Fréttablaðið - 23.01.2006, Síða 1

Fréttablaðið - 23.01.2006, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG 16% 31% F ré tt a b la › i› F ré tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Fasteignablað Morgunblaðsins Allt-fasteignir. á mánudegi LESTUR MEÐAL 25-45 ÁRA Húsnæðisleitin hefst í Fréttablaðinu Sími: 550 500023. janúar 2006 — 22. tölublað — 6. árgangur KARL REYNISSON Byggir sjálfur við húsið fasteignir hús Í MIÐJU BLAÐSINS STEFÁN KARL STEFÁNSSON Stofnar Regnbogabörn í Bandaríkjunum Segir íslensk stjórnvöld vera áhugalaus FÓLK FROSTI LOGASON Útvarpsstöðin X-ið gaf Foreldra- húsum 350 þúsund krónur Peningurinn safnaðist á árlegum X-mas tónleikum FÓLK 30 Krúttmamman Sýning Gabríelu Frið- riksdóttur hefur vakið athygli. Þetta er sýning til þess að fara einn á og vera lengi að skoða. MENNING 22 Hnallþórur í Bændahöllinni Haraldur Bene- diktsson, formaður Bændasamtakanna, er fertugur í dag og bauð í sunnudagskaffi í gær. TÍMAMÓT 58 BJARTVIÐRI Það verður yfirleitt hæg suðvest-læg átt með björtu veðri á Norð- ur- og Austurlandi. Skýjað með köflum vestan til og stöku slyddu- eða snjóél. Hiti 0-4 stig. VEÐUR 4 SKOÐANANAKÖNNUN Flestir borgar- búar vilja að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, verði næsti borgar- stjóri Reykjavíkur, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 37,9 prósent borgarbúa nefna Vilhjálm og hefur hann talsverða yfirburði yfir aðra sem nefndir voru í könn- uninni. Samfylkingarmenn koma í næstu þremur sætum. 21 prósent nefndi Dag B. Eggertsson, 13,9 prósent nefndu Steinunni Valdísi Óskars- dóttur og 10 prósent nefndu Stefán Jón Hafstein. Þau sækjast eftir efsta sæti á lista flokks síns fyrir kosning- arnar í vor. Gísli Marteinn Baldurs- son, Sjálfstæðisflokki, var efstur í hliðstæðri könnun Fréttablaðsins í ágústlok. „Ég er afskaplega ánægður og afar þakklátur fyrir þann stuðn- ing sem borgarbúar sýna mér. Fái ég tækifæri til að gegna embættinu mun ég ekki bregðast trausti þeirra,“ sagði Vilhjálmur Þ. í gærkvöld. Fylgi hans hefur vaxið stórum frá síðustu könnun Fréttablaðsins og sömuleiðis fylgi Dags B. Eggerts- sonar. „Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir okkur í Samfylkingunni því samkvæmt þessu eru fleiri sem vilja samfylkingarmann í stöðu borgar- stjóra en sjálfstæðismann. Ég er líka ánægður með þann góða grunn sem ég virðist hafa í upphafi baráttunn- ar og ætla að leggja mig allan fram við að vinna þá sem eru óákveðnir á okkar band.“ Fleiri nefna Steinunni Valdísi nú en í ágústlok. „Ef maður leggur saman fylgið þá er það greinilegt að 44,9 prósent aðspurðra vilja sjá samfylkingarmann sem næsta borg- arstjóra og það finnast mér mjög ánægjuleg tíðindi. Auk þess er ég auðvitað glöð að sjá að fylgið við mig er að aukast,“ sagði Steinunn í gærkvöld. Mun færri nefna Stefán Jón í könnuninni nú en í ágúst. „Ég viðurkenni að mér finnst ekki skemmtilegt að sjá svona tölur en ég hef ekki trú á að þetta sé hin rétta staða ef tekin er marktæk könnun með hærra svarhlutfalli. Það er þó ljóst að myndin hefur ruglast ansi mikið þegar Dagur kom inn í baráttuna og ég þarf auðvitað sækja mjög stíft áfram,“ sagði Stefán Jón. Spurt var: Hver vilt þú að verði næsti borgarstjóri? Hringt var í 600 Reykvíkinga með kosninga- rétt. Rúmlega 300 svöruðu. - bþs/sjá síðu 4 Vilhjálmur Þ. verði næsti borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er óskaborgarstjóri Reykvíkinga samkvæmt skoð- anakönnun Fréttablaðsins. 38 prósent borgarbúa vilja Vilhjálm í embættið. 21 prósent vill Dag B. Eggertsson og 14 prósent Steinunni Valdísi Óskarsdóttur. Manchester United vann Liverpool Manchester United batt enda á sigur- göngu Liverpool í ensku úrvals- deildinni í gær. Rio Ferdinand skoraði eina mark leiksins á loka- mínútunum. ÍÞRÓTTIR 38 Engin moðsuða í Garðabæ „Því að þótt sjálfstæðismenn í Garða- bæ séu í þannig skapi um þessar mundir að telja að ekki sé óhætt að hleypa konum mikið upp á dekk þá er það ekkert lögmál fyrir fólk ¿ jafnvel þótt það búi í Garðabæ ¿ að þurfa að kjósa Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Guðmundur Andri í grein sinni. Í DAG 16 PORTÚGAL, AP Útgönguspár bentu til þess í gærkvöld að íhaldsmað- urinn Anibal Cavaco Silva hefði borið sigur úr býtum í forsetakosn- ingum sem fram fóru í Portúgal í gær. Ef spárnar standast verður hann fyrsti hægrimaðurinn til að gegna embætti forseta síðan árið 1974. Silva var forsætisráðherra á árunum 1985-1995. Þrátt fyrir að embætti forseta sé að mestu táknrænt velur hann hver verður forsætisráðherra og getur leyst upp þingið. Mótframbjóðendur Silva voru skáldið og þingmaðurinn Manuel Alegre og Mario Soares, fyrrver- andi forsætisráðherra Portúgals og forseti í tvígang. ■ Forsetakosningar í Portúgal: Hægrimaður verður forseti NÝR FORSETI Anibal Cavaco Silva er hagfræðingur og lofar að koma skriði á efnahagslíf Portúgals. VEÐUR Gríðarlegir kulda hafa geisað víða í Evrópu um þessar mundir og hafa fjölmargir látist. Kuldinn náði á nokkrum stöðum sögulegu hámarki um helgina og til dæmis mældist tæplega sjötíu gráðu frost í Síberíu í Rússlandi á laugardag. Frostið í Moskvu mældist 32 gráður og að minnsta kosti sjö manns frusu í hel í borginni aðfaranótt sunnudags. Tólf hafa látist í Úkraínu og sex dóu úr kulda í Lettlandi í gær þar sem hitastigið hefur ekki verið lægra í heila öld. Pólverjar hafa ekki sloppið við kuldakastið því þar lést tuttugu og einn af völdum þess um helg- ina. Þar með hafa 144 dáið af völd- um kulda í Austur-Evrópu það sem af er vetri. Spáð var tæplega 30 gráðu frosti í Póllandi í dag. Áfram er gert ráð fyrir miklum kuldum í álfunni. Norðurlandabúar fóru ekki varhluta af skapstyggð veðurguð- anna. Fárviðri geisaði í Norður- Noregi um helgina og fór rafmagn af Tromsö í dágóða stund vegna snjóþyngsla á raflínum. Í Helge- land fuku hús eins og eldspýtur í ofsaveðri og þar áttu vegfarendur fótum fjör að launa. Ástandið í Danmörku var ekki mikið skárra. Þegar grýlukerti og íshröngl tóku að hrynja úr burðar- vírum Stórabeltisbrúarinnar, sem tengir Fjón og Sjáland, var lokað fyrir umferð og því mynduðust margra kílómetra langar bílarað- ir beggja vegna brúarinnar. Tók allt að tuttugu klukkustundir að losa fólk úr bifreiðum sínum. Flugumferð um Kastrup-flug- völl lá nánast niðri frá því í fyrra- kvöld og langt fram eftir gær- deginum. Sjálft óveðrið virðist að baki en veðurfræðingar gera ráð fyrir að frosthörkur muni jafnvel færast í vöxt. - sgi Sjötíu stiga frost mældist í Síberíu í gær og er búist við frosthörkum áfram: Fimbulkuldi ríkir í Evrópu ERFITT LÍF Á GÖTUNNI Þessi tvö heimilislausu skötuhjú reyndu að fá yl í kroppinn við uppgufun frá loftræstiröri í Moskvu. Sjö létust aðfaranótt sunnudags í borginni vegna kulda sem fór allt niður í 32 gráðu frost. MYND/AFP NOREGUR Sextán ára gömul stúlka í bænum Hommersåk skammt frá Stavangri í Noregi var skotin til bana um helgina. Unnusti stúlk- unnar, sem er ári eldri en hún, hringdi til lögreglu aðfaranótt sunnudags og sagðist hafa orðið henni að bana. Hann var handtek- inn skömmu síðar og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Óhug hefur sett að íbúum Hommersåk sem er lítill friðsæll bær en það voru vegfarendur sem fundu stúlkuna liggjandi í blóði sínu á götu í útjaðri bæjarins. ■ Óhugnanlegt morð í Noregi: Skaut unnustu sína til bana MÁNUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.