Fréttablaðið - 08.01.2006, Qupperneq 50
ATVINNA
22 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR
ÞJÓNUSTU- OG REKSTRARSVIÐ
Félagsráðgjafi
Þjónustumiðstöð Breiðholts óskar að ráða félagsráðgjafa í
60 % starf. Um er að ræða afleysingu til eins árs.
Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölskylduráðgjöf.
Helstu verkefni:
• Lausnarmiðuð ráðgjöf í einstaklings- og fjölskyldumálum.
• Þverfaglegt starf í Þjónustumiðstöð Breiðholts.
• Samvinna við samstarfsaðila og hagsmunasamtök.
Hæfniskröfur:
• Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
• Þekking og reynsla í lausnarmiðaðri vinnu með einstak-
linga og fjölskyldur æskileg.
• Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu.
Þjónustumiðstöð Breiðholts býður upp á:
• Möguleika á að hafa áhrif og taka þátt í uppbyggingu og
mótun nýrrar þjónustumiðstöðvar.
• Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki.
• Sveiganlegan vinnutíma.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Kemp í síma 411 1300, net-
fang: thora.kemp@reykjavik.is
Umsóknum skal skilað á Þjónustumiðstöð Breiðholts,
Álfabakka 12, 109 Reykjavík fyrir 20. janúar 2006
Eldhús
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða óskar eftir starfs-
manni í eldhús í Félags- og þjónustumiðstöðina
Bólstaðarhlíð 43.
Um er að ræða 75% starf. Í starfinu felst aðstoð við móttöku
og sölu á aðsendum mat, kaffisölu og almennum
eldhússtörfum. Óskað er eftir starfsmanni sem er lipur í
mannlegum samskiptum og sveigjanlegur. Viðkomandi þarf
að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Jóna Þ. Vernharðsdóttir í síma 535
2760, netfang: jona.th.vernhardsdottir@reykjavik.is
Umsóknum skal skilað á Félags- og þjónustumiðstöðina
Bólstaðarhlíð 43 fyrir 24. janúar 2006.
Sjálfstæð búseta
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða óskar eftir starfs-
manni í íbúðarkjarnann að Skúlagötu 46.
Um er að ræða aðstoð og stuðning við fólk með fötlun sem
býr í sjálfstæðri búsetu.
Í boði er hlutastarf um kvöld og helgar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Jacobsen í síma 561 3141.
Umsóknum skal skilað á netfangið
katrin.jacobsen@reykjavik.is fyrir 18. janúar 2006.
Sjúkraliði/starfsmaður vanur umönnun
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vesturgarður óskar eftir
sjúkraliða eða starfsmanni vönum umönnun í 62,5 %
starf á dagdeild aldraðra Þorrasel, Þorragötu 3.
Í starfinu felst öll almenn þjónusta við gesti dagdeildarinnar.
Vinnutími er frá 9.00 til 14.00 virka daga.
Þorrasel er dagdeild fyrir 40 aldraða einstaklinga þar sem
fram fer skapandi og skemmtileg starfsemi. Góð vinnu-
aðstaða í fallegu umhverfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
viðkomandi stéttafélags.
Nánari upplýsingar veita: Droplaug Guðnadóttir í síma 562
2571 droplaug.gudnadottir@reykjavik.is og Björg Einarsdóttir
í síma 561 2828 bjorg.einarsdottir@reykjavik.is
Þjónustu- og rekstrarsvið fer með þjónustu, innkaupamál,
upplýsingatækni og rekstur. Nýstofnaðar þjónustumiðstöðvar
í hverfum heyra undir sviðið, innkaupa- og rekstrarskrifstofa,
skrifstofa þjónustu- og upplýsingatækni,
upplýsingatæknimiðstöð og símaver.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu
Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Áhugaverð störf í boði
Starfsólk – félagsliðar
Starfsólk óskast á heimili fólks með fötlun, að Vættaborg-
um 82. Vaktavinna. Skipulögð aðlögun.
Æskilegir eiginleikar umsækjenda:
• Áhugi á að vinna með fólki
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæð viðhorf
Nánari upplýsingar um störfin veita Soffía Sigurðardóttir
forstöðuþroskaþjálfi eða Kristin Anna Jónsdóttir yfirþroska-
þjálfi í síma 586 2253,
netfang vaettaborgir@ssr.is.
Frekari upplýsingar um SSR má fá á heimasíðunni
www.ssr.is og þar er unnt að sækja um störfin.
• Laun eru í samræmi við samninga ríkisins og SFR
• Umsóknarfrestur er til 22. janúar 2006
• Aldurstakmark umsækjenda er 20 ár
• Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni
Síðumúla 39, Reykjavík
Á SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun.
Auglýst er laust til
umsóknar starf Eures
ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun
Meðal helstu verkefna Eures ráðgjafa eru:
• Vinnumiðlun og ráðgjöf varðandi störf og starfs
fólk á Evrópska efnahagssvæðinu.
• Upplýsingagjöf um lífs- og vinnuskilyrði á Evrópska
efnahagssvæðinu.
• Samskipti og samvinna við Eures ráðgjafa í öðrum
löndum Evrópska efnahagssvæðisins og þátttaka í
“starfaráðstefnum” (job fairs) og öðrum ráðstefn
um og fundum á Evrópska efnahagssvæðinu
• Samskipti við atvinnurekendur, menntastofnanir
og aðra aðila vegna málefna sem tengjast vinnu
miðlun og fólksflutningum milli landa.
• Viðhald og uppfærsla upplýsinga um laus störf á
Íslandi í evrópskum starfabanka.
Hæfniskröfur:
• Gerð er krafa um háskólamenntun svo sem í
náms- og starfsráðgjöf, öðrum félagsvísindum eða
í skyldum greinum.
Mikilvæg er
• góð kunnátta í ensku og einu norðurlandamáli;
• færni í mannlegum samskiptum;
• færni í að miðla upplýsingum í rituðu máli, í bein-
um samskiptum við einstaklinga, sem og opinber
lega á kynningum og ráðstefnum;
• góð almenn tölvuþekking og -færni.
Þá er æskileg
• kunnátta í þýsku eða frönsku og/eða öðrum opin
berum tungumálum Evrópusambandsins;
• þekking og/eða reynsla af ráðgjöf;
• þekking og skilningur á efnahagslífinu, vinnumark-
aðnum og lögum og reglum honum tengd.
EES-Vinnumiðlun eða EURopean Employment
Services, skammstafað EURES er heiti á samevr-
ópskri vinnumiðlun sem Vinnumálastofnun tekur
þátt í fyrir Íslands hönd. Um er að ræða samstarfs-
net um 600 ráðgjafa um allt Evrópska efnahags-
svæðið og eru tveir slíkir starfandi á Íslandi.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar n. k. og skal um-
sóknum skilað í afgreiðslu Vinnumálastofnunar,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, eða á tölvupósti á
karl.sigurdsson@vmst.is.
Nánari upplýsingar veitir Karl Sigurðsson,
Vinnumálastofnun, sími 515 4800.
RE/MAX BORG
SÖLUFULLTRÚAR FASTEIGNA
RE/MAX BORG óskar eftir að ráða metnaðarfulla sölu-
fulltrúa til starfa strax.
RE/MAX BORG leggur mikinn metnað í fagleg vinnu-
brögð og fara allir sölufulltrúar í gegnum starfsþjálfun.
Tekið verður á móti umsóknum hjá RE/MAX BORG
Tryggvagötu 11, 101RVK, frá klukkan 11:00 – 15:00
mánudaginn 9. janúar.
Ella Lilja Sigursteinsdóttir,
löggiltur fasteigna- og skipasali.