Fréttablaðið - 08.01.2006, Side 21
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
STÖRF Í BOÐI
Verkamenn
Skólastjóri
Leikskólastjóri
Umhverfis- og þróunarfulltrúi
Loftræstihönnuður
Veg- og gatnahönnuður
Verkeftirlit
Forritari
Lagermenn
Innkaupastjóri
Sölumenn
Deildarstjóri
Forstöðumaður
Sérfræðingur
Fjármálaráðgjafi
Lögfræðingur
Stuðningsfulltrúar
Viðskiptafræðingur
Hagfræðingur
Fagstjóri
Kaffibarþjónn
Rafmagnsverkfræðingur
Árslaun á Íslandi eru há miðað
við laun í öðrum Evrópulöndum
samkvæmt alþjóðlegum sam-
anburði á launum sem sjá má
á heimasíðu Hagstofu Íslands.
Helstu skýringar á launum
Íslendinga eru langur vinnutími
og hátt verðlag. Íslendingar eru
lengur að vinna fyrir laununum
sínum en aðrar Evrópuþjóðir og
verðlag hér á landi er með því
hæsta í Evrópu.
Félagsmenn í VR með erlent
ríkisfang eru um það
bil sexhundruð og
fimmtíu og hefur
þeim fjölgað um
þriðjung á
síðasta
ári
samkvæmt frétt á heimasíðu VR.
Félagsmenn VR eru nú frá alls
sjötíu og átta þjóðlöndum.
Grunnlífeyrir almannatrygg-
inginga á ekki að skerðast
við viðbótarlífeyrissparnað
samkvæmt því sem kemur fram
á vef Landssamtaka lífeyrissjóða.
Viðbótarlífeyrissparnaðurinn er
meðhöndlaður á sama hátt og
greiðslur úr lífeyrissjóðum við
útreikning bóta og því skerðir
hann ekki grunnlífeyrinn.
Bandarískar konur eru mjög
ósáttar við það misrétti sem
þær segjast vera beittar á
vinnustöðum á meðan þær
ganga með börn og þegar
þær snúa aftur til vinnu eftir
barnsburð. Kærum vegna
slíks misréttis hefur fjölg-
að um þrjátíu og þrjú
prósent í Bandaríkjun-
um síðustu tólf ár
samkvæmt frétt á
heimasíðu VR.
LIGGUR Í LOFTINU
ATVINNA
Ólafur Ragnarsson mjólkurfræðingur
hefur starfað hjá Mjólkursamsölunni
síðan 1988. Hann segir að það sé mjög
skemmtilegt að fylgjast með fram-
leiðsluferli mjólkurvara.
Ólafur lærði mjólkurfræði í Óðinsvéum í
Danmörku. „Það læra allir mjólkurfræðingar
í Danmörku en námið er mjög fjölþætt og
kemur inn á alla þætti mjólkurvinnslu,“
segir hann. Eftir að Ólafur lauk náminu kom
hann heim og fór strax að vinna hjá Mjólkur-
samsölunni. „Fyrstu níu árin var ég að
vinna á rannsóknarstofunni við gæðaeftirlit
og efnamælingar og annað slíkt sem tengist
vinnslunni. Árið 1997 fór ég síðan að vinna í
vinnslunni sjálfri,“ segir hann.
Starf Ólafs felst í keyrslu á framleiðslu-
vélum Mjólkursamsölunnar. „Framleiðslu-
vélarnar gerilsneyða mjólkina og fitu-
sprengja og skilja hana síðan í undanrennu
og rjóma ef á að gera það. Svo er verið að
pakka og koma vörunum í umbúðir. Einnig
þarf að sjá til þess að gæðin séu í lagi en
rannsóknarstofan sér um gæðaeftirlitið,“
segir hann og bætir við að mjólkuriðnað-
urinn sé orðinn mjög tæknivæddur og öll
tæki séu tölvustýrð. „Við sitjum mikið fyrir
framan tölvuskjái og stýrum því sem við
erum að gera þaðan.“
Ólafi finnst skemmtilegast við starfið
að fylgjast með framleiðslunni. „Það er
mjög gaman að sjá vörurnar verða til, svo
ég tali nú ekki um í jógúrtframleiðslu þar
sem verið er að vinna með lifandi gerla eða
í ostagerð þar sem fylgst er með því ferli
þegar mjólk verður ostur.“
Ólafur segir að því miður hafi mjólkur-
drykkja Íslendinga minnkað á síðustu
árum. „Það er mikið framboð af öðrum
drykkjum eins og gosi og söfum sem
dregur úr mjólkurneyslu.“ Hann segir að
mjólkurdrykkja Íslendinga hafi líka breyst
og sala á léttmjólk hafi aukist á meðan sala
á nýmjólk hafi minnkað. „Ég sé stóran mun
á því síðan ég byrjaði og léttmjólkurdrykkja
er á síðustu árum orðin alveg jafn mikil ef
ekki meiri en nýmjólkurdrykkja.“
emilia@frettabladid.is
Íslendingar mættu
drekka meiri mjólk
Ólafur Ragnarsson segir að það sé skemmtilegt að fylgjast með framleiðsluferli mjólkurvara. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 8. janúar,
8. dagur ársins 2006.
Reykjavík 11.09 13.34 16.00
Akureyri 11.18 13.19 15.20
Hljóð getur verið hættulegt bls. 2
Einelti á vinnustað bls. 2
Verzlunarfélag
Reykjavíkur hefur
ákveðið að skipta um
nafn en núverandi nafn
þykir ekki henta lengur.
Forráðamenn VR hafa
ákveðið að efna til
samkeppni um nýtt nafn
og er 300.000 krónum
heitið fyrir bestu
tillöguna. Núverandi nafn
þykir ekki endurspegla
starfsemi félagsins lengur
því innan við tuttugu
prósent félagsmanna
VR eru verslunarmenn.
Flestir félagsmenn
VR eru stjórnendur og
sérfræðingar, um 37
prósent, og 25 prósent
félagsmanna teljast
sérhæft starfsfólk og
tæknar.
Nýja nafnið skal
endurspegla starfsemina,
vera skýrt og þjált en
þó má það vera lengra
ef skammstöfunin er
hentug. Einnig er sá
möguleiki fyrir hendi
að skammstöfunin
sé ný útfærsla á
skammstöfuninni VR.
Í dómnefnd sitja
rithöfundarnir Andri
Snær Magnason og
Gerður Kristný ásamt
Gunnari Páli Pálssyni,
formanni VR, og
Kristínu Sigurðardóttur,
forstöðumanni samskipta-
og þróunarsviðs VR.
VR skiptir um nafn
Landsbankinn - Fræðsludeild
Landsbankinn er eitt stærsta
fjármálafyrirtæki landsins og
veitir alhliða fjármálaþjónustu
til einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana.
Landsbankinn leitast við að ráða
til sín og hafa í sínum röðum
framúrskarandi starfsfólk og efla
það í störfum sínum.
Til að stuðla að vexti og arðsemi
bankans er áhersla lögð á
skemmtilegan vinnustað, starfs-
ánægju og gott starfsumhverfi,
sem og markvissa starfsþróun
og þekkingu starfsfólks.
Það er viðhorf stjórnenda
Landsbankans að starfsfólkið,
metnaður þess, kraftur og
hollusta, séu lykillinn að
farsælum rekstri bankans.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
LB
I
30
85
4
0
1/
20
06
Starf sérfræðings í fræðsludeild Landsbankans á starfsmannasviði er laust til
umsóknar. Viðkomandi kemur til með að vinna með fræðslustjóra bankans að
hinum ýmsu verkefnum er snúa að fræðslu og þjálfun starfsmanna.
Helstu verkefni:
• Umsjón og undirbúningur námskeiða
• Skráning og úrvinnsla upplýsinga
• Greining fræðsluþarfa
• Mat og greining á fræðsluframboði
• Ýmis verkefni tengd fræðslumálum
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði félagsvísinda, viðskiptafræði eða sambærilegt
• Reynsla af störfum við fræðslumál er kostur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð framkoma og samskiptahæfileikar
• Geta til að miðla efni á skýran hátt, bæði í ræðu og riti
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Nánari upplýsingar veita Bergdís Björt Guðnadóttir fræðslustjóri í síma 410 7911
og Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs í síma 410 7904.
Umsókn og ferilskrá sendist til atlia@landsbanki.is fyrir 17. janúar nk.
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
Lausar stöður við
leikskóla Kópavogs
• Leikskólakennarar. Kópavogsbær starf-
rækir 16 leikskóla fyrir börn á aldrinum
1 – 5 ára. Í leikskólunum er unnið
metnaðarfullt starf, en hver leikskóli
hefur sína skólanámskrá og sína
áhersluþætti í starfinu.
• Sérkennslustjórar. Starfssvið þeirra er
að halda utan um sérkennslu í einstaka
leikskólum.
• Matráður. Leikskólinn Núpur og
leikskólinn Dalur
Um er að ræða bæði heilar og hluta stöður.
Konur jafnt og karlar eru hvött til að sækja um
störfin.
Upplýsingar um leikskóla Kópavogs er að finna
á heimasíðu Kópavogs www.kopavogur.is, þar
sem einnig er hægt að sækja um stöður.
Nánari upplýsingar eru veittar á
leikskólaskrifstofu
s: 570 1600 og
hjá leikskólastjóra
hvers leikskóla
fyrir sig.
Fræðsluskrifstofa
Kópavogs