Fréttablaðið - 08.01.2006, Page 4
4 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR
������������������������
������������������������������������
��������������������� ������������������������������������
��������������
��������������������������������������
����������������������������
���������������������������������
���������������������������������������������������� ��������� ������������������������
����������������������������������������
DÓMSMÁL Hæstiréttur sneri í
gær fyrri úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur og dæmdi mann
grunaðan um innbrot og þjófnað
til að láta lögreglunni í Reykjavík
í té munnvatnssýni.
Sýnatakan tengist rannsókn
lögreglu á innbroti í verslun í
Reykjavík í sumar. Í öryggis-
myndavélum mátti sjá gulum Suz-
uki Ignis bíl ekið að versluninni
og hvernig mjósleginn, hávaxinn
maður braut rúðu og stal fartölv-
um. Hér eru einungis fáir svona
bílar og þótti manninum sem
grunaður er um þjófnaðinn svipa
til þess sem sást í upptöku örygg-
ismyndavélanna. Lögregla sá til
slíks bíls nærri heimili mannsins,
en eins bíl hafði verið stolið af
bílasölu.
Hæstiréttur heimilaði því sýn-
atökuna, enda væri fyrir hendi
rökstuddur grunur um að þessi
maður hefði verið að verki. Hér-
aðsdómur taldi hins vegar ekki
búið að tengja mannin nægilega
vel við bílinn. - óká
Hæstiréttur snýr úrskurði:
Grunaður
þjófur gefi sýni
HÆSTIRÉTTUR Snúið var í gær úrskurði Hér-
aðsdóms þar sem hafnað var beiðni um að
taka úr manni munnvatnssýni.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 06.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 60,94 61,24
Sterlingspund 106,96 107,48
Evra 73,66 74,08
Dönsk króna 9,872 9,93
Norsk króna 9,285 9,339
Sænsk króna 7,901 7,947
Japanskt jen 0,5242 0,5272
SDR 88,17 88,69
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,1916
Skaut mormóna Saksóknarar í
Chesapeake í Virginíuríki hafa gefið
út ákæru á hendur nítján ára gömlum
manni sem grunaður er um að hafa
skotið tvo mormónatrúboða. Annar dó
en hinn hlaut alvarlegt skotsár. Lögreglu
grunar að skotið hafi verið á mormón-
ana vegna þess að þeir hafi orðið vitni
að glæp.
BANDARÍKIN
ÍRAK, AP Mannræningjar rændu
bandarískri blaðakonu og myrtu
íraskan túlk hennar í vesturhluta
Bagdad í gær, samkvæmt upp-
lýsingum frá íraska innanrík-
isráðuneytinu. Túlkurinn náði
að gefa lögreglunni upplýsingar
um rán konunnar skömmu áður
en hann dó, en þau höfðu verið
á leið á fund með leiðtoga súnní-
araba.
Uppreisnarmenn hafa rænt
fleiri en 250 útlendingum síðustu
tvö árin í tilraun til að neyða fjöl-
þjóðaherinn úr landi eða til að
koma í veg fyrir að arabaþjóðir
bindist ríkisstjórn Íraks sterkari
böndum. ■
Ofbeldi í Írak:
Blaðamanni
rænt í Bagdad
VIÐSKIPTI Sigurður Þórðarson
ríkisendurskoðandi hafnar því
alfarið að hann hafi komið að
stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar
umfram það að stýra aðalfundum
sjóðsins.
Í bréfi sem hann sendi Fjár-
málaeftirlitinu 6. september
hafnar hann fullyrðingum Sigurð-
ar G. Guðjónssonar lögmanns um
að hæfi Fjármálaeftirlitsins til
að fjalla um Sparisjóðinn kunni
að vera skert vegna eignarhlutar
ríkisendurskoðanda í honum.
„Getsökum um að ég misbeiti
lögbundnum skoðunarheimildum
mínum sem endurskoðandi Fjár-
málaeftirlitsins í þágu meints
hagsmunahóps meðal stofnfjár-
eiganda SPH mótmæli ég jafn-
framt harðlega sem algerlega
tilhæfulausum. Svo sem yfir-
stjórn fjármálaeftirlitsins er
vel kunnugt hef ég aldrei í starfi
mínu sem endurskoðandi þess
rætt málefni SPH eða annarra
aðila, sem því ber að lögum að
hafa eftirlit með,“ segir hann og
telur Sigurð G. á „órökstuddan og
ógeðfelldan hátt“ vega að bæði
starfsheiðri hans og starfsmanna
Fjármálaeftirlitsins.
Ríkisendurskoðandi er lög-
skipaður endurskoðandi árs-
reikninga Fjármálaeftirlitsins
- óká
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi svarar ásökunum um vanhæfi:
Segir ásakanir ógeðfelldar
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON Sigurður, sem er
ríkisendurskoðandi, hafnar því að hafa
verið hluti af hópi sem stjórnað hafi SPH.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vest-
mannaeyjum rannsakar enn
fíkniefnamál sem kom þar upp á
gamlársdag. Tugir manna voru
yfirheyrðir vegna málsins. Lög-
reglan lagði hald á um 1,5 kíló af
hassi og lítilræði af amfetamíni
og e-töflum.
Einn maður var úrskurðaður
í gæsluvarðhald á gamlársdag,
grunaður um fíkniefnasölu, en
honum var sleppt síðdegis í gær.
Rannsókn málsins heldur áfram
og miðar vel. ■
Fíkniefni í Vestmannaeyjum:
Sleppt úr
gæsluvarðhaldi
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, liggur enn
þungt haldinn á sjúkrahúsi. Á
síðustu dögum hefur hann geng-
ist undir tvær
aðgerðir vegna
alvarlegs heila-
blóðfalls sem
hann fékk síð-
astliðinn mið-
vikudag og í
gær bárust þær
fréttir að bjúg-
urinn í höfði
hans væri á
undanhaldi.
L æ k n a r
munu ákveða
í dag hvenær
þeir reyna að
vekja Sharon
úr lyfjadáinu
sem honum er
haldið í.
Ástand hans er stöðugt, en þó
er forsætisráðherrann enn í lífs-
hættu. Shlomo Mor-Yosef, stjórn-
andi Hadassah-sjúkrahússins,
sagði í viðtali í gær að læknar
teldu það mögulegt að bjarga lífi
Sharons. - smk
Forsætisráðherra Ísraels:
Sharon enn
þungt haldinn
LIGGUR ÞUNGT HALD-
INN Forsætisráðherra
Ísraels, Ariel Sharon,
liggur enn þungt
haldinn á sjúkrahúsi
eftir heilablóðfall sem
hann fékk í síðustu
viku.
KJARAMÁL Tveir mánuðir eru nú
liðnir frá því að kjarasamningur
í Kópavogi var samþykktur með
rúmlega 70 prósentum atkvæða.
„Hinn 16. desember samþykkti
Reykjavíkurborg kjarasamning og
þá varð mismunur á kjörum starfs-
manna sveitarfélaganna augljós,“
segir Ármann Kr. Ólafsson, forseti
bæjarstjórnar í Kópavogi. „Eðli-
lega verður óánægja.“
Ármann segir bæjarstjórn hafa
látið reyna á hvort ástandið myndi
batna eftir þenslu á vinnumarkaði í
desember. „Svo varð raunin. Fyrir
áramót vantaði 28 starfsmenn
þegar mest var en núna vantar 16
starfsmenn á leikskólana,“ segir
Ármann og bendir á að í Reykja-
vík vanti 80 starfsmenn, sem sé
nokkurn veginn í réttu hlutfalli
miðað við stærð sveitarfélaganna.
Einnig segir Ármann að staðið hafi
verið við loforð um að öll tveggja
ára börn fengju vistun á leikskól-
um bæjarins. 15 börn á þessum
aldri hafa ekki fengið vistun, sem
meðal annars má rekja til séróska
foreldra varðandi staðsetningu
leikskólanna.
„Þrjár vikur eru liðnar síðan
óánægjan kom upp í tengslum
við kjarasamningana í Reykja-
vík,“ segir Ármann. „Það finnst
mér ekki langur tími miðað við
þá vinnu sem er farin af stað.
Meirihlutaflokkar bæjarstjórnar
funduðu á föstudag með trúnað-
armönnum leikskóla bæjarins og
með starfsmannafélagi Kópavogs.
Á mánudag hefur svo verið boðað
til fundar með fulltruúm foreldra
og leikskólakennara til að fara yfir
stöðu mála.“ Ármann segir að á
fundinum á föstudag hafi komið
fram tillögur sem verði notaðar
sem veganesti í vinnunni sem fer
fram fyrir launaráðstefnu Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga 20.
janúar. „Mín von er að niðurstaða
launaráðstefnunnar verði til þess
að bæta kjör þeirra lægst launuðu
svo það standist samanburð við
önnur sveitarfélög,“ segir Ármann
og bætir við að bæjarstjórnin muni
koma fram með tilboð á ráðstefn-
unni.
Í framhaldi af bæjarstjórnar-
fundi á mánudag mun fara fram
opinn fundur þar sem fulltrúar
minnihlutaflokka bæjarstjórnar
í Kópavogi munu fara yfir stöðu
mála. Hafsteinn Karlsson, bæjar-
fulltrúi Samfylkingar í Kópavogi,
segir að lagt hafi verið til af hálfu
flokksins að bæjarstjórnin öll héldi
fund. „Bæjarstjórnin ákvað að fara
þá leið að funda sérstaklega með
hagsmunaaðilum,“ segir Hafsteinn.
Umræða um málið verður svo tekin
upp á bæjarstjórnarfundi á þriðju-
daginn. johannas@frettabladid.is
Nauðsynlegt er að
hækka lægstu launin
Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi, segir vinnu hafna sem
miðist að því að ná fram sátt í kjaramálum á launaráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga í janúar. Nauðsynlegt sé að bæta laun hinna lægst launuðu.
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON Forseti bæjarstjórnar í Kópavogi segir eðlilegt að óánægja hafi
komið upp eftir að Reykjavíkurborg samþykti kjarasamning um miðjan desember.