Fréttablaðið - 08.01.2006, Síða 52
ATVINNA
24 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR
RAÐAUGLÝSINGAR
Leikskólar Mosfellsbæjar
Leikskólakennarar og aðrir með
áhuga á skapandi og gefandi starfi.
Börn og starfsfólk leikskólanna Hlíðar og Hlaðhamra leita
að góðu fólki til að vinna með í leik og starfi. Á Hlíð er
unnið skapandi starf til þroska og náms, á Hlaðhömrum er
unnið í anda Reggio stefnunnar. Laus eru staða deildar-
stjóra, einnig óskast leikskólakennarar og þroskaþjálfar til
starfa. Til greina kemur að ráða fólk með aðra menntun og
reynslu.
Við tökum ykkur fagnandi. Endilega hafið samband við
Sveinbjörgu Davíðsdóttur leikskólastjóra á Hlaðhömrum í
síma 566 6351 og 861 3529 eða Jóhönnu S. Hermanns-
dóttur leikskólastjóra.
Starfsólk – félagsliðar
Starfsólk óskast á heimili fólks með
einhverfu, Trönuhólum 1.
Einstaklingsmiðuð þjónusta er á heimilinu. Um er að
ræða bæði hlutastörf og full störf í vaktavinnu. Skipulögð
aðlögun og fræðsla. Bæði konur og karlmenn eru hvött
til að sælkja um þessi störf.
Æskilegir eiginleikar umsækjenda:
• Áhugi á að vinna með fólki
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæð viðhorf
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Ásta Halldórs-
dóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma 557-9760, netfang
tronuholar@ssr.is
Frekari upplýsingar um SSR má fá á heimasíðunni
www.ssr.is og þar er unnt að sækja um störfin.
• Laun eru í samræmi við samninga ríkisins og SFR
• Umsóknarfrestur er til 22. janúar 2006
• Aldurstakmark umsækjenda er 20 ár
• Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni
Síðumúla 39, Reykjavík
Á SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun.
RAÐAUGLÝSINGAR
SÉRHÆFÐUR SÖLUMAÐUR
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða
sölumann í matvæla- og sjávarútvegsgeirann.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið matvælanámi svo
sem í kjötiðn eða matsveinanámi, búa yfir skipulags-
hæfileikum, hæfni í mannlegum samskiptum og geta
sýnt frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Umsóknir ásamt FERILSKRÁ með mynd sendist á
box@frett.is merkt Sérhæfður sölumaður.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Tilboð Óskast:
Eignarlóð við Eyraveg 11-13 Selfossi 1.746,7m2 að
stærð. Nýtingarhlutfall er 1,4 og búið er að samþykkja
deiliskipulag af fjögurra hæða húsi með bílakjallara.
Tilboð skilist til fasteignasölunnar Bakka skriflega
fyrir kl. 17:00 Föstudaginn 20.01.2006
Fasteignasalan Bakki ehf.
Sigtún 2 Selfoss
Sími 482-4000
Árni Valdimarsson lögg.fasteignasali
Sigurður Sveinsson hdl. lögg.fasteignasali
Domus Vox Skúlagata 30. 2h. 101 Reykjavík
Sími 511-3737 / Fax 511-3738
www.domusvox.is
domusvox@domusvox.is
Innritun
9-14 janúar
kl. 16-18
Samhljómur
Árangur
Gleði
Kennsla og kóræfingar hefjast
16. janúar samkvæmt stundarskrá
Domus Vox söngskóli fyrir karla og konur:
• Einsöngsdeild og Unglingadeild
• Stúlknakór Reykjavíkur
- fullskipað í eldri deild (10-16 ára)
- nokkur sæti laus í yngri deild 6-9 ára.
• Gospelsystur Reykjavíkur
- bjóða nýjar söngkonur velkomnar
• Vox feminae fullskipaður
• Vox junior fullskipaður
Skólastjóri og kórstjórnandi:
Margrét J. Pálmadóttir
Kennarar:
Agnar Már Magnússon, Arnhildur Valgarðsdóttir
Ástríður Haraldsdóttir, Hanna B. Guðjónsdóttir
Inga Backman, Ingunn Ragnarsdóttir
Seth Sharp, Stefanía Ólafsdóttir,
Stefán S. Stefánsson og Xu Wen.
Domus Vox
heldur upp á
250 ára afmæli
W.A. Mozarts
27. janúar
næstkomandi.
F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar:
Vinna við fergingu svæðis fyrir gervigrasvöll á
íþróttasvæði ÍR við Skógarsel í Mjódd.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, í upplýsinga-
þjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, frá og með
10. janúar 2006. Opnun tilboða: 19. janúar 2006
kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur. 10661
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Menningarmáladeild
Stokkhólmsborgar
býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyddan,
sem staðsettur er í miðborg Stokkhólms.
Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu
húsi frá 18. öld. Fólk sem starfar að sköpun á sviði
menningarmála og er frá einhverri höfuðborga
Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni, án
endurgjalds, í eina eða tvær vikur á tímabilinu
3. apríl til 29. október 2006. Sjá einnig
www.kultur.stockholm.se / nordiska stipendier
Umsóknareyðublöð fást á reykjavik.is og í
upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Umsóknir sendist í síðasta lagi
1. febrúar 2006 til:
Stockholms kulturförvaltning,
Nordiskt kultursamarbete,
Yvonne Boulogner,
Box 16113
SE 103 22 Stockholm.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Birgisdóttir,
Menningar- og ferðamálasviði, s. 590-1520,
netf. unnur.birgisdottir@reykjavik.is
Húsaleigubætur
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um
húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja
umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs
og gildir umsóknin til ársloka.
Umsækjendur um húsaleigubætur í Reykjavík
eru minntir á að skila umsókn fyrir árið 2006 til
Þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í síðasta
lagi 16. janúar næstkomandi.
Þeir sem eiga lögheimili í Miðbæ eða Hlíðum
hafi samband við Þjónustumiðstöð Miðborgar /
Hlíða, Skúlagötu 21, sími 411-1600.
Þeir sem eiga lögheimili í Vesturbæ hafi samband
við Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Hjarðarhaga
45-47, sími 411-1700.
Þeir sem eiga lögheimili í Laugardal eða Háaleiti
hafi samband við Þjónustumiðstöð Laugardals /
Háaleitis, Síðumúla 39 sími 411-1500.
Þeir sem eiga lögheimili í Breiðholti hafi samband
við Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12,
sími 411-1300.
Þeir sem eiga lögheimili í Árbæ, Grafarholti eða
Norðlingaholti hafi samband við Þjónustumiðstöð
Árbæjar / Grafarholts, Bæjarhálsi 1, sími 411-1200.
Þeir sem eiga lögheimili í Grafarvogi eða Kjalarnesi
hafi samband við Þjónustumiðstöð Grafarvogs,
Langarima 21, sími 411-1400.
Sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar