Tíminn - 07.01.1977, Qupperneq 17
Föstudagur 7. janúar 1977
17
Páll ve
í sviðs-
Ijósinu
Þessi fyrrverandi fyrirliði og lykilmaður
handknattleikslandsliðsins, leikur með
„pressuliðinu" í kvöld gegn landsliðinu
Páll Björgvinsson, fyrrum fyr-
irliði landsliðsins, verður aftur i
sviðsljósinu I kvöld, en þá leikur
hann með „pressuliðinu” gegn
iandsiiðinu i Laugardalshöll-
inni. Páll var einn af lykilmönn-
um landsliðsins sl. keppnis-
timabil eða þar til hann meidd-
ist illa i iandsleik gegn Júgo-
slövum i Novo Nesto, en þar átti
Páli stókostlegan leik — skoraði
mörg glæsileg mörk.
Páll hefur yfir flestum þeim
hæfileikum að ráða, sem góður
handknattleiksmaður þarf að
hafa — hann er sterkur varnar-
leikmaður og mjög góður að
taka einstaka leikmenn úr um-
ferð. Þá er hann útsjónarsamur
sóknarleikmaður — skotfastur,
snöggur og hefur næmt auga
fyrir línusendingum. Þeir, sem
hafa séð Pál leika með Vikings-
liðinu að undanförnu i æfinga-
leikjum segja að hann sé kom-
inn i landsliðsform — og myndi
styrkja landsliðiö mikið.
„Pressuliðiö” sem mætir
landsliðinu annað kvöld og á
sunnudagskvöldið i Laugardals-
höllinni, er skipað nær sömu
leikmönnum og veittu landsliö-
inu harða keppni i siöasta
„pressuleik”, nema hvað Páll,
Sigurður Gislason, 1R, Þorberg-
ur Aðalsteinsson, Vikingi, og
Konráð Jónsson, Þrótti leika nú
með þvi.
„Pressuliðið” er skipað þess-
um leikmönnum:
Markverðir:
örn Guðmundsson, 1R
Kristján Sigmundsson, Þrótti
Aðrir leikmenn:
Hörður Sigmarsson, Haukum
Arni Indriðason, Gróttu
Bjarni Jónsson, Þrótti
Jón Pétur Jónsson, Val
Steindór Gunnarsson, Val
Páll Björgvinsson, Vikingi
SigurbergurSigsteinsson, Fram
Trausti Þorgrimsson, Þrótti
Sigurður Gislason, ÍR
Þorbergur Aðalsteinsson, Vik-
ingi
Konráð Jónsson, Þrótti
Bjarni Jónsson er fyrirliði
liðsins, en Ingólfur öskarsson,
hinn kunni þjálfari Fram-liðsins
er stjórnandi liðsins.
|
Hver
verður
krýndur?
Hver verður krýndur?
Þessari spurniugu veltirallt
íþróttafólk fyrir sér, þvl að I
dag verður iþróttamaður
ársins 1976 á islandi krýndur
við hátiðlega athöfn. Þaðeru
Samtök iþróttafréttamanna
sent standa að krýningunni,
eins og undanfarin ár. A
morgun verður að sjálfsögðu
skýrt frá þvf hér á síöunni
liver Itefur verið útnefndur I-
þróttamaöur ársins.
. ..«■ «
PALL BJÖRGVINSSON.... handknattieiksmaðurinn snjalli úr Vlkingi, leikur meö „pressuliðinu” i
kvöld. Hér sést hann hafa leikið á varnarmenn Dana iiandsleik ogskorar siðan örugglega. ( Timamynd
Gunnar.)
Axel og Ólafur
með landsliðinu
— sem mætir „pressuliðinu '. Nú eru þrjú ór
liðin síðan þessir sterku leikmenn léku
við hliðina d Geir Hallsteinssyni
Dankersen-spilararnir Axel Axelsson og ólafur H. Jónsson hafa veriö
valdir I landsliðið, sem mætir „pressuliöinu” tvisvar sinnum i Laugar-
dalshöllinni — í kvöld og á sunnudaginn. Þeir Axei og ólafur hafa æft
af fullum krafti meðlandsliðinu að undanförnu og þaö er engimu afi um,
að þeir muni styrkja landsliðið mikið.
Það verður gaman að sjá þessa
sterku leikmenn aftur meö lands-
liðinu og sérstaklega samspil
þeirra Björgvins Björgvinssonar
og Axels Axelssonar, sem þekkja
hvor annan eins vel og puttana á
sér. Þá verður einnig gaman að
sjá Geir leika við hliðina á þeim
Ölafi og Axel, en þeir hafa ekki
leikið saman f liði um þriggja ára
skeið, eða síðan i HM-keppninni i
A-Þýzkalandi 1974.
Landsliðsnefndin hefur nú valið
13 leikmenn sem leika gegn
„pressuliðinu”, en þaö eru:
Markverðir:
Ölafur Benediktsson, Olympia
Gunnar Einarsson, Haukum
Aörir leikmenn:
Geir Hallsteinsson, FH
Björgvin Björgvinsson, Vikingi
Viðar Simonarson, FH
Jón Karlsson, Val
Ölafur Jónsson, Dankersen
Axel Axelsson, Dankersen
Ágúst Svavarsson, 1R
Ólafur Einarsson, Vikingi
Bjarni Guðmundsson, Val
Viggó Sigurðsson, Vikingi
Þórarinn Ragnarsson, FH
Eins og sést á þessu, þá er
landsliðið skipað sterkum leik-
mönnum, en það er óvist hvort
það dugi gegn „pressuliðinu”,
sem er einnig sterkt. Endurkoma
þeirra Ólafs og Axels mun styrkja
landsliðið mikið — bæði i vörn og
sókn.
„Slask"
kemur
— og æfir hér
með landsliðinu
um vikutíma
Pólska meistaraliðið
„Slask” frá Wroglaw, sem
sló FH-inga út úr Evrópu-
keppni meistaralíöa , er nú
væntanlegt aftur til landsins.
Allir beztu leikmenn liðsins,
ásamt nokkrum styrktar-
mönnum, munu dveljast hér
um vikutima — frá 9.-16.
fcbrúar og æfa ineð landslið-
inu tvisvar sinnum á dag og
auk þess leika hér 2-3 opin-
bera leiki. Januz Cher-
winsky, landsliðsþjálfari,
scm er nýkominn frá Pól-
landi, kom þessu i kring, og
er greinilegt, aö hann ætlar
sérstóra hluti með landsliðið
okkar.
LITLI OG
STÓRI
Þessa skemmtilegu mynd tók G.E. Ijósmyndari Timans á landsliös-
æfingu hjá unglingalandsliöinu I körfuknattleik. Pétur Guðmundsson
sem stundar nám og leikur körfuknattleik I Bandarikjunum, sést hér
leggja knöttinn á höfuðið á einum félaga sinum I unglingaiandsliðinu.
Pétur sem er 2.17 m á hæð, og félagar hans veröa á ferðinni i Osió um
helgina, en þar fer fram Norðurlandamót unglinga.
Strákarnir hjá unglingalandsliöinu hafa lagt mikiö á sig til að komast á
NM-mótið,en þeir þurfa aöborga 80%af öllum kostnaðiisambandi við
ferðir og uppihaid úr eigin vasa.