Fréttablaðið - 08.01.2006, Qupperneq 32
ATVINNA
12 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR
Orkuveita Reykjavíkur
framsækið þjónustufyrirtæki sem
aflar og dreifir vistvænni orku á
sem hagkvæmastan hátt og í sátt
við umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins
býr meira en helmingur íslensku
þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita
viðskiptavinum sínum bestu
mögulegu þjónustu og sjá þeim
fyrir ódýrri orku sem framleidd
er úr endurnýjanlegum íslenskum
orkulindum. Þannig stuðlar
fyrirtækið að aukinni notkun
hreinnar innlendrar orku og
leggur um leið sitt af mörkum til
nýsköpunar og framfara í landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og
lifandi vinnustaður fólks með
mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast
við að vera í fremstu röð hvað
snertir öryggi- og vinnuumhverfi
og möguleika starfsfólks við að
samræma vinnu og fjölskyldu-
ábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu
Reykjavíkur að auka hlut kvenna
í stjórnunar og ábyrgðarstöðum
innan fyrirtækisins.
Orkuveita Reykjavíkur leitar að öflugum stjórnanda til að veita
sölusviði fyrirtækisins forstöðu.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
3
08
77
01
/2
00
6
Fyrirtækið sækist eftir dugmiklum og jákvæðum stjórnanda til starfa,
einstaklingi sem getur axlað ábyrgð og tekist á við mjög krefjandi
verkefni.
Sölusvið er eitt af grunnsviðum Orkuveitunnar. Sölusvið annast og ber
ábyrgð á sölu á afurðum fyrirtækisins og markaðsmálum er því tengjast.
Sviðsstjóri sölu ber ábyrgð á framkvæmd sölu- og markaðsmála. Hann stýrir daglegum
rekstri sviðsins og mótar framtíð þess.
• Háskólamenntun á sviði viðskipta, markaðsfræða eða sambærileg.
• Framhaldsmenntun æskileg.
• Reynsla af stjórnun og sölu- og markaðsmálum skilyrði.
• Mikil áhersla er lögð á öguð vinnubrögð, góða framkomu og frumkvæði.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 20. janúar 2006.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson,
netfang: thorir@hagvangur.is
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum svarað.
Sviðsstjóri sölu (5092)
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla
og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leik-
skólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og
eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir
menntaráð og starfshópa á vegum ráðsins.
MENNTASVIÐ – LEIKSKÓLAR
Spennandi stjórnunarstarf í boði.
Aðstoðarleikskólastjóri í Hálsaborg
Laus er staða aðstoðarleikskólastjóra í leikskólanum Hálsa-
borg, Hálsaseli 27 sem er þriggja deilda leikskóli í Seljahverfi.
Unnið er samkvæmt hugmyndafræði Berit Bae, þar sem
virðing, sjálfræði og viðurkenning eru lykilhugtök.
Allar nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Ólöf Helga
Pálmadóttir í síma 557-8360.
Hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun er áskilin
Hæfni og reynsla af stjórnun
Færni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð vinnubrögð
Skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Staðan er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi geti
hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 16. janúar nk.
Umsóknir sendist í leikskólann Hálsaborg, Hálsaseli 27. Einnig veitir
starfsmannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í síma 411 7000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara og Launa-
nefndar sveitafélaga. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um
laus störf er að finna á heimasíðunni www.leikskolar.is
Málning óskar eftir því að
ráða starfsmenn í framleiðslu
á málningu. Um er að ræða
blöndun á málingu. Lyftararétt-
indi æskileg, ekki nauðsynleg.
Vinna frá 8 til 16. Matur á
staðnum. Upplýsingar gefur
verkstjóri (Sigurður) á staðnum
á milli klukkan 8 og 16
Dalvegur 18, 200 Kópavogi
Hefur þú áhuga á lifandi starfi, mannleg-
um samskiptum, sjálfstæði í starfi og góð-
um tekjum? Ef svo er þá erum við rétti
vinnustaðurinn fyrir þig.
Hjá fasteignasölunni RE/MAX Stjörnunni starfar duglegt
og metnaðarfullt fólk sem hefur það að markmiði sínu
að veita viðskiptavinum sínum ætíð topp þjónustu.
Ef þú hefur áhuga þá vinsamlegast sendu inn umsókn á
auglýsingadeild Morgunblaðsins merkta “Frábær starfs-
kraftur”.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Fasteignasalan RE/MAX Stjarnan
Bæjarhrauni 6
220 Hafnarfirði.
Forstöðumaður í sambýli
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík óskar eftir að
ráða forstöðumann / forstöðuþroskaþjálfa á sambýli í
Reykajvík. Sambýlið er í glæsilegu hverfi í austurborginni
og íbúarnir eru 5 talsins.
Í starfinu felst m.a.
• fagleg ábyrgð á þjónustunni
• uppbygging innra starfs
• samskipti við aðrar þjónustustofnanir
• starfsmannahald og rekstrarábyrgð
• breytingastjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur
• háskólapróf í þroskaþjálfun eða sambærileg menntun á
heilbrigðissviði
• reynsla af störfum með fötluðum og þekking á málefn-
um þeirra
• reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi
• hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæð viðhorf
Starfsmannastjóri gefur allar nánari upplýsingar í síma 533-
1388, netfang: gudnya@ssr.is. Einnig gefur Hróðný
Garðarsdóttir upplýsingar í síma 533-1388, neftang:
hrodny@ssr.is
Frekari upplýsingar um starfsemi SSR er að finna á
heimasíðunni www.ssr.is
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
• Umsóknarfrestur er til 22. janúar 2006
• Laun eru í samræmi við samninga ríkisins og viðkoman
di stéttarfélags
• Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni
Síðumúla 39 og á fyrrnefndri heimasíðu SSR
• Skriflegar umsóknir ásamt lífsferilskrá berist til starfs
mannastjóra, Guðnýjar Önnu Arnþórsdóttur, Síðumúla
39, 108 Reykjavík
• Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum
tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur
verið tekin
Á SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun.
Líftæknifyrirtækið LindGen
ehf. leitar eftir tveimur starfs-
mönnum á rannsóknarstofu.
Vísindamaður, áhersla á tækniþróun:
Starfslýsing:
Hönnun, framkvæmd og túlkun tilrauna er lúta að þróun að-
ferða.
Hæfniskröfur:
M.Sc. á sviði erfðafræði, lífefnafræði, sameindalíffræði eða
skyldum greinum. Góð tölfræði- og tölvuþekking.
Góð enskukunnátta er skilyrði. Leitað er að einstaklingi með
starfsreynslu sem sýnir sjálfstæð vinnubrögð, auk áhuga og
frumkvæði í starfi.
Vísindamaður, áhersla á tölvu- og
tölfræðiúrvinnslu:
Starfslýsing:
Tölvu- og tölfræðiúrvinnsla gagna, ásamt framkvæmd tilrauna
á rannsóknarstofu.
Hæfniskröfur:
M.Sc. á sviði erfðafræði, lífefnafræði, sameindalíffræði, líftöl-
fræði eða skyldum greinum. Víðtæk tölfræði- og tölvuþekking.
Reynsla af S-language (S-plus, R) og forritun. Góð enskukunn-
átta er skilyrði. Leitað er að einstaklingi með starfsreynslu sem
sýnir sjálfstæð vinnubrögð, auk áhuga og frumkvæði í starfi.
LindGen er einkahlutafélag, stofnað af og í eigu Cold Spring Harbor
Laboratories, Long Island, New York. Fyrirtækið starfar að
erfðarannsóknum og beitir öflugri skimunartækni við rannsóknir á
erfðamenginu í samstarfi við NimbleGen á Íslandi og CSHL, NY.
Rannsóknir LindGen beinast að erfðafræðilegum áhættuþáttum
sjúkdóma, greiningu krabbameina og meingenaleit.
Umsóknarfrestur er til 16. janúar. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn á ensku ásamt lýsingu á starfsferli sendist til:
Eirnýjar Þórólfsdóttur
LindGen
Vínlandsleið 2-4 113 Reykjavík
Sími: 414 2131
eirny@lindgen.is http://www.lindgen.is