Fréttablaðið - 08.01.2006, Side 24

Fréttablaðið - 08.01.2006, Side 24
ATVINNA 4 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR Verðbréfa- og lífeyrisþjónusta Landsbankans Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins og veitir alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfs- ánægju og gott starfsumhverfi, sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks. Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta, séu lykillinn að farsælum rekstri bankans. Laus eru til umsóknar tvö störf fjármálaráðgjafa í verðbréfa- og lífeyrisþjónustu á sölu- og markaðssviði bankans. Um er að ræða fjölbreytt verkefni í krefjandi starfsumhverfi sem felast í ráðgjöf til einstaklinga, samskiptum við útibú bankans og þátttöku í þróun á fyrsta flokks einstaklingsþjónustu á sviði eigna- umsýslu og lífeyrismála. Helstu verkefni: • Ráðgjöf til einstaklinga um verðbréfaviðskipti og lífeyrissparnað • Ráðgjöf við uppbyggingu eignasafna viðskiptavina • Upplýsingagjöf og þjálfun starfsfólks útibúa vegna sölu og ráðgjafar á verðbréfa- og lífeyrisafurðum Hæfniskröfur og eiginleikar: • Háskólamenntun á sviði viðskipta- eða hagfræði eða sambærilegt • Starfsreynsla á fjármálamarkaði er kostur • Frumkvæði og metnaður í starfi • Góð samskiptafærni og vönduð vinnubrögð Nánari upplýsingar veita Tómas N. Möller forstöðumaður verðbréfa- og lífeyrisþjónustu í síma 410 6931 og Bergþóra Sigurðardóttir forstöðumaður á starfsmannasviði í síma 410 7907 Umsókn og ferilskrá sendist í tölvupósti á bergsig@landsbanki.is fyrir 17. janúar nk. ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - LB I 30 85 5 0 1/ 20 06 Leikskólann Vinagerði vantar leikskólakennara, starfsfólk með sambærilega menntun eða reynslu til starfa sem fyrst. Áhugasamir geta fengið allar nánari upplýsingar hjá leikskólastjóra í síma 553-8085. Einnig er hægt að senda tölvupóst á vinagerdi@simnet.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.