Tíminn - 26.11.1976, Side 19

Tíminn - 26.11.1976, Side 19
Föstudagur 26. nóvember 1976 19 flokksstarfið Viðtalstímar alþingismanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Þórarinn Þórarinsson veröur til viðtals á skrifstofu Framsókn- arflokksins, Rauðarárstlg 18, laugardaginn 27. nóv. frá kl. 10-12. Árnessýsla Annað spilakvöldið í þriggja kvölda fram- sóknarvistinni verður að Borg Grimsnesi föstudaginn 26. nóv. Ávarp flytur sr. Sváfnir Sveinbjarnarson ný- kjörinn formaður Kjördæmissambands fram- sóknarmanna á Suðurlandi. Þriðja og siöasta spilakvöldið verður i Ar- nesi 3. des. og þar verður einnig stiginn dans. Aðalverðlaun i keppninni verða ferð fyrir tvo með Samvinnuferðum til Kanarieyja. Stjórnin. Skipulagsmól Reykjavíkur FulltrUaráð Framsóknarfélaganna I Reykjavik, gengst fyrir fundi um skipulagsmál Reykjavikur, að Hótel Esju, miðviku- daginn 1. des. kl. 20.30. Framsögumenn Helgi Hjálmarsson og Guðmundur G. Þórarinsson. Allir velkomnir. Borgfirðingar Framsóknarfélag Borgarfjaröarsýslu heldur fund I Brún i Bæjasveit föstudagskvöldið 3. des. kl. 9 Dagskrá: Aðalfundarstörf. Halldór E. Sigurðsson ráðherra flyturávarp og svar- ar fyrirspurnum. — Stjórnin. Keflavík Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins, Guðjón Stefánsson og Hilmar Pétursson, verða til viðtals i Framsóknarhúsinu laugar- daginn 27. nóvember kl. 16.00-18.00. Norræn bókmenntakynning i Norræna húsinu Laugardaginn 27. nóvember kl. 16.00 verður kynning á nýjum sænskum og finnskum bókum I umsjá sænska og finnska sendikennarans, Ingrid Westin og Ros-Mari Rosenbcrg, og bókasafns Norræna hússins. Verið velkomin NORRÆNA HÚSIÐ O Athugasemd kr. 1.106.000,00, afgreiðslutimi óákveðinn. b) Tréval h.f. (Pétur Björnsson), kr. 942.000,00, af- greiðslutimi janúar 1975 Bókað er að engar athuga- semdir hafi komið fram við opnun tilboða, og er fundar- gerðin þannig undirrituð af fulltrúum bjóðenda auk for- stjóra Innkaupastofnunar og ritara hans. Tilboðsupphæðir eru engin leyndarmál, heldur öllum frjálst að heyra þær, og birtast þær meðal annars stundum i dagblöðum. Það er þvi fráleitt, að Innkaupastofn- un sé að kynna einhverjum sérstökum aðilum framkomin tilboð, þau eru öílum frjálst að heyra sem óska. ' Hafi þvi fulltrúar Trésmiðj- unnar Áss á einhverju stigi þessa máls kynnt sér fram- komin tilboð eða verið við- staddir opnun, þótt þeir hafi ekki undirritað fundargerð, hefur þeim að sjálfsögðu verið heimilt, og hafi tilboð, sem þeir hafi ætlað að leggja fram komið of seint, hefur það ekki náð þessu útboði. 3. Eftir að tilboð höfðu verið opnuð, voru þau athuguð af tæknimönnum framkvæmda- deildar Innkaupastofnunar rikisins i samráði við hönnun- araðila. Varð niðurstaða at- hugana sú, að hvorugt tilboðið væri aðgengilegt, og ástæður voru þær, að báðar tilboðsupp- hæðir þóttu of háar, og lægra tilboðið, sem var hiðeinameð tilgreindum afgreiðslutima, var með 4ra mánaða af- greiðslutima, en nauðsynlegt að fá þetta verk fram- kvæmt á sem styt/.tum tima eins og fram kom i útbpðslýs- ingu. Skv. staðli tST 30, sem er Al- mennir útboðs- og samnings- skilmálar um verkfram- kvæmdir, segir svo i 10. grein, Höfnun tilboðs: ,,Nú vill verkkaupi ekki taka tilboði sem borizt hefur. og skal hann þá skýra bjóðáhda frá þvi i bréfi eða simskeyti eigi siðar en i lok þess frests, sem hann hefur til að taka til- boði. Geta skal þess sérstak- lega, ef öllum tilboðum var hafnað, og er þá útboðið úr gildi fellt". Var bjóðendum tilkynnt bréflega hinn 16. sept. 1974, að ákveðið hefði verið að hafna öllum tilboðum, sem borizt höfðu. Slik málsmeðferð er mjög algeng. og mætti nefna þess ymis dæmi Undir slikuin kringumstæð- um sem þessum er venja að leita samninga við einhvern verktaka um framkvæmd i formi timavinnu eða samn- ingsverðs i hluta verks, ef um meiri háttar verk var að ræöa, en hér var stærðin vart til skiptanna. Var tæknimönnum falið að kanna málið, og koirj. þá i ljós, að Trésmiðjan As, sem var einn þeirra aðila sem fengið höfðu útboðsgögn, var reiðubúin að framkvæmda verkið fyrir kr. 678.460.00 og ljúka i fyrri hluta nóvember 1974. Var þvi ákveðið að semja við Trésmiðjuna Ás, og lauk hún verkinu i nóv. 1974. Hér var um 2ja-3ja mánaða styttri afgreiðslutima að ræða og kr. 263.540.00 hagstæðara verð, og lægsta boðið var þvi 35% hærra en samningsverð. Á framangreindum forsend- um voru ákvarðanir teknar i máli þessu. og verður ekki séð eða viðurkennt. að hér hafi illa verið farið með fé almennings eða óeðlilega að málum stað- ið. Virðingarfyllst, Ásgeir Jóhannesson. © Eiturlyf króna, hefur komið fram i málum þessum, að einnig var smyg'laöhingað um tvö hundr- uð skömmtum af ofskynjunar- efninu LSD. Ilver skammtur af þvi mun nú seljast á um eitt þúsund og fimm hundruð krónur, þannig að þegar sam- an kemur, nemur söluverð- mæti þessara fikniefna yfir þrjátiu og sex milljónum króna. Af þvi hafa náðst á fimmtu milljón króna i peningum (þar af nokkuð i gjaldeyri) og ann- að eins i fikniefnum, sem gerð hafa verið upptæk. Tuttugu og sex milljónir af þessu „ffkniefnafé", eða það- an af meira, er þvi ófundið. Bifreiða- eigendur Vinsamlegast athugið þá nýjung í varahluta- þjónustu okkar að sér- panta samkvæmt yðar ósk allar gerðir vara- hluta í flestar gerðir bandarískra og evrópskra fólksbíla, vörubíla, traktora og vinnuvéla með stuttum fyrirvara. Reynið viðskiptin. Bílanaust h.f. Síðumúla 7-9 Sími 8-27-22. 33. þing Alþýðusambands Islands verður sett i Háskólabiói mánudaginn 29. nóvember kl. 14.00. Þingfulltrúar eru beðnir að vitja aðgöngu- miða sinna á skrifstofu Alþýðusambands- ins, Laugavegi 18, á laugardag og sunnu- dag, en skrifstofan verður opin frá kl. 2-5 e.h. báða dagana. Allir velunnarar Alþýðusambandsins eru velkomnir á setningarfundinn i Háskóla- biói kl. 14 á mánudaginn, meðan húsrúm leyfir og þurfa þeir ekki sérstaka aðgöngumiða. BILA- PARTA- SALAN auglýsir Nýkomnir varahlutir í: Buick Volvo Duett Singer Vogue Peugeot404 Ford Fairlane 1965 Fiat 125 Willys VW 1600 Land Rover 1968 BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10. — Simi 1-13-97. Sendum um allt land.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.