gegn skemmdum, sem verða
vegna rafmagnstruflana, og f
þessu tilviki sér rafveitan
sjálfsagt um kostnað, sem
verður af viðgerð þeirra tækja
sem skemmdust, sagði Aage
Steinsson, umdæmisstjóri raf-
veitunnar á Vestfjörðum.
— Það var upphaflega
slæmt veður og mikið selturok
i þorpinu, sem gerði þaö aö
verkum, að útispennir bilaði,
ásamt tengibúnaði, sagði
Aage Steinsson, en nokkrar
rafmagnstruflanir uröu af
þessum sökum á Þingeyri á
þriðjudag og miövikudag, en I
gær var allt komið i eðlilegt
horf á ný.
— Aumingja Sig- (
hvatur. |
— Nú, hvers
vcgna?
— Karvel ætlar að
reynast ofhvatur.
jmn 7<o