Fréttablaðið - 08.01.2006, Síða 29

Fréttablaðið - 08.01.2006, Síða 29
ATVINNA SUNNUDAGUR 8. janúar 2006 9 SKJÓL HJÚKRUNARHEIMILI, KLEPPSVEGI 64 104 REYKJAVÍK Hjúkrunarfræðingar ! Óskum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. Einkum vantar á kvöld- og helgarvaktir. Starfshlutfall samkomulag. Sjúkraliðar. Sjúkraliðar óskast til starfa á morgun- og kvöldvaktir. Starfshlutfall samkomulag. Starfsfólk í aðhlynningu. Starfsfólk óskast við umönnun aldraðra á morgun og kvöldvaktir. Starfshlutfall samkomulag Skjól er hjúkrunarheimili aldraðra þar sem hjúkrun er veitt í hlýlegu umhverfi. Að vinna við umönnun aldraðra er dýrmæt og góð reynsla. Góð starfsaðstaða. Reyklaus vinnustaður. Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Vilhjálmsdóttir hjúkrunarforstjóri (alla@skjol.is) virka daga í síma 522-5600 Veðurstofa NFS býr yfir aðgengi að fullkomnustu tölvuspám sem völ er á auk fullkomins tölvubúnaðar til flutnings veðurfrétta. Um er að ræða fullt starf á vöktum. Umsækjendur skulu: -hafa lokið háskólaprófi í raunvísindum -búa yfir léttleika og hæfni í mannlegum samskiptum -vera hnitmiðaðir og skilmerkilegir í máli -hafa brennandi áhuga á veðurfræði og skyldum greinum -búa yfir frumkvæði. Nánari upplýsingar veitir Ólafía B. Rafnsdóttir starfsmannastjóri 365 miðla. Ráðið verður í stöðuna sem fyrst. Umsóknum með upplýsingum um menntun og reynslu skal skila á: olafia.b.rafnsdottir@365.is. VEÐURFRÉTTAMAÐUR Við leitum að veðurfréttamanni á veðurstofu NFS. Starfið felst í gerð veðurspáa og flutningi þeirra, samningu og gerð fræðslu- og fréttaefnis á sviði raunvísinda og skyldra greina auk hugmyndavinnu. Styrktarfélag vangefinna Matráður óskast til starfa í mötuneyti fyrir Bjarkarás og Lækjarás. Um er að ræða 100% starf frá 8.00 til 16.00. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Bjarkarás og Lækjarás eru staðsettir í Stjörnugróf 7 og 9 og þjónar mötuneytið um 120 manns. Hjá Styrktarfélagi vangefinna er lögð áhersla á heilsusamlegt fæði í samræmi við heilsustefnu félagsins. Krafa er gerð um menntun og reynslu á þessu sviði. Nánari upplýsingar veita Þórhildur Garðarsdóttir Bjarkarási í síma 568-5330, Laufey Gissurardóttir Lækjarási í síma 553 9940 og starfsmannastjóri félagsins í síma 551-5941 á skrifstofutíma. Laun eru samkvæmt kjarasamningum ríkisins. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrktarfélagið á heimasíðu þess, http://www.styrktarfelag.is.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.