Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 24
ATVINNA
4 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR
Verðbréfa- og lífeyrisþjónusta Landsbankans
Landsbankinn er eitt stærsta
fjármálafyrirtæki landsins og
veitir alhliða fjármálaþjónustu
til einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana.
Landsbankinn leitast við að ráða
til sín og hafa í sínum röðum
framúrskarandi starfsfólk og efla
það í störfum sínum.
Til að stuðla að vexti og arðsemi
bankans er áhersla lögð á
skemmtilegan vinnustað, starfs-
ánægju og gott starfsumhverfi,
sem og markvissa starfsþróun
og þekkingu starfsfólks.
Það er viðhorf stjórnenda
Landsbankans að starfsfólkið,
metnaður þess, kraftur og
hollusta, séu lykillinn að
farsælum rekstri bankans.
Laus eru til umsóknar tvö störf fjármálaráðgjafa í verðbréfa- og lífeyrisþjónustu
á sölu- og markaðssviði bankans. Um er að ræða fjölbreytt verkefni í krefjandi
starfsumhverfi sem felast í ráðgjöf til einstaklinga, samskiptum við útibú
bankans og þátttöku í þróun á fyrsta flokks einstaklingsþjónustu á sviði eigna-
umsýslu og lífeyrismála.
Helstu verkefni:
• Ráðgjöf til einstaklinga um verðbréfaviðskipti og lífeyrissparnað
• Ráðgjöf við uppbyggingu eignasafna viðskiptavina
• Upplýsingagjöf og þjálfun starfsfólks útibúa vegna sölu
og ráðgjafar á verðbréfa- og lífeyrisafurðum
Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta- eða hagfræði eða sambærilegt
• Starfsreynsla á fjármálamarkaði er kostur
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Góð samskiptafærni og vönduð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veita Tómas N. Möller forstöðumaður verðbréfa- og
lífeyrisþjónustu í síma 410 6931 og Bergþóra Sigurðardóttir forstöðumaður
á starfsmannasviði í síma 410 7907
Umsókn og ferilskrá sendist í tölvupósti á bergsig@landsbanki.is
fyrir 17. janúar nk.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
LB
I
30
85
5
0
1/
20
06
Leikskólann Vinagerði vantar
leikskólakennara, starfsfólk með
sambærilega menntun eða reynslu
til starfa sem fyrst.
Áhugasamir geta fengið allar nánari upplýsingar
hjá leikskólastjóra í síma 553-8085.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á vinagerdi@simnet.is