Fréttablaðið - 08.01.2006, Page 30
Starfið
Mannfræði fjallar um mann-
inn bæði sem félagsveru
og lífveru. Hún skiptist í
tvö meginsvið, félags- og
m e n n i n g a r m a n n f r æ ð i
annars vegar og líffræði-
lega mannfræði hins vegar.
Starfsvið mannfræðinga
er mjög víðfeðmt en þeir
vinna meðal annars við
rannsóknarstörf, stjórnun,
kennslu og ráðgjafarþjónustu.
Starfsviðið verður þrengra
ef mannfræðingar taka
sérnám og sem dæmi um
störf eru þróunarhjálp,
mannréttindabarátta, fjöl-
miðlun, menningartengd
ferðaþjónusta og skipulagn-
ing ráðstefna hjá ýmsum
fyrirtækjum.
Námið
Boðið er upp á BA-próf í
mannfræði við Háskóla
Íslands. Hægt er að taka
mannfræði sem aðalgrein
til 90 eða 60 eininga eða sem
aukagrein til 30 eininga.
Í mannfræði sem aðal-
grein fá nemendur á fyrsta
ári kennslu í grunnhug-
myndum og hugtökum
félagslegrar og líffræðilegr-
ar mannfræði. Einnig læra
þeir um rannsóknir félags-
mannfræðinga og kynnast
fornleifafræði.
Á öðru og þriðja ári hafa
nemendur meira val í námi
sínu og geta valið greinar
eftir áhugasviði.
Helstu námsgreinar
Meðal þeirra námskeiða
sem kennd eru í deildinni
eru þjóðernishópar, aðferða-
fræði, mannfræði kynmenn-
ingar, vinnulag í mannfræði
og þjóðfræði, maður og
umhverfi, etnógrafía Afríku,
mannfræði Íslendingasagna,
notagildi og fagurfræði,
mannfræði barna, hagræn
mannfræði, mannfræði
stjórnmála, trú og tákn, lík-
ami og samfélag, etnógrafía
Eyjaálfu og mannfræði þró-
unar.
Inntökuskilyrði
Nemandi skal hafa lokið stúd-
entsprófi eða sambærilegu
prófi frá erlendum skóla en
æskilegur undirbúningur fer
eftir markmiðum námsleiðar
sem valin er.
Að námi loknu
Háskóli Íslands býður upp á
framhaldsnám í mannfræði.
Mastersnámið tekur tvö ár
og er samtals 60 einingar.
Þar sækja nemendur
annars vegar námskeið og
skrifa hins vegar viðamikla
ritgerð. Doktorsritgerð
er metin til 90 eininga en
þó má krefjast þess að
doktorsneminn taki allt að
30 eininga bóknámshluta að
auki ef talin er þörf á frekari
undirstöðuþekkingu fyrir
ritgerðina. Yfirleitt er gert
ráð fyrir að hluti námsins sé
tekinn í erlendum háskóla.
Mannfræðinemendur fá að kynnast fornleifafræði á fyrsta ári.
Hvernig verður maður
mannfræðingur?
Mannfræðingar starfa meðal annars við þróunarhjálp.
ATVINNA
10 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR